Bjarmi - 01.09.1927, Qupperneq 1
BJARMI
= IÍRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XXI. árg.
Reykjavík, 1. sept. 1927
23.-24. tbl.
„Þjer munuð fagna með óumræðilegri gleði, þegar þjer náið takmarkinu
fyrir frú yÖar, frelsun sálna yðar". (I. Pjetur 1. 9.).
Geir Sæmundsson
vigslubiskup
tindaðist 9. ág. s. 1. eftir 2 vikna legu
í hjartasjúkdómi; er þar hniginn
góður maður og vinsæll. Hann var
fyrir löngu góðkunnur um land alt
fyrir ágæta söngrödd, og þótti skara
fram úr öllum öðrum prestum við
altarið. Sóknarbörn hans, sem um
hann hafa ritað látinn í Akureyrar-
böðin, tala mjög hlýlega um prests-
störf hans. Brynleifur Tobiasson seg-
ir meðal annars í Degi 11. ág. s. T.:
„Sr. Geir var jafnan góður gestur, en
einkum var hann kærkominn, þegar
sorgin var i húsinu. Hann gat flest-
um betur glaðst með glöðum og
hrygsí með hryggum, og með ljúf-
mensku sinni og kærleika huggaði
hann marga hrelda og' þerraði mörg
tár af augum þeirra".
Sá, sem þetta ritar, minnist góðra
stunda úti i fögrum garði við hús
sra G,eirs á Akureyri, fegursta garð-
inum við íslenskt prestheimili; þegar
frá er skilinn hinn unaðsfagri ,,Skrúð-
ur“, er sra Sigtryggur Guðlaugsson á
á Núpi hefir gróðursett á margfalt
óhentugfi stað en er í skjólunum á
Akureyri. — Mjer er nær að halda
að sr Geir hafi hvergi kunnað betur
við sig en i garði sínum; mjer virt-
ist honuin Ijúfara að tala þar um það
sem dýpst býr í hjartaúu en annars-
staðar, og þau samtöl vöktu hjá mjer
þau hlýindi, er ekki hurfu, enda þótt
mjer gremdist livað hann taldi úr í
fyrra sumar að gjörðar væru nokkr-
ar tilraunir til að koma á almennum
sóknarnéfndafundum á Akureyri.
Það mun rjett, sem getið var uni í
einhverju hlaði, að liann hafi veriö
orðinn þreyttur síðustu árin. En
mjög var honum þó hugleikið að
endurreisa prestaf jeiagið norðan-
lands, enda siðustu störf hans að
stjórna prestafundinum uorðlenska,
sem sagt er frá hjer i blaðinu, og i
hinsta sinn ior í hann í kirkju lil að
veita prestunum altarissakramenti.
Hann hjet fullu nafni Geir Stefán,
f. 1. sept. 1867; Foreldrar lians voru:
Sæmundur prófastur Jónsson í
Hraungerði og kona hans, Stefania
Siggeirsdóttir prests á Skeggjastöð-
um. Hann varð stúdent 1887, tók em-
bættispróf við háslcólann í K.höfn
1894, var veittur Hjaltastaður 1897,
fjekk Akureyrarprestakall 8. júní
1900, varð prófastur í árslok 1905,
og skipaður vigslubiskup í Hóla-
hiskupsdæmi hinu forna haustið
1909, samkvæmt kosningu presta.
Var vigður bisleupsvígslu í Hóla-
kirkju 10. júlí 1910 af Þórhalli
biskup, en þar liafði Geir Vídalin
einn tekið hiskupsvígslu áður, er Sig-
urður Stefánsson Hólahiskup veitti
biskupsvigslu 30. júlí 1797. Geir
vigslubiskup kvæntist 1896 Sigríöi
Jónsdóttur háyfirdómara. Eignuðust
þau 3 höru, og lifa tvö þeirra, Jón
og Heba, hæði uppkomin. Frú Sig-
ríður andaðist 23. okt. 1923 eltir
langvinn veikindi.