Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1930, Blaðsíða 23

Bjarmi - 01.04.1930, Blaðsíða 23
B J A R M I 71 up álits sóknarnefnda, prófasts og kirkjuráðs um veitinguna. Fari álit sóknarnefnda, eða meiri hluti þeirra, prófasts og kirkjuráðs saman, eða að niinsta kosti annað hvort prófastur eða kirkjuráð er sammála sóknar•• nefndunum, þá skal veita embættið samkvæmt því. Hafi m. k. þriðjungur sóknarnefnda óskað annars prests en nieiri hlutinn og bæði prófastur og kirkjuráð sjeu Jiví sammála, ber að veita ]>eim presti embættið. — Hafi veiting ekki tekist á þennan veg, veit- ir ráðherra embættið, að fengnu áliti biskups. Tvö af hægustu prestaköllunum eru |)ó alveg undanskilin í ]>essu til- liti. Ráðherra er ætlað að veita ]>au ]>eim prestum, er hafa áunnið sjer viðurkenningu sem kennimenn, rit- höfundar, skáld, fræðimenn eða eru taldir hæfir til að verða guðfræði- kennarar. Eru launakjör þessara prestakalla ætluð % hærri en annara Prestsembætta. I’á er og gert ráð fyrir, að prest- urn sje heimilt að hafa skifti á presta- köllum um stundarsakir, ef sóknar- nefndir og kirkjustjórn samþykkja. Kirkjumálanefndin segir meðal annars svo í greinargerð sinni um þetta frumvarp: Síðasta prestastefna og margir hjeraðsfundir hafa eindregið óskað breytinga í ]>á átt, sem hjer er lagt til. — Æsingar og undirróður er nú orðið svo algengt við prestskosningar, að I remur má teljast til undantekninga, ef ]>ær fara að öllu friðsamlega fram. Er það þó öllum ljóst, hvílík hætta kirkjulegri starfsemi er af þessu bú- ln- Æsingarnar sundra kröftum safn- aðarstarfseminnar og verða þess valdandi að fjöldi presta á ákveðinn andstöðuflokk strax er þeir koma til safnaðanna. Það fer að vonum, að all- ir eru ekki jafn lagnir á að jafna það og vinna samhug safnaða sinna í starfinu, ])egar svo er um búið í byrj- un. Reynist oft á því sviði, sem ann- arsstaðar, að ]>að sje hægra að vekja sundrungina en eyða henni. — Vegna ]>ess og annara agnúa prestskosninga er svo kornið, að margir hinna bestu og hæfustu manna innan prestastjettarinnar eru mjög tregir til að sækja um önnur prestaköll, þótt þeir annars óskuðu að skifta um starfssvið, og gætu með því móti betur notið hæfileika sinna. Þannig stuðlar margt að því, að prestkosningalögin ná ekki tilgangi sínum í framkvæmdinni. I»að er ekki nema í orði, að fólkið sjálft, eða söfn- uðurinn, ráða um val presta, heldur verður ]>að bæði tilviljun, sem ræður um það, hverjir sækja í hvert sinn, sem og hvort kosning verður lögmæt. Tilgangur ])essa frumvarps er sá, að reyna að bæta úr þessum augljós- ustu göllum prestkosningalaganna. — Er hjer haldið meginhugsun þeirra, að veitingavaldið sje hjá söfnuðin- um sjálfum, og rjettur samhuga safn- aðar aukinn, þar sem hann getur sjálfur kallað sjer prest, og á ekki eins, og nú, bundin atkvæði um ]>au ein prestsefni, er sótt hafa um presta- kallið. Samkvæmt ]>essu frumvarpi, ef að lögum verður, lætur söfnuðurinn ekki lengur tilviljun eina ráða um það hverjir sækja um prestakallið, heldur snýr hann sjer þegar til ]>ess manns eða manna, innan prestastjettarinnar eða í guðfræðinga hóp, er hann hefir helst augastað á. Hefir hann þá fult vald til að ráða sjer prest án íhlut- unar kirkjustjórnar. En takist köll- un ekki, þá er með ákvæðum 12.—15. gr. söfnuði trygt það vald um veiting- una, sem öll sanngirni mælir með og honum gæti að fylstum notum orðið,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.