Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1930, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.04.1930, Blaðsíða 26
74 BJARMI að eiga þess kost. „Vinur minn í Kristi“, var þá hans síðasta orð til mín. Þá mátti sjá, hvað meint er með )>ví, að vera „höndlaður af Kristi“. Þá kom ]>að í ljós, hvað kærleikur Krists hefur hátt deyj- andi sál — sál, sem deyr sjónum vorum, deyr líkamslífinu, deyr frá hinu ytra, um leið og hún gengur inn til æðra lífsásigkomulags, ]>ar sem hún er hæfari en hjer til að ná eilífðarákvörðun sinni, hæfari en hjer til að nálgast Krist, hæfari en hjer til þeirrar eilífu guðs|>jónustu, er að lokum skipar henni á bekk með hinum heilögu og útvöldu Guðs. Ól. Ólafsson. Kvennabrekku. III. Fyrir eitthvað 15 eða 16 árum frjetti jeg að gamall maður væri ný- búinn að stofna sunnudagaskóla á Blönduósi og hefði fengið eina kenslukonu við Kvennaskólann til stamstarfs við sig. Mjer ]>ótti ]>etta svo mikil nýjung og góð, að jeg skrif- aði norður til að vita nánar um um |>ennan áhugamann. Hann hjet Sigurður Sölvason, var nýkominn vestan um haf, og hafði ]>ar tekið ástfóstri við sunnudagaskólastarf. — En starfstíminn varð stuttur, því að æfin þraut bráðlega. Nokkru síðar, árið 1918, kyntist jeg konu hans, frú Rut Sölvason, og systur hennar, frú Þórunni Jónas- son, vestur í Selkirk í Manitoba. — Varð jeg þess brátt var að þær syst- ur höfðu áhuga á mörgum góðum málum, og ljet frú Rut Sölvason sjer einkar ant um að útbreiða Bjarma meðan hún dvaldi í íslend- ingabygðum. Seinna fluttist hún með systur sinni og dætrum hennar langt vestur í land, fjarri íslendingabygðum, og 14. nóv. í vetur andaðist hún þar vestra. Systurdóttir hennar, frú Jóna Hal- vorson ein af gjörvilegustu ungu stúlkunum sem jeg sá vestan hafs, skrifar langa minningargrein um frænku sína í Lögberg, 20. febr. og er þaðan að mestu tekið það, sem hjer segir: Rut var fædd 1844 í Kolgröf í Skagafirði. Foreldrar hennar voru Magnús Andrjesson (dáinn 1887) og Rannveig Guðmundsdóttir Jónssonar og konu hans Ingibjargar Björns- dóttur frá Bólstaðahlíð. Rut sál. (fædd 1844) var elst af 11 systkinum, eru 2 systur hennar enn á lífi: Ingibjörg, ekkja Stefáns Magnússonar á Flugu í Vatnsdal og Þórunn, kona Bjarna Jónassonar frá Ási í Vatnsdal. 2 bræður ]>eirra eru látnir fyrir nokkru: sr. Jón á Mæli- felli (d. 1928) og Konráð á Syðsta- Vatni (d.1910) í Skagafirði, faðir sr. Helga á Bíldudal. Árið 1862 giftist Rut sál. Sigurði Sölvasyni og bjuggu þau um hríð í Hvammi í Svartárdal, en fluttust til Ameríku 1883 og bjuggu lengi í Akrabygð í N.-Dak. Ekki varð þeim barna auðið, en 2 drengi ólu þau upp og komu vel til manns. Frú Jóna Halvorson skrifar svo í Lögberg: „Rut heitin var nærri þrjú ár rúmföst, en banalegan var aðeins vika. Bar hún sinn langa sjúkdóms- kross með frábærri stillingu og þol- inmæði, felandi sig og sína Guðs velþóknanlegum vilja á vald og sagði oft: „Verði ætíð hvað vill, minn Guð, vild hans er æ hin besta“. Líka hafði hún oft yfir ]>etta: „Þótt hold- ið liggi lágt, og læst í dróma, fær andinn hafist hátt í himin ljóma“. — Hún var fullviss um sælu og eilíft líf hinum megin.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.