Bjarmi - 01.11.1968, Síða 3
I t I
ijaiai |
KRISTILEGT BLAÐ
Kemur út einu sinni i m&nuði, 16 siður
nema sumarmánuðina. Þá 8 síður.
Árgjald kr. 100.00. Gjalddagi 1. mal.
Afgreiðsla Amtmannsst. 2B, Reykjavik.
Pósthólf 651. — Simar 17536 og 13437. !!
Ritstjórar: Bjarni Eyjólfsson
og Gunnar Sigurjónsson.
Prentað i Prentsmiðjunni Leiftur h.f. jj
Efni m.a.z
Barn er oss fætt .......... 2 jjj
Frelsari fæddur? .......... 3 jj
Svolítil jólaráðlegging.... 4 jj
Söfnuðurinn i Konsó 10 ára. 6 jj
Gamla klukkan .... 10
Guð og maður (ljóð) .... n
Ársþing og einstaklingssaga . .... 12
Uppörvanir .... 14
Jólabréf frá kristniboðunum . 14—18
Ljósið lýða (ljóð) .... 18
Framhaldssagan .... 20
Friður i stað ótta .... 21
Nöfn góðilmsins .... 24
Forttíðumynd.
Vetrarmynd frá Hveradölum á Hellis- jjj
heiðarleið. Þar er eins og kunnugt er jjj
eftirsóttur staður margra Reykvík- jjj
inga, þegar vetur rikir og nægur jjj
snjór hjúpar jörðina hvítum og hrein- jjj
um faldi sínum. jjj
Innheimia.
Þó nokkrir kaupendur, sem áttu jjj
ógreitt árgjald fyrir blaðið, brugðu jjj
við og greiddu það, eftir að siðasta jjj
blað kom út. Samt eiga ýmsir eftir jjj
að greiða. Er þess vænzt, að þeir geri jjj
það sem fyrst eftir áramót, þar sem jjj
erfitt er um innheimtu, þegar um er jjj
að ræða eins litið árgjald og er fyrir jjj
„Bjarma".
Þakkir.
Kaupendum og öðrum vinum blaðsins jjj
eru færðar þakkir fyrir stuðning og jjj
vináttu við það á liönu ári. Þeim er jjj
einnig þakkað umburðarlyndi vegna jjj
dráttar á útkomu blaðsins, sem varð jjj
óvenjumikill einkum tvisvar á árinu. jjj
Er vonandi, að betur takist til á jjj
nýju ári. jjj
FRELSARI FÆDDUR?
Er það satt?
Fœddist raunverulega frelsari heirmins, þegar María ól son
sinn í fjárhúsinu í Betlehem? Er það staðreynd?
Það veltur ekki litið á, hver sannleikurinn er i þessu efni.
Kirkjan hefur um áldir byggt tilveru sína á þeim grunni, að
gamla sagan um Guð, sem sendi einkason sinn til þessarar jarð-
ar til að frelsa heiminn, sé sönn. Þar fari ekkert á milli mála.
„Yður er í dag frélsari fæddurí‘, sagði engillinn við hirðana.
Það em skýr og auðskilin skilaboð. Þeim fylgdu teikn, sem
hafa mátti til sönnunar því, að rétt vœri frá skýrt um atburð
þann, sem orðinn var — og hver hann vœri þessi frelsari, sem
fœddur var.
En er þaö satt, að frelsari hafi fæðzt? Eða skiptir þaJð
raunar nokkru máli, hvort það er álveg bókstaflega satt eða
ekki, aðeins ef unnt er að orna sér við þessa frásögn enn í
dag — hálda hátíð, sem veitir velþegna tilbreytingu í gráum
hvei'sdagsleika mannlífsins?
Já, það skiptir máli.
Tilvera kirkjunnar stendur og fellur með því, að fagnaðar-
erindið um Guðs son, Jesúm Krist, frélsara heimsins, sé sann-
leikur. Kirkjan á ekki annan tilverurétt en sannleikann um
hann. Og það er ófyrirgefanlegt gagnvart sannleikanum, gagn-
vart einstáklingnum og lífsanda. hans, gagnvart þjóðfélaginu
og gagnvart mannkyninu í heild að burðast með stofnun eins
og kirkjuna — og innan hennar fjölda félagshreyfinga — ef
það mikla og kostnaðarsama bákn, sem gerir tilkall til þess að
skuldbinda samvizkur manna, er byggt á röngum forsendum,
sem fá ekki staðizt. Hér er atriði, sem er álls ekki unnt að
loka augum fyrir, héldur verður að g&ra hreinskilnislega upp
við sig.
Hefur Guð framkvœmt hjálprœðisverk mannkyninu til
bjargar, til þess að greiða því leið til samfélags við hann?
Hefur hann sent því frelsara, og það son sinn?
Þeir, sem fluttu vitnisburðinn um Krist Jesúm í upphafi,
vor-u ekki í nokkrum vafa. Þeir komu með þau miklu fagn-
aðartíðindi til mannanna, að Guð hefði gefið þeim frélsara og
Di'ottin og Jesús frá Nazaiet vœri þessi frelsari. Þeir vitnuðu
skýrt og ákveðið um það, hversu ritningamar og fyrirheitin
hefðu rætzt í honum. Nær því í hverju orði vitnisburðar þein'a
um Krist má skynja hjartað titra af fögnuði og djörfung, af
því að „það orð er satt og í álla staði þess vert, að við því
sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til þess að frélsa
synduga menrí‘. Inn í heitið frelsari er ékki unnt að leggja,
að hann hafi verið oss fyrirmyndin ein, sem sýndi oss, hvei'nig
vér œttum að breyta og hvaða leið vér ættum að ganga til þess
að höndla eílíft líf.
Nei, hann kom til þess að freisa syndara. Það er hans vei'k.
Og hann er enn í dag frélsari syndara. Það er vissulega satt.
Og því er það boðskapurinn öUum öðrum fagnaðamkari, að
frélsari er fæddur.
BJARMI 3