Bjarmi - 01.09.1969, Page 6
o 03 03 GO O C3 'SZ' H 03 c= =3 M GO GO C=> ”o3 03 03 C=
Frá starfinu C= :o C3 C/5 >■* 03 Q= GO 03 oo vco 03 j= GO
'e t/J c= 03 O M co 03
vo o 4-í 'CO O io il? “co JSd 03 oo 03
L.AUGAR-
DAGUR
Þótt langt sé um liðið frá því
að almenna kristilega mótið var
haldið í Vatnaskógi, er rétt að
segja svoiítið frá því.
Mótið hófst, eins og fyrirhug-
að var, laugardaginn 28. júní.
Mikil rigning hafði verið dag-
ana á undan, en á laugardags-
morgninum var veður allsæmi-
legt og fór sífellt batnandi, er
á daginn leið. Var yndislega
failegt veður í Vatnaskógi síð-
ari hluta dagsins og allt kvöldið.
KI. 6 e. h. hófst mótið með
guðsþjónustu, þar sem séra Jó-
hann S. Hlíðar, sóknarprestur í
Vestmannaeyjum, prédikaði og
annaðist guðsþjónustuna. Hafði
hann fyrir texta orð Jesaja spá-
manns: „Hvort fær kona gleymt
brjóstbarni sínu? Og þó að þær
gætu gleymt, þá gleymi ég samt
ekki. Sjá, ég hef rist þig á lófa
mína.“ Talaði hann siðar um
það, að Guð gleymir ekki sín-
um. Mótsþátttakendur þessarar
setningarguðsþjónustu munu
hafa verið um 330.
Kl. 9 um kvöldið var svo aft-
ur samkoma, og var efni hennar
„Ég vil lofsyngja Drottni“. Það
efni annaðist Bjarni Eyjólfsson.
Veðurfegurðin um kvöldið
hélt fólki úti þar til langt eftir
miðnætti, enda hafði verið vætu-
samt á undan, svo sem áður
segir.
SUIVAU-
DAGUR
Er þátttakendur vöknuðu á
sunnudagsmorgni, var komin
rigning og hélzt óslitið allan
daginn, og oft mikil rigning. Úr
bætti, að stillt var í veðri og
mjög hlýtt.
Fyrsta samverustund dagsins
var guðsþjónusta kl. 10, sem sr.
Jóhann S. Hlíðar hafði, og tal-
aði þá um það, að Guð gleymdi.
Boðaði hann þar fagnaðarerind-
ið um fyrirgefningu syndanna,
fyrir Jesúm Krist. 1 guðsþjón-
ustunni var altarisganga, og að-
stoðaði sr. Lárus Halldórsson
við þjónustuna. Altarisgestir
vor um 250.
Kl. 2 e. h. var kristniboðs-
samkoma. Gylfi Svavarsson,
kennari, bróðir Skúla Svavars-
sonar, kristniboða, sagði fréttir
frá Gídole og las úr bréfum frá
Skúla, sem hann hafði sent ætt-
ingjum. Á sama hátt hafði Jón
Dalbú Hróbjartsson fréttaþátt
úr bréfum frá Margréti Hró-
bjartsdóttur, systur sinni, og
Benedikt Jasonarsyni, mági sín-
um. Þá var og fréttastubbur úr
bréfi, sem borizt hafði frá Katr-
ínu Guðlaugsdóttur. Á samkom-
unni var og minnzt þess, að 40
ár væru liðin frá stofnun Sam-
bands ísl. kristniboðsfélaga.
Voru samkomugestir beðnir um
að minnast þess með því að gefa
til starfs Kristniboðssambands-
ins góða afmælisgjöf. Urðu þeir
vel við þeim tilmælum, því að
í samskot í lok samkomunnar
komu kr. 111.102,30. Eru það
langmestu samskot, sem inn
hafa komið á kristniboðssam-
komu í Vatnaskógi.
Kl. 5 síðdegis var samkoma.
Þar töluðu þeir Sævar B. Guð-
bergsson, kennari, Friðrik Ó.
Schram, verzlunarmaður, og
Sigursteinn Hersveinsson, út-
varpsvirki.
Síðasta samkoma mótsins var
svo kl. 8 á sunnudagskvöld.
Sverrir Arnkelsson, prentari,
byrjaði samkomuna með nokkr-
um orðum, en síðan var orðið
gefið frjálst og þátttakendur
vitnuðu um trú sína. Stóð sú
samkoma til kl. rúmlega 10 um
kvöldið, og bifreiðir komu að
sækja þá þátttakendur, sem ætl-
uðu heim þá um kvöldið.
Með samkomu þessari lauk
mótinu að þessu sinni. Var það
styttra en vant er, og var það
vegna þess, að kristniboðsþing
átti að hefjast daginn eftir. Var
það einum degi lengur en vant
er, þar sem minnzt skyldi 40 ára
afmælis Sambands ísl. kristni-
boðsfélaga í sambandi við það
þing.
6 B J A R M 1