Bjarmi - 01.09.1969, Side 9
Sprctt úr spori á vellinuni í Vatnaskógi.
stutta en fjölbreytta dagskrá
með frásögnum, söng, hljómlist
og veitingum. Höfðu þær sam-
verustundir, sem búið var að
halda, er þetta var ritað, tekizt
vel og jafnframt orðið nokkur
hjálp félögunum i sambandi við
kostnað við húseignina.
Mikið hefur verið unnið í
húsinu og lóðinni í sumar, bæði
að endurbótum á velli og
breyttri innréttingu í kjallara
hússins. Er verið að koma þar
fyrir steypibaði og búningsklef-
um fyrir þá, sem nota leikvell-
ina. Þá verður og komið fyrir
geymslum í kjallaranum. Breyt-
ist aðstaða þá öll mjög fyrir
starfsemi félaganna í húsinu við
þetta.
I.MilJMiA-
MÓT
S VAT’NA-
SKÓGI
Starfslið unglingadeildar K.F.
U.M. og K.F.U.K. í Reykjavík
hafa efnt til unglingamóts í
sumarbúðunum í Vatnaskógi
um verzlunarmannahelgina und-
anfarin 5 ár. Mótin hafa aðeins
verið auglýst innan deildanna.
Mótið í ár var hið fjölmennasta
þeirra, en þátttakendur voru um
290. Hin árin hafa verið þetta
frá 220 til 240 þátttakendur.
Eins og kunnugt er eru ungl-
ingadeildirnar ætlaðar ungling-
um á aldrinum 13 Ví> til 16 ára.
Mótið hófst í yndislegu veðri
kl. 6 e. h. laugardaginn 2. ágúst.
Friðbjörn Agnarsson og Hrafn-
hildur Lárusdóttir töluðu á þess-
ari fyrstu samkomu, en yfir-
skrift hennar og mótsins var
„Nú víst ég veit“.
Kl. 8.30 um kvöldið var kvöld-
vaka með mjög fjölbreyttri dag-
skrá, og önnuðust unglinga-
flokkarnir í Vatnaskógi og í
Vindáshlíð kvöldvökuna.
1 lok kvöldvökunnar voru
tvær stuttar hugleiðingar með
yfirskriftinni „Ég varð sjáandi".
önnuðust þau Valdís Magnús-
dóttir og Gunnar Jóhannes
Gunnarsson þær.
Síðari hluta nætur skall á
óskaplegt veður, mikið hvass-
viðri og rigning. Leituðu þá
nokkrir úr tjöldum og inn í
skála, en húsakostur er mikill
og góður í Vatnaskógi. Veðrið
lægði undir morgun og batnaði
■er á daginn leið allt fram undir
kl. 4 um daginn. Þá tók aftur
að rigna svolítið, en veður var
kyrrt.
Kl. 11 á sunnudagsmorgun
var guðsþjónusta út frá öðru
guðspjalli dagsins. Eftir hádeg-
ið voru svo alls konar leikir á
leikvöngum Vatnaskógar, en þar
er ágætis aðstaða til iþrótta og'
leikja.
Kl. 5 var unglingadeildar-
fundur, þar sem Sigursteinn
Hersveinsson hafði frásöguþátt
í upphafi fundarins, en Hilmar
Baldursson talaði út frá efninu
„Óhætt að treysta?"
Kl. 8 var svo aftur kvöldvaka,
sem K.F.U.M. á Akranesi og
mótsnefndin sáu um. Var dag-
skráin mjög fjölbreytt og vakti
mikla ánægju þeirra, sem nutu.
Er léttari hluta dagskrárinnar
var lokið, varð nokkurra mín-
Framh. á bls. 11, 3. dálki.
U J A R M 1 O