Bjarmi - 01.09.1969, Side 12
Fyrsta heimsókn frá eþíópskri kristni til íslenzkra kristniboösvina
Ato Asfaw Kelbero kom hingað til lands að-
faranótt 21. ágúst s.l. Hann er fyrsti Eþíópíu-
maðurinn, sem heimscekir íslenzka kristniboðs-
vini. Undanfarna þrjá mánuði hafði hann dvalið
í Noregi, en kom hér við á leið sinni til Banda-
rikjanna, þar sem hann mun stunda framhalds-
nám í guðfrœði. Verður það að minnsta kosti
eins árs nám.
Asfaw er ekki Konsómaður. Hann er af Kam-
bata-œttflokki, en hann hefur verið starfsmaður
kristniboðsins lengi og m. a. dvalið í Konsó mörg
ár. Hann var fyrst barnákennari við skólann á
kristniboðsstöðinni þar, en var síðan kostaður
af íslenzka kristniboðinu til framháldsnáms við
biblíuskóla og safnaðarforstöðumannsskólann.
Síðan kom hann aftur til Konsó og var þá ráð-
inn kennari við 'námskeið, sem háldin voru m. a.
fyrir skírnþega. Reyndist hann ágœtavel í starfi
sínu. Alls mun hann hafa starfað 6 ár fyrir ísl.
kristniboðið, en verið 11 ár álls í Konsó.
Þegar lestrarkennstuherferð var hafin í um-
dœminu, þar sem kristniboðsstöðvarnar í Gídole
og Konsó eru, var Asfaw ráðinn forstöðumaður
þeirrar kennsluherferðar og reyndist þar einnig
vel. Hann var annar tveggja, er til greina komu
sem fyrsti prestur innlenda safnaðarins í Konsó.
Sjálfur segist hann frekar hafa haft hug á að ger-
ast kennari við biblíuskólann í Irgálem, og það
hefur hann verið undanfarin ár. Jafnframt kenn-
arastörfum við skólann, hefur hann gegnt marg-
háttuðum störfum fyrir kirkjuna þar, m. a. ver-
ið ritari umdæmisstjórnarinnar, veitt œskulýðs-
starfi safnaðari'ns forstöðu o. fl.
Meðan Asfaiv dvaldi hér á landi, bjó hann hjá
þeim hjónum frú Kristínu Guðleifsdóttur og séra
Felix Ólafssyni, en þeim kynntist hann, er þau
störfuðu í Eþiópíu. Asfaw tálaði á tveim sam-
komum í Reykjavík og Akureyri og einni sam-
komu á Akranesi. Til Vestmannaeyja fór hann
einnig og talaði þar á samkomu og varð nokkur
röskun á ferðaáœtlun hans vegna þess, að þar
varð hann veðurtepptur í tvo daga.
Heimsókn Asfaw varð kristniboðsvinum til
mikillar gleði. Var mjög ánœgjulegt að sjá og
heyra þennan fyrsta fulltrúa innlenda safnaðar-
ins á starfssvœði kristniboðsins í Eþíópíu. Auð-
fundið var, hve þakklátur hann var fyrir þá að-
stoð, sem hann og fleiri lanclar hans hafa notið
frá íslenzkum kristniboðum og kristniboðsvinum.
Þá var og skemmtilegt að sjá gleði þá og kœr-
leik, sem lesa rnátti úr svip margra kristniboðs-
vinanna, er þeir heilsuðu þessum fulltrúa eþí-
ópskrar kristni.
Von er um, að Asfaw komi hér aftur við, er
hann verður á heimleið, að ári liðnu. Ef af því
verður, verður það enn styttri heimsókn en nú
var. Að þessu sinni staðnæmdist hann í tólf daga,
en þá yrði aðeins um tveggja til þriggja daga
dvöl að rœða, ef af yrði.
Beztu óskir og fyrirbœnir fylgja honum héðan.
Á þessum sex samkomum, sem hann tálaði á,
gáfust kristniboðinu um 50.000 krónur í samskot.
AltSSKYIlMA
frá
Konsó
Ársskýrsla Gísla Arnkelsson-
ar, kristniboða, barst hingað
til lands fyrir nær hálfu ári.
Hún var síðan lánuð til afnota
á kristniboðsfundi og varð fyrir
bragðið utanveltu svo lengi, að
hún birtist ekki fyrr en nú, er
uppgötvazt hafði, að hún hafði
aldrei í blaðinu birzt. Eru bæði
hann og lesendur beðnir velvirð-
ingar á þessum leiðu mistökum.
B.E.
Það er vani margra að líta
til baka um áramót og virða
fyrir sér liðna tíð, sem aldrei
kemur til baka. Oft vakna þá
minningar, sem vekja meiri
sársauka en gleði. Veikleiki
12 B Jí A R M I