Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1977, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.11.1977, Blaðsíða 2
GYLFI SVAVARSSON, íorstöðumaður: Kœrleikurinn ergjöfGuðs Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmann- legir, verið styrkir. Allt hjá yður sé í kærleika gjört. — I. Kor. 16,13—14. Ef við lítum í kringum okkur í heiminum í dag, sjáum við ekki mikinn kærleika. Hvarvetna blasir við hið gagnstæða; öfund, van- traust, hatur, vanþakklæti, ósann- girni, óþarfa viðkvæmni fyrir sjálf- um sér og fleira. í fjölmiðlum ber mest á fréttum af alls kyns óhugnaði, en það, sem betur er gert, er falið og því lítill gaumur gefinn. Fyrir nokkrum árum bar mikið á hreyfingu, sem hafði að leiðar- ljósi orðin „love and peace“, ást og friður. Það ber þó ekki mikið á þessari hreyfingu í dag. Að vísu skjóta upp kollinum menn, sem hrópa friður, friður, en sá friður er sjaldnast nema yfirvarp, hjúp- ur, sem breiða skal yfir ófriðinn og fela hann. Þau verk, sem unnin eru í nafni mannúðar, eru sjaldan hátt skrifuð í fréttum fjölmiðla. Eitt af táknum um endurkomu Jesú Krists er, að kærleikur mann- anna muni þverra. Itínisyíirlit Sunnudagurinn ................... 1 Kærleikurinn er gjöf Guðs........ 2 Jesús gefur frið................. 2 Bænasamkomurnar ................. 2 Vorblær lék um Kolme ............ 3 Frá starfinu .................... 4 Nokkur orð um Kenýu.............. 6 Gjafir........................... V Hjónaskilnaður .................. 8 Um víða veröld ......... 3, 5, 11, 14 Talað og ritað.................. 16 * Út koma 12 tölublöð á ári, 1—2 tbi. í senn. Ritstjóri Gunnar Sigurjónsson. Afgr. Amtmannsstig 2B, 121 Reykja- vík. Pósthólf 651. Símar 17536 og 13437. Árgjald kr. 800.00. Gjalddagi 1. apríl. Prentað i Prentsm. Leiftri hf. Heimurinn spyr: Hvað kemur Jesús þessum kærleika við? Ekki var hann upphafsmaður hans. Kon- fúsíus og fleiri spekingar hafa sagt góð og falleg órð um kærleikann, löngu fyrir daga Krists. Kristur sagðist vera ljósið, sem lýsa skuli mönnunum. Guð er kær- leikur. Jesús sýndi okkur kærleik- ann í verki. Hann læknaði og bætti mein, og það sem öllu máli skiptir, hann gaf okkur upp syndir okkar. Hann var fús til þess að ganga fyrir okkur í gegnum píslir og dauða. Það var hinn fullkomni kærleikur. .Kærleikurinn er ekki fólginn í því, sem við gerum, heldur í þvi, sem Guð gerði fyrir okkur. Hvað vill hann þá, að við gerum? Hann vill, að við reynum að endurgjalda eitthvað af þeim kærleika, sem hann hefur gefið. Hann vill, að við auðsýnum kærleika i öllu, sem við tökum okkur fyrir hendur. Ekki með augnaþjónustu eða marklausu hjali, heldur af hjarta með kær- leiksþjónustu, með því að verk okk- ar sýni það, að Guð er í þeim. Jesús vill, að við elskum hvert annað. Sú elska er fólgin í því, að við lifum i honum og biðjum hann að gefa okkur þetta kærleikshugar- far, að gefa okkur auðmýkt. Sú þjónusta kærleikans, sem Jesús vill, að við vinnum, verður ekki unnin í eigin krafti fremur enn nokkuð annað, sem við tökum okkur fyrir hendur í hans ríki, heldur í honum og fyrir hann. Önnur þjónusta er þjónkun við heiminn, hégómi, augnaþjónusta. Það þarf trú til að auðsýna kær- leika. Hann er ekki í því, sem við gerum, heldur í því, sem Guð gerði fyrir okkur. Þessi þjónusta er Guðs gjöf, kemur frá honum, er því ekki okkar verk, heldur Guðs. Guð er kærleikur, og sá, sem sýnir kær- leika eða vinnur í þessum kærleika, hann er að vinna Guðs verk, og Guð er með honum. Guð gefur, við tökum á móti. En við fáum viðbót við þessa gjöf. Ef við fáum að taka þátt í kærleiksverki sem gjöf Guðs, þá gefur Guð auk þess lofgjörð í hjarta, og við fyllumst þakklæti fyrir allt, sem hann gefur og gerir fyrir okkur. Við getum þá átt okkar þátt í því að gera umhverfi okkar já- kvæðara, glaðværara, bjartara. Þeir eru margir, sem þarfnast þess, að brosað sé til þeirra, þeim heils- að eða rabbað við þá. Hvað um eirðarlausa unglinginn, sem reikar um? Heilsar þú honum? Hvað um konuna í næstu íbúð? Brosir þú til hennar? Hvað um manninn,sem alltaf er samferða þér í strætisvagninum ? Rabbar þú við hann? Hvað um gamla fólkið, sem lítið hefur fyrir stafni? Sinnir þú því? Þökkum Drottni fyrir öll þau tækifæri, sem hann gefur okkur til að auðsýna kærleika, látum hann nota okkur, tökum á móti gjöfum hans og syngjum honum lof. Gylfi Svavarsson. Jesús gefur frið Kunnur lœknir í Kaliforníu í Bandaríkjunum liefur átt viðtöl við marga sjúklinga. Hann leggur þá alltaf fyrir þá þessa spurningu: „Ef þér œttuð Aladdín-lampa og gœtuð eignazt allt, sem þér girnt- ust, hvers munduð þér þá óska yður?“ Lœknirinn segir, oð þau þrjú ár, sem hann hafi rœtt við sjúklinga, hafi dllir nema þrír svarað: „Ég mundi óska þess, að ég œtti frið í hjarta“. Jesús á friðinn, og liann gefur frið. Hann hefur sagt: „Frið lœt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður; ekki gef ég yöur eins og heimurinn gefur“ (Jóh. )■ Enn fremur: „Þetta hef eg talað til yðar, til þess að þér hafiö frið í mér. í heiminum hafið þér þreng- ing, en verið hughraustir, eg hef sigrað heiminn“ (Jóh. 16,33). Bænasamkomurnar Nœstum allar framkvœmdir á sviði kristniboösins, sem markað hafa spor í riki Guðs, hófust í bamahópnum. Bœnasamkomurnar mátt þú sízt af öllu vanrækja, ef þú vilt, aö Guð noti líf þitt. Jonathan McRostie. 2

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.