Bjarmi - 01.11.1977, Side 11
var háttað í andlegum efnum.
Mér tókst að fara í burtu í nokkra
daga, og á írídögum í þeirri viku
áttaði ég mig til fulls á því, hvar
j ég var á vegi staddur.
Heimilið, sem ég unni, var í
rúst. Börnin mín tvö bjuggu við
öryggisleysi. Daglegt líf mitt
með Guði var skrípaleikur. Ég
vitnaði aldrei um hann. Það var
úr sögunni, að ég verði nokkrum
tíma eða kröftum til starfa í
neinum kristilegum samtökum.
Ég var andlega gjaldþrota.
Það var eins og Guð væri að
hvetja mig til þess að fara al-
gjörlega leiðar minnar — eða
koma nú aftur til sín og lifa í
raun og sannleika í hlýðni, láta
hann skipa æðsta sessinn í einu
og ötlu.
KRAFTAVERK
Ég lofa Guð fyrir það, að ég
tók ákvörðun um að snúa mér
til hans. Jafnskjótt og ég kom
til hans, í iðrun og hlýðni, urðu
bæði bænin og Biblían lifandi.
Ég fann, að Guð var að gera
kraftaverk. Að minnsta kosti virt-
ist mér það vera kraftaverk.
Eitt af því dásamlegasta, sem
ég hef lært. er það, að Guð ,,gef-
ur okkur aldrei upp á bátinn".
Hann er sífellt að kalla okkur
aftur til sín, frá þeim stað, þar
sem við erum, hvar sem sá stað-
ur kann að vera. Skiptir þá engu
máli, hversu illa kann að vera
komið fyrir okkur. Endurreisnin
getur tekið þeim mun lengri tíma,
sem skaðinn er meiri, en enginn
er of langt frá Guði til þess að
snúa við.
H-JÓNABANDIÐ
ER MEILAGT
Margir kristnir menn hafa
áhyggjur af því, hversu virðing-
in fyrir helgi hjónabandsins íer
þverrandi. Og þeir leggja áherzlu
á, að trúað fólk megi ekki láta
mótast af þeirri skoðun vantrúar-
manna, að skilnaður sé ,,þægi-
legasta leiðin“ til að leysa vanda-
mál misheppnaðs hjónabands.
Skilnaður er ekki aðeins
hörmuleg málalok við sérstakar
aðstcoður, ekki aðeins ein lausn,
sem velja má af mörgum. Nei,
skilnaður er síðasta og ægileg-
asta skrefið, sem stigið er, þegar
allt annað hefur brugðizt, —
skref, sem menn skyldu i lengstu
lög forðast að stíga.
„WITTE KAT“
Hollenzkar
úrvals rafhlööur
BLÁ:
Fyiir allar
gerðir af
útvarpstækjum
REYNIÐ hollenzku rafhlöðurnar
með hvíta kettinum
@ „Það er ekki út í hött
að kaupa hvítan kött”
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
SIGIJRVER SF. Umboös- og heildverzlun
Óðinsgötu 5, Reykjavík, símar 15277 - 14268
JAPAN:
Von í stað
örvmntingar
t Japan er útvarpað lcristilegri
dagskró, sem er kölluð „Ljós fyrir
hjartað". Margir hlustendur senda
aðstandendum útvarpsins bréf.
Rótiaus og friðvana stúdent skrif-
ar d þessa leið:
„Dag nokkurn fór ég að hlusta
af tilviljun ó þóttinn „Ljós fyrir
hjartcð". F.g kveið mjög fyrir prófi,
sem ég ótti í vœndum, og ég var
að hugleiða að farga sjólfum mér.
En þegar ég heyrði boðskapinn í
útvarpinu, fann ég í hjarta minu,
að þetta, sem flutt var úr Biblí-
unni, vœri satt. Mér hafði virzt
lífið snautt og leiðiniegt, en nú
öðlaðist ég lifandi von. £g þoldi
ekki nolckra manneskju í kringum
mig og gct hvergi fundið sólu
minni frið, en nú trúi ég ó Krist
og hef ókveðið að fylgja honum."
Það eru lútherskir menn, sem
standa að þessum útvarpssending-
um, og heyrist í stöðinni langt út
fyrir strendur Japans. Á eyju einni
í Indlondshafi er „nýlenda" 1500
holdsveikra manna. Þar hlusta
hundruð manna ó útvarpsþóttinn,
og hafa margir þeirra tekið trúna
á Jesúm Krist og orðið nýir menn.
Kristniboði segir fró konu nolckurri,
sem gat ekki hreyft hendurnar,
en hún kveikti á útvarpinu með
mur.ninum til þess að hlusta ó
„Ljós fyrir hjartað". Nú á hún lif-
andi trú á Drottin. „Ég minnist
orðsins, sem segir, að Guð hafi út-
valið það, sem ekkert er", segir
kristniboðinn.
„Það var stórkostlegt að hlusta á
gleðiríkan vitnisburð þeirra", segir
þessi kristniboði. Margir holds-
veikir menn ó eyjunni biðja fyrir
þessum útvarpssendingum og
styrkja þœr með gjöfum sínum.
TYRKLAND:
Hótanir um
sprcng jntilræði
Undanfarið hafa streymt inn
margar hótanir gegn starfsmönn-
um Sameinuðu biblíufélaganna í
Istanbul i Tyrklandi.
— Við höfum fengið tilkynningu
um, að framkvœmdastjóranum í
Tyrkneska biblíufélaginu hafi ver-
ið hótað þvi, að sprengjum verði
varpað að heimili hans og að sýru
verði skvett í andlit konu hans,
ef útstillingargluggar í húsi Biblíu-
félagsins verði ekki tœmdir og allri
dreifingu Biblíunnar í landinu verði
hœtt, segir Birger Mathisen í
Norska biblíufélaginu.
Lögreglunni i Istanbul hefur ekki
tekizt hingað til að hafa uppi ó
þeim, sem hringja nœr því dag-
lega með hótunum gegn Biblíu-
félaginu.
— Þó cið kristindómur eigi rœt-
ur í Tyrklandi allt fró fyrstu öld-
um kristninnar, er meiri hluti íbú-
anna múhameðstrúar, og sumir
þeirra eru mjög árdsargjornir gegn
kristinni kirkju og kristilegum fé-
lögum, segir Birger Mathisen.
11