Bjarmi - 01.04.1978, Qupperneq 11
Kristniboðarnir til
Eþíópíu og Kenýu
Gísli Arnkelsson, formaður Sam-
bands ísl. kristniboðsfélaga ritaði
kristniboðsfélögum og flokkum hér
á landi bréf, sem dagsett er 31.
marz, í tilefni af því, að ástandið
í Eþíópíu hefur batnað. Ritstjóra
„Bjarma“ þótti rétt að fá leyfi til
þess að birta bréfið, til þess að
fleiri kristniboðsvinir kynntust
efni þess. Fer meginefni þess hér
á eftir:
Kœru lcristniboösvinir.
Svo sem mörgum er kunnugt,
barst stjórn S.Í.K. fyrir stuttu
skeyti frá G. Vinskei, Afríkuritara
Norska Lútherska Kristniboðssam-
bandsins, þess efnis, að ástandið í
Eþíórpíu hefur batnað það mikið,
að stjórn N.L.M. hefði ákveðið aö
senda kristniboðafjölskyldur til
starfa þar í landi að nýju. Mið-
vikudaginn 29. þ.m. hringdi ég til
Oslóar og fékk nánari upplýsingar
hjá Vinskei. Eftir þessar viðræð-
ur er Ijóst, að Jónas Þórisson og
fjölskylda munu halda til starfa í
Eþíópíu í byrjun maí.
Einnig rœddi ég um starfiö í
Kenýu við Vinskei. Táldi hann
dkvörðun stjórnar S.f.K. um að
Skúli Svavarsson og fjölskylda
fœru til Kenýa um mánaðamót
júlí—ágúst geta staðizt að öllu
leyti. Munu þau hjónin fyrst í
stað stunda málanám í höfuðborg-
inni, Nairobi.
Það er því Ijóst, að báðar kristni-
boðafjölskyldur okkar fara til
starfa á heiðingjaákrinum innan
skamms. Við erum þakklát kristni-
boöunum, að þeir voru tilbúnir að
fara. En fyrst og fremst þökkum
við Drottni, að hann vill leyfa ís-
lenzkum kristniboðsvinum að vera
með t þvi mikla. starfi að útbreiða
fagnaðarerindið. Postulinn sagði:
,Eg er t skuld“. Það viljum við líka
segja, sem notið höfum náðar Guðs
í Jesú Kristi um svo langan tíma.
Kostnaður við starfið á þessu ári
verður af skiljanlegum ástæðum
óvenjulega mikill. Hœgt er að
nefna, að ferðákostnaður einn mun
nálgast 2 milljónir króna. Byrj-
unarkostnaður starfsins í Kenýu
verður og állmikill, enda þótt ég
geti ekki, á þessu stigi málsins,
nefnt neinar tölur t því sambandi.
Framh. á bls. 13.
FRÁ KSF
Aðalfundur Kristilegs stúdentafé-
lags var haldinn 3. febrúar s.l. 1
stjórn félagsins voru kosin: Ragnar
Gunnarsson, formaður, Einar Guð-
mundsson, ritari, Jóhannes Tómas-
son, gjaldkeri, Svanhildur Jónsdótt-
ir, kristniboðsfulltrúi, Guðlaugur
Gunnarsson, háskólafulltrúi, Kristín
Bjarnadóttir og Magnús Kristins-
son, varamenn.
Félagið gekkst fyrir móti í Ölver
dagana 24.—26. febrúar Yfirskrift-
in var: ,,Allir eiga þar að vera eitt".
Þátttakendur voru rúmlega 30.
Fyrir síðustu jól stofnaði félagið
bókaútgáfuna Salt. Gaf hún út bók-
ina ,,Fylgsnið" eftir Corrie ten
Boom. Ætlunin er að breyta bóka-
útgáfunni Salt í hlutafélag, til þess
að unnt verði að auka bókaútgáf-
una aó einhverjum mun. — Innan
skamms kemur út bókin ,,Grund-
völlurinn er Kristur". Það er safn
þeirra erinda, sem flutt voru á ráð-
stefnu, er KFUM, KFUK, KSS, KSF
og SIK héldu i október s.l. með
sömu yfirskrift. — R.G.
KKISTNIKOÐS-
VIKV
Efnt var til kristniboðsviku i Hafnar-
firði dagana 5.—12. febrúar siðast-
liðinn. Hún hófst með guðsþjónustu
í Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn
5. febrúar, þar sem sr. Sigurður H.
Guðmundsson predikaði. Var síðan
samkoma um kvöldið í húsi KFUM
og K við Hverfisgötu og svo hvert
kvöld vikunnar. Lokasamkoman var
þó haldin í safnaðarheimili Víði-
staðasóknar í Hrafnistu, dvalar-
heimili aldraðra sjómanna i Hafnar-
firði.
Æskufólk flutti vitnisburð á kristni-
boðsvikunni, söngur var ýmiss kon-
ar auk mikils almenns söngs eins
og venja er á slikum samkomum.
Kristniboðið var að sjálfsögðu kynnt
og hugleiðing flutt á hverju kvöldi.
Þeir, sem töluðu, auk unga fólks-
ins, voru sr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup, Jónas Þ. Þórisson, Skúli
Svavarsson, Margrét Hróbjartsdótt-
ir, sr. Frank M. Halldórsson, Ingi-
björg Ingvarsdóttir, Gunnar Sigur-
jónsson, sr. Jón D. Hróbjartsson,
Gísli Arnkelsson, Katrín Guðlaugs-
dóttir og Ástráður Sigursteindórs-
son. 1 lok síðustu samkomunnar var
altarisganga, og þjónuðu að henni
sr. Sigurður H. Guðmundsson og
sr. Gunnþór Ingason. — Benedikt
Arnkelsson stjórnaði samkomunum.
Kristniboðsvikan var fremur vel
sótt. 1 samskot til kristniboðsins
komu um 125 þúsund krónur.
FRÁ STARFINU
„ÞEKKIR Þt GIJO?”
Æskulýðskvöld með ofangreindri
yfirskrift voru haldin í Laugarnes-
kirkju í Reykjavík 15.—19. febrúar
s.l. Voru sérstök hugleiðingarefni á
hverri samkomu: ,,Guð er heilagur",
,,Guð er kærleikur", ,,Guð er al-
máttugur", ,,Guð er frelsari", ,,Guð
er huggari".
Ræðumenn voru Stína Gísladóttir,
sr. Gísli Jónasson, Sigurður Páls-
son, Gísli H. Friðgeirsson og sr.
Jónas Gíslason. — Ungt fólk úr
Reykjavik og af Akranesi lék á
hljóðfæri, söng og vitnaði.
Það voru KFUM og KFUK í Reykja-
vík, sem stóðu að æskulýðskvöld-
unum ásamt sóknarprestinum í
Laugarnesi, sr. Jóni Dalbú Hró-
bjartssyni, og stjórnaði hann sam-
komunum. Voru þær vel sóttar.
TIL EYJA
Jónas Þ. Þórisson, kristniboði, tal-
aði á samkomum, biblíulestrum og
barnafundum í Vestmannaeyjum
dagana 17.—27. febrúar síðastl.
VEGIJKIM
Hin árlega vika unglingadeilda
KFUM og K var haldin í húsi fé-
laganna við Amtmannsstíg dagana
20.—25. febrúar, frá mánudegi til
laugardags, á hverju kvöldi kl. 8,30.
Dagskrá var fjölbreytt, mikill söng-
ur og hljóðfærasláttur. Gunnar Sig-
urjónsson hafði stuttan bibliulestur
í upphafi hverrar samkomu út frá
megin ihugunarefni vikunnar, en
yfirskrift hennar var ,,Vegurinn".
Á miðhluta hverrar samkomu var
ýmislegt til fræðslu og uppbygg-
ingar, t.d. myndasýningar, helgileik-
ur, frásagnir o.þ.u.l. Sveitastjórar
i unglingadeildum félaganna end-
uðu með hugleiðingu út frá Guðs
orði. Samkomurnar voru vel sóttar
af unglingum viðsvegar að úr bæn-
um, þar sem unglingadeildir félag-
anna starfa. — Hilmar Baldursson
stjórnaði samkomunum.
11