Bjarmi - 01.04.1978, Side 12
KENÝA:
Starfað með ýmsu móti
— Mikill hluti starfs okkar hér
er fólginn í því að selja Nýja testa-
menti, Biblíur og góðar, kristileg-
ar bækur, segir kristniboði, sem
starfar í Voí í Kenýu. — Og hér
er ritningin ódýr. Nýja testamenti
kostar nokkra tugi króna og öll
Biblían í stóru broti um 500 krón-
ur (íslenzkar).
Nú höfum við haldið samkomur
nokkra laugardaga á markaðstorg-
inu í bæ einum ekki allfjarri Voí.
Nokkrir kristnir piltar úr mennta-
skólanum hafa verið með okkur og
vitnað um frelsara sinn. Ég má til
með að segja ykkur frá því, þegar
við vorum þar síðast.
Þegar við komum til þorpsins,
ókum við um bæinn og buðum
fólki að koma á markaðinn. Úr
hátölurunum á bílþakinu hljómuðu
kristilegir söngvar á þeirra eigin
máli.
Bömin komu fyrst, en þegar á
leið, var kominn hópur af fólki
á öllum aldri. Flestir söfnuðust í
þéttan hálfhring kringum bílinn og
hlustuðu á boðskapinn, sem var
fluttur. Aðrir settust niður í litl-
um hópum skammt frá, en hátal-
aramir bám orðið um sáluhjálp
og eilíft líf í Jesú Kristi einnig til
þeima — og þeir hlustuðu.
í lok samkomunnar réttu fjórir
upp hönd sína, þegar menn voru
spurðir að því, hvort þeir vildu
gefa sig Jesú á vald.
Að samkomu lokinni var bóka-
kassinn tekinn fram. Konur og
karlar þyrptust að og spurðu um
verð á Biblíum og Nýja testament-
um. Svo var leitað í vösum og pen-
ingar taldir.
Margir höfðu ekki nóga smápen-
inga meðferðis til þess að kaupa
Nýja testamenti, en fyrir nokkrar
krónur gátu þeir fengið sér eitt
af guðspjöllunum. Þeir héldu glað-
ir heim með bókina í hendinni.
Þeir, sem höfðu ekkert til að
kaupa fyrir, fengu smárit. Það
Frá Jóhannesi Ólafssyni
Þegar þetta blað var að fara í prent-
un, barst bréf til íslenzkra kristniboðs-
vina frá Jóhannesi Ólafssyni, lækni í
Eþíópíu. Bréfið verður birt í næsta
tölublaði Bjarma.
þykir mikið happ að fá smárit, og
þegar við fórum leiðar okkar frá
markaðstorginu, stóð fólk eftir og
las smáritin.
Við vitum af fyrri reynslu, að
þegar fólk hefur lesið smáritin, fer
það með þau heim og hengir þau
upp á moldarvegginn í húsinu —
og þá geta aðrir líka komið og
lesið.
Já, hið ritaða orð nær langt. Og
með þessum smáritum getur Guð
talað til margra manna.
Sér þú tækifærin?
Þetta segir Larry Flynt, sem hef-
ur verið einn af alræmdustu klám-
ritaútgefendum Bandaríkjanna. —
Tímarit, sem hann hefur gefið út
með grófum klámmyndum, hefur
komið út í 1,9 milljón eintökum.
Nú á að breyta forlaginu, þar
sem 400 manns störfuðu, í stofn-
un, sem ekki er starfrækt í gróða-
skyni, til dreifingar á kristilegum
blöðum og bókmenntum.
— Mig langar til þess að biðja
sérhverja konu í Ameríku afsök-
unar, sagði Flynt, þegar hann vitn-
aði fyrir nokkru í kirkju í Houston,
en þangað var hann kominn til
fundar við konurnar í The National
Women’s Conference (Þjóðarráð-
stefnu kvenna).
Það var trúboðinn Ruth Carter
Stapleton, sem leiddi Flynt til
Krists, en hún er systir Carters
Bandaríkjaforseta.
BANDARÍKIN:
Dexlt um sambúð
Fyrir nokkru gat aS lesa í út-
lendum blöðum, aS í uppsiglingu
vœru málaferli í St. Paul í Minne-
sóta. Mannréttindanefnd í Minne-
sóta hefur kœrt húseigendur fyrir
að vilja ekki leigja ógiftu pari
húsnœði.
Þeir, sem eru ákœrSir, eru Gyð-
ingur og kaþólskur maður. J>eir
bera því við, að það brjóti í bága
við trú þeirra að leigja ógiftu fólki,
sem býr saman, húsnœði sitt.
En samkvœmt lögunum má ekki
taka tillit til, hvort fólk er gift
eða ógiít. Á rétturinn nú að úr-
skurða, hvort þetta eigi líka við
ógift fólk, sem býr saman.
Þeir, sem höfða málið, eru 24 ára
gamall maður og 19 ára sambýlis-
kona hans.
— Drottinn hlytur að hafa kom-
ið inn í líf þitt, en þar með hurfu
líka 20 milljón dollarar, sagði eig-
inkona Flynts, þegar hún frétti,
hvað gerzt hafði.
En Flynt segist ekki vera óró-
legur vegna peninganna eða fram-
tíðarinnar.
— Sá sterkari er okkar megin,
segir hann.
Afturhvarf Flynts hefur vakið
margar spumingar. Sumir vilja
bíða og sjá, hvemig gengur, áður
en þeir trúa, að raunveruleg sinna-
skipti hafi átt sér stað hjá þess-
um manni.
Hafi hann í raun og veru frels-
azt, er þetta eitt merkilegasta
afturhvarfið, sem átt hefur sér
stað, síðan Sál frá Tarsus varð
kristinn, álítur tímaritið Time,
sem birti þessa frétt í desember
síðastliðnum.
------------------------------------------------------------^
Sorpritaútgefandi tekur sinnaskiptum
— Fólk heldur ef til vill, að ég sé orðinn geggjaður.
En það, sem gerzt hefur, er það, að ég hef frelsazt.
Það er alls ekki um það að ræða, að ég vilji vekja á
mér athygli.
— Eg hef beðið Guð um fyrirgefningu á öllu, sem ég
hef gert og váldið hefur mönnum tjóni. Ég var kom-
inn til botns í spillingardlkinu. Nú er aðeins einn
vegur fyrir mig, og hann liggur upp á við.
12