Bjarmi - 01.04.1978, Side 13
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON:
KÆNSKA í NOTKUN FJÁRMUNA
Gjöriö yöur vini meö mammón
ranglœtisins (Lúk. 16,9).
Þér getur fundizt fremur ósenni-
legt, að böm þessa heims séu
kænni en börn ljóssins. Þó hlýtur
því að vera svo farið, þar sem
Drottinn segir það, og hann einn
þekkir hjörtu allra og veit, hvað
með manninum býr.
Reynslan staðfestir einnig orð
Drottins áþreifanlega.
„Nú dettur mér í hug, hvað ég
skal gjöra,“ sagði óráðvandi ráðs-
maðurinn í öngum sínum. Hann
var fljótur að ákveða sig og fram-
kvæma, afla sér velvildar og vina,
búa vel í haginn fyrir sjálfan sig
með lymsku sinni og ótrúmennsku.
Börn þessa heims reynast vera
kæn í því að sjá fyrir sér með sín-
um ráðum og á sinn hátt, sjálfra
sín vegna, og það þótt á annarra
kostnað sé og öðrum til meins og
með illu og hjartalausu framferði
í garð velunnara. Þau eru vakandi
og iðjusöm í öllu, sem kemur þeim
sjálfum vel og bætir þeirra hag,
ósérhlífin og áhugasöm.
Hvað dettur mér í hug, og hvað
geri ég, sem af óverðskuldaðri náð
Guðs er kallaður með gleðiboð-
skapnum til að vera barn ljóssins,
tendrað af honum, sem er ljós
heimsins, sett til að láta ljósið mitt
skína samferðamönnum mínum?
Lýsi ég fyrir hann, sem dó mín
vegna á Golgata? Gleð ég þá, sem
hann dó fyrir?
Gjörið yður vini með mammón
ranglætisins, segir hann.
Hann vill leysa okkur frá öllum
BÆN ER AÐ BÍÐA
Bœn er eins mikiö aö hlusta á
rödd fööurins og bíöa eftir blessun
hans eins og aö tala viö hann.
Olfert Ricard.
ÁHYGGJURNAR
Danski heimspekingurinn Sören
Kierkegaard var einu sinni aö tala
viö konu, sem leiö illa út af öllum
áhyggjum daglega lífsins.
„Hvort er dýrmœtara, sólin eöa
skildingur?“ spuröi Kierkegaard.
,rAuövitaö sólin,“ anzaöi konan.
mammónsþrældómi, svo að við lát-
um ekki sjálfselsku ráða í notkun
lífsgæðanna, sem hann hefur látið
okkur hlotnast af náð sinni og
gæzku. Allt slíkt er ranglátt, setur
ranglætisnafnið á eigur okkar og
gerir okkur sjálfa að ranglátum
ráðsmönnum.
Hinum ríka húsbónda er mikið
í mun að hvetja okkur til þess að
gera það, sem við eigum engin
,Já, ég geri lika ráö fyrir því,
aö svo sé. En takiö þennan sMld-
ing og lialdiö honum fyrir auga
yöar, svo aö þér sjáiö ekki sólina.“
Konan geröi þetta og varö aö
viöurkenna, aö skildingurinn
skyggöi á sólina.
„En er þetta ekki einmitt þaö,
sem viö get'um svo oft? Viö lát-
um léttvœgar áhyggjur skyggja á
hamingju og gleöi lífsins. Reynið
næst aö hugsa sem svo: Ætli þetta
sé ekki skildingur, sem byrgir fyrir
sólina, svo aö ég sjái hana ekkA?“
hyggindi, löngun, trú eða vilja til:
að sleppa krampakenndu taki okk-
ar á hinum ómissandi og kæra
mammón, mikilsmetnum auðæfum
og velmegun, og láta aðra njóta
gæðanna með okkur og gera það
með gleði og með eftirvæntingu
þess, að fá að njóta ríkulegri fagn-
aðar í eilífum tjaldbúðum hans.
Þú tapar engu með því að láta
leiðast af orði Drottins þíns og
frelsara. Þú getur gengið öruggur
að verki. Þér verður að orðum
hans. Vinirnir bíða þín, þekktir og
óþekktir. Því, sem þú gefur í nafni
hans, er ekki sóað til einskis. Miklu
fremur má líkja því við brauðið,
sem varpað er út á vatnið og finnst
aftur, þegar margir dagar eru um
liðnir (Préd. 11,1).
Það er ætíð mikil blessun að eiga
eitthvað gott í vændum, mikla
gleði, góða vini. En það, sem er í
vændum í tjaldbúðunum eilífu, er
öllu meira og óverðskulduð náð,
áunnin okkur til handa af hon-
um, sem varð vinafár og yfirgef-
inn okkar vegna, til þess að við
yrðum aldrei vinalausir, hvorki
þessa heims né annars.
í fylgd með honum verður þú
ráðvandur ráðsmaður, og þér verð-
ur Ijúft að hlýða orðum hans og
horfir ekki í gjafirnar, sem þú
gefur til útbreiðslu fagnaðarerind-
isins. Þú getur ekki gleymt nein-
um, sem er vonlaus og guðvana,
hversu fjarri sem hann er. Hann
er samarfi þinn, sem þú ert í skuld
við.
Siguröur Þorsteinsson.
Krisiniboðamir
íil Eþíópíu . . .
Framh. af bls. 11.
Ég trúi því og treysti, aö kristni-
boösvinir, nú sem fyrr, umvefji
starfiö í bœnum sínum og leggi þaö
af mörkum, sem Drottinn minnir
á hverju sinni . . .
Fyrir liönd stjórnar S.f.K. sendi
ég öllum kristniboðsvinum beztu
kveöjur og þakklœti.
Gísli Amkelsson.
13