Bjarmi - 01.04.1978, Qupperneq 16
TAIVAN:
Verkefnin kalla
Kristniboði ó Taivan (Formósu)
segir svo fró:
— Þrír afbrotamenn voru teknir
af lífi nýlega hér á eynni. Hétt
fyrir aftökuna voru þeir sýndir í
sjónvarpinu. Þeir voru reyrðir
böndum, svo að þeir gátu ekki
hreyft handleggina. Andlitsdrœtt-
irnir báru merki um ótta, örvœnt-
ingu og vonleysi. Að kínverskum
sið fengu þeir lögg af víni og
kjúkling að borða í síðasta sinn.
Síðan voru þeir leiddir til aftöku-
staðarins og skotnir.
Einn mannanna hafði ritað konu
sinni bréf skömmu fyrir dauða
sinn, þar sem hann iðraðist at-
hœfis síns og vonaði, að hún gœti
alið börnin upp og kennt þeim að
hugga anda hans.
Það var hörmulegt að lesa þetta.
Ef til vill höfðu þeir aldrei heyrt
nafn Jesú nefnt, hann, sem kom
til að frelsa syndara, hann, sem
þjáðist á krossinum vegna allra,
líka vegna þeirra, en kannski vissu
þeir það ekki.
Það er of seint að gera neitt
fyrir þessa þrjá menn, en þeir eru
margir enn hér á Taivan, sem
þekkja Jesúm ekki. fbúarnir eru
rúmlega 16 milljónir. Einungis 600
þúsund eða þar um bil eru kristnir,
og eru þá taldir bœði kaþólskir og
mótmœlendur. Þetta eru aðeins
f jórir af hundraði. Hér er þvi margt
ógert enn. En hér eru opnar dyr.
HOLLAND:
Meðal Kínveria
f Amsterdam í Hollandi eiga 15
þúsund Kínverjar heima. Meðal
þeirra hefur nú verið stofnaður
kristinn söfnuður. Kristniboðssam-
tök, sem starfa sérstaklega meöal
Kínverja í Evrópu, sendu séra
Frank Cheung til borgarinnar fyrir
þremur árum. Áður en Cheung
varð kristniboði, rak hann kín-
verska veitingastofu. Nú kemur
það sér vel í starfi hans, því að
flestir Kínverjar í Amsterdam
vinna í kinverskum veitingastof-
um.
RÚSSLAND:
Byrlað eiftur
Rússneski presturinn Davið
Klassen á nú heima í Vestur-
Þýzkalandi. Fyrir nokkru fékk
hann segulbandsspólu frá Lýdíu
Vins, móður prestsins Georgij Vins,
sem afplánar tíu ára refsingu
vegna trúar sinnar. Á segulband-
inu segir Lýdía frá því, að rúss-
neska Ieynilögreglan KGB hafi
byrjað nýja aðferð til þess að
kveða niður kristna menn. At-
hafnasömum, kristnum mönnum
er byrlaö eitur, sem vinnur smám
saman á þeim. Vonar Lýdía, að al-
menningur á Vesturlöndum veiti
þessu athygli og láti í ljós andúð
sína. Klassen skýrði frá þessu í
viðtali við sœnska blaðið Hemmets
Van.
ENGLAND:
Vín og fósftur
Böm mjög vínhneigðra kvenna
em svo drukkin, þegar þau fœð-
ast, að lœknirinn getur fundið vin-
lyktina úr vitum þeirra, þegar þau
fara að anda. Vínið í naflastrengn-
um er helmingi meira en hámark
vínanda, sem ökureglur gera ráð
fyrir, að finnast megi hjá þeim,
er stjómar bifreið. Norskt blað
birtir þessar óhugnanlegu fréttir úr
enska lœknaritinu Puls. Er þar
sagt frá niðurstöðu rannsóknar um
þessi efni í Bandaríkjunum og
FrakklandL Niu af hverjum tíu
bömum, sem drykkjusjúkar konur
eignast, skaðast á geösmunum.
Sum fœðast með galla í hjarta eða
aðra annmarka.
VÍETNAM:
Neyddar ftil að
gifftasft
Kristniboðsblaðið Útsýn hefur
það eftir austurlenzku blaði, aö
kristnar stúlkur í Suður-Víetnam
séu neyddar til að giftast rauð-
liðum meðal fyrrverandi hermanna
eða kommúnistum úr flokki Viet-
kong-manna, hvort sem þeim þyk-
ir vœnt um mennina eða ekki.
Séra Tran Quoc Phu hefur lagt
allt annað starf á hilluna og ein-
beitir sér að því að halda nám-
skeið til þess að veita ungu,
kristnu fólki sem bezta undirstöðu-
þekkingu í kristnum frœðum. Aðrir
kristnir leiðtogar hafa hvatt 15 og
16 ára gamlar kristnar stúlkur til
að giftast kristnum piltum sem
fyrst, svo að þœr komist hjá
þvingunarhjónaböndum kommún-
ista. Yfirvöld hafa gagnrýnt þessa
leiðtoga harðlega.
BANDARlKIN:
Ekki úr ösrk Náa
Fyrir rúmum 20 árum fannst
bjálki í fjallinu Ararat, og hefur
verið mikið rœtt um, hvort hann
gœti verið úr örk Nóa, sem frá er
sagt í Biblíunni. Nú telja frœði-
menn í Los Angeles, að fullyrða
megi, að sú niðurstaða, sem enskir
vísindamenn komust að árið 1970,
sé rétt, þ.e. að tréð sé um 1200
ára gamalt, eða frá því um 700
e. Kr., og sé því ekki úr örk Nóa.
NOREGUR:
Trúin lælmar
Fyrir nokkru risu deilur um það
í Osló, hvort borgin œtti að veita
Ten-Center, sem er kristileg stofn-
un til hjálpar eiturlyfjasjúkling-
um, fjárhagsaðstoð. Sumir Norð-
menn vilja ekki vita af neinu
starfi, sem reist sé á ákveönu lífs-
viðhorfi.
Varaborgarstjóri Oslóborgar, Per
Höybráten, hefur mœlt eindregið
með því, að stofnun þessi fái
stuðning. Hefur hann meðal ann-
ars bent á ummœli sœnska dós-
entsins Nils Bejerot, sem er heims-
kunnur sérfrœðingur varðandi
ávanalyf og starfar við Karolinska
Institutet í Stokkhólmi. Orð hans
birtast í sœnska blaðinu Dagen:
„Meðferð með trú er bezta lœkn-
ingaaðferð, sem til er. Trúaður
maður sigrast á mörgum erfiðleik-
um, sem vantrúaður maður rœður
ekki við. Trúuðum manni eykst
sálarstyrkur, í honum gœtir já-
kvœðra áhrifa eins og heiðarleika,
skyldutilfinningar o.s.frv. Cg er
gamall guðleysingi, og ég gledd-
ist yfir því, ef allir menn frelsuð-
ust, segir Bejerot, er hann hafði
heimsótt Nalen, sem er rekinn af
Lewi Petrus stofnuninni. Enginn
lœknir í viðri veröld hefði getað
séð, að þetta rólega, friðsama,
staðfasta fólk, sem ég talaði við,
var áður illa farnir eiturlyfjasjúkl-
ingar og ofdrykkjumenn'.
ÍSRAEL:
Þörf vilEiisburðar
Fimm þátttakendur í bandarisku
hreyfingunni „Gyðinga fyrir Krist"
hafa kynnt sér stöðu kristindóms-
ins í ísrael. Þeir telja, aö í land-
inu séu varla fleiri en tvö hundruð
þekktir, kristnir menn. Segja þeir,
að mikil þörf sé á því, að kristnir
innflytjendur af Gyðingaœttum
veiti frœðslu í Bibliunni, að þeir
geti skrifazt á við kristna menn í
öðrum löndum, að settar verði á
fót fleiri kristilegar bókaverzlanir
og að sífellt sé beöið fyrir hinum
kristnu í Hebreum í Landinu helga.
16 BJARMI