Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.1983, Side 5

Bjarmi - 01.07.1983, Side 5
Minning: Ebenezer Ebenezersson, vélstjóri F. 2. apríl 1895 - D. 15. maí 1983 Hann Ebenezer er kominn heim. Hann hlakkaði til þeirrar stundar er hann fengi að vera með lausn- ara sínum á ljóssins landi, — í dýrð sem enginn enn fær lýst, — eins og segir m.a. í söng eftir H. L. Hastings, og Ebenezer hefur þýtt. Af kynnum mínum af Ebenezer fannst mér sem himinninn væri takmark hans. Tilhlökkunin var einlæg líkt og hjá börnum sem bíða eftir jólunum, þau vita að jólin koma með uppljómuðu um- hverfi, gleði og nýjum klæðnaði. Nýi klæðnaðurinn á himni er hin hvíta skikkja, þvegin og hvítfáguð í blóði lambsins, — þess vegna eru þeir frammi fyrir hásæti Guðs og þjóna honum. (Op. 7,14—15). Eitt er víst að Ebenezer dregur ekki af sér við tilbeiðsluna og lofsönginn á himnum, honum var það eðlilegt. Öll framkoma hans í daglegu lífi sýndi að hann var fagnandi, krist- inn maður og glaður í Drottni. Ebenezer Ebenezersson fæddist á Eyrarbakka 2. apríl 1895. For- eldrar hans voru hjónin Sesselja Ólafsdóttir og Ebenezer Guð- mundsson, gullsmiður. Ebenezer ólst upp á Eyrarbakka. Hann þekkti vel daglega baráttu hins vinnandi manns. Sem drengur var hann í sveit á sumrum, aðeins 13 ára fór hann í vegavinnu, þá á sjóinn, vann við verslun og síma- vinnu. Hann fór í jámsmíðanám hjá Þorsteini Jónssyni, Vesturgötu 33 í Reykjavík og lauk því námi með góðum vitnisburði. Síðan fór hann í Vélstjóraskólann og lauk burtfararprófi þaðan árið 1921. Haustið. 1919 kvæntist hann unnustu sinni, Freyju Andrésdótt- ur, sem var fædd 28. febrúar 1895 að Dagverðarnesi í Dalasýslu. Þau voru samhent og samrýnd. Það sem þeim var sameiginlega kærast var trúin á Jesúm Krist og hans blessaða endurlausnarverk. Þau eignuðust kjördótturina Hönnu, sem þau elskuðu og virtu og tóku sem Guðs gjöf, og síðar fengu þau góðan tengdason, sem þau virtu og blessuðu. Þau nutu ástríkis og umönnunar þeirra Hönnu og Am- gríms alla tíð. Árið 1920 réðst Ebenezer til Eimskipafélags íslands og var þar um 20 ár. Eftir að hann kom í land á seinni stríðsárunum — að yfirlögðu ráði — réðst hann til vél- smiðju Héðins og starfaði þar yfir 30 ár. Þar hætti hann fyrir aldurs sakir. Húsbændum sínum bar hann gott orð. Það er lærdómsríkt að vera sam- ferða manni sem á slíka lífs- og trúarreynslu sem Ebenezer átti. Trúarsannfæring hans var byggð á orði Drottins. Hann vitnaði oft í heilaga ritningu máli sínu til stuðnings og notaði öll tækifæri til að gjöra fagnaðarerindi Guðs heyrinkunnugt. Hann stundaði kirkju sína og sótti trúfastlega aðrar kristilegar samkomur. Mér fannst líf hans í full samræmi við orð hans og talaðan vitnisburð. Hann geislaði er hann vitnaði um dýrð Drottins. Sannfæring hans var ótvíræð, karlmannleg. Hann var alltaf viss um nálægð Drott- ins. Aldrei kom ég svo heim til hans og aldrei kom hann svo á vinnustað minn, að hann segði ekki sem svo: — Við skulum tala við Drottin, eða: — Eigum við ekki að tala við Drottin og þakka hon- um. Hann var maður bænarinnar. Þannig var Drottinn Jesús, hinn lifandi, ávallt nálægur. Mér er margt í minni í sambandi við Ebenezer Ebenezersson. Eitt er þó sérstaklega ofarlega í huga mínum. Það er frásagan af Hönnu í fyrri Samúelsbók, sem honum þótti svo vænt um. Þar speglast mannleg barátta, vonbrigði, gleði, sigur og hvemig það er nauðsyn- legt að koma með allt til Drottins, treysta honum fyrir öllu og láta hann um lausnina. Ebenezer var einn af stofnend- um Kristniboðsfélags karla í Reykjavík árið 1920. Hann stund- aði það bræðrasamfélag af kost- gæfni og sérstakri alúð. Honum var umhugað að bæta úr neyð heiðninnar. Orð Jesú í Matt. 28: „Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum“, voru mikil alvara fyrir honum. Þess vegna gjörði hann það sem mögulegt var til að efla kristilegt heimastarf. Hann lét ekkert tækifæri ónotað. Hann starfaði mörg ár í sunnudagaskóla kristniboðsfélaganna í Reykjavík og var honum það einkar kært, honum þótti alla tíð vænt um börn. Síðustu árin hélt hann uppi kristilegu starfi á elliheimilinu Grund í Reykjavík. Hann var þakklátur Drottni fyrir að fá að starfa þannig í ellinni. Árið 1937 var hann kosinn í stjórn Kristniboðssambandsins og var í þeirri stjórn allt til ársins 1967 er hann baðst undan endur- kjöri, svo að yngri maður kæm- ist að. Ebenezer lést í Reykjavík 15. maí 1983. Stjórn SÍK og íslenskir kristniboðsvinir þakka Drottni Guði fyrir Ebenezer og við bless- um minningu hans og biðjum ást- vinum hans blessunar Drottins. Ingólfur A. Gissurarson. 5

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.