Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1983, Síða 22

Bjarmi - 01.07.1983, Síða 22
 Kristið uppeldi 4. Afstaðan til barnsins SigurSur Pálsson er höf- undur þessara greina. Hann er formaður KFUM í Reykjavík. Allt uppeldis- og fræðslustarf grundvallast með ein- um eða öðrum hætti á því hvaða viðhorf uppaland- inn eða fræðarinn hefur til barnsins. Þá á ég ekki við það hvort viðkomandi þyki vænt um barnið eða ekki, heldur hvernig hann svarar spurningunni: Hvað er barn og hverjir eru möguleikar þess? Ég kýs að nefna hér þrenns konar viðhorf, sem öll eru þekkt úr sögu uppeldis og menntunar. [ fyrsta lagi nefni ég það viðhorf sem lítur á barnið við fæðingu sem óskrifað blað eða ómótað efni. Sam- kvæmt þessu viðhorfi er hlutverk uppalandans þá að móta barnið frá fyrstu tíð þannig að úr verði mann- eskja með þau viðhorf, hæfni og þekkingu sem æski- leg eru talin. Barnið er því fyrst og fremst þiggjandi, meira eða minna óvirkur, sem lætur mótast. Árang- ur uppeldisins er því samkvæmt þessu algjörlega háð- ur því hvernig uppalandinn stendur sig í hlutverki mótandans. Sé þessu viðhorfi fylgt út í æsar, er fyrst og fremst spurt um það hvað sé æskileg útkoma að uppeldi loknu en síður spurt um eðli og þarfir barns- ins sjálfs. Fræðslu- eða menntastefna sem byggir á þessu viðhorfi einkennist því af mjög formföstum kennsluaðstæðum með skýrum markmiðum þar sem meira er lagt upp úr virkni kennarans en nemandans og meira lagt upp úr eðli námsefnisins en eðli barns- hugans. Miðlun þekkingar og viðhorfs skipta hér meg- inmáli. Með nokkurri einföldun má halda því fram að til skamms tíma hafi þetta viðhorf verið ríkjandi í skól- um landsins. í öðru lagi má nefna það viðhorf til barnsins, að því megi líkja við frækorn, sem hefur í sér fólgna ákveðna eiginleika og hæfni, sem komi smám saman í Ijós með vexti og þroska. Hlutverk uppalandans er því fyrst og fremst í því fólgið, að skapa barninu skilyrði til vaxtar og þroska þannig að það sem í því býr spillist ekki, heldur fái notið sín. Uppaland- inn er því ekki mótunaraðili fyrst og fremst heldur er hlutverk hans líkara hlutverki garðyrkjumannsins. Uppeldis- og kennslumarkmið eru því í þessu tilviki ekki skýrt mörkuð. Þetta viðhorf kemur skýrt fram í álitsgerð, sem Valborg Sigurðardóttir skólastjóri skil- aði til menntamálaráðuneytisins árið 1970 varðandi tilhögun náms í 6 ára deildum barnaskólanna, sem þá var verið að undirbúa. Þar segir: „Forðumst stranga og markvissa þjálfun skynfæranna. Sköpum heldur barninu fjölbreytilegt, vekjandi umhverfi, þar sem hugur barnsins og hönd nær að þroskast eftir eigin getu, frjálst og án þvingunar." Samkvæmt þessu eiga uppeldis- og námsaðstæður að vera frjálslegar. Áhugi barnsins á að ráða mestu um hvað gert er, uppalandinn/kennarinn stjórnar litlu sjálfur. Vits- munaþroskinn kemur svo að segja af sjálfu sér með aldrinum, ef umhverfið heftir barnið ekki tilfinninga- lega og félagslega. Upphaf þessarar stefnu má rekja til Frakkans Rous- seau og var síðan tekin upp af frumkvöðli forskóla- kennslunnar, F. Fröbel o.fl. Ég hygg að ekki sé út í hött að álíta að þetta viðhorf eigi sér rætur í ákveð- inni afstððu til mannsins og eðlis hans, þ.e. að maður- inn sé í eðli sínu „góöur" og þessu góða eðli sé fyrst og fremst spillt með óæskilegum umhverfisáhrifum. Bæði þessi viðhorf segja sitthvað lærdómsríkt um barnið. Á ýmsum sviðum er það ómótað efni eða óskrifað blað, sem uppalandanum er ætlaö að fara höndum um. Sömuleiðis býr sitthvað með barninu, sem þðrf er að skapa skilyrði til vaxtar og þroska. En þeir munu fáir sem álíta að með þessu sé allt sagt um barnið og hlutverk uppalandans. Það sem efst er á baugi i samtímanum á rætur að rekja til þess viðhorfs, að barnið sé allt frá fæð- ingu virkur aðili. Það er ekki eins og óvirk leirklessa sem lætur alfarið mótast að vild uppalandans, né heldur eins og tóm flaska sem lætur hella á sig. Það hefur heldur ekki sjálfkrafa í sér fólgið hvað- eina sem þarf til velfarnaðar. Það er allt frá fyrstu stundu virkur aðili, sem ekki aðeins verður fyrir áhrif- um, heldur hefur áhrif. Það lætur ekki aðeins mótast, heldur mótar umhverfi sitt. Það tekur ekki við á óvirk- an hátt, heldur vinnur úr þeim áhrifum sem það verð- ur fyrir. Þroskinn og þekkingaröflunin á sér stað í 22

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.