Bjarmi - 01.10.1985, Side 16
Bjarne E. Landro:
REY1NIÐ m
An DANA /0/ a
/ Ák
/síðasta blaði birtist fyrri hlutigrein-
arinnar „Reynið andana". Hér á eftir
fer síðari hluti greinarinnar.
2. Ýmsir mælikvarðar
A. Samanburður við orð Guðs
Alla predikun og alla kenningu á að
bera saman við orð Guðs. Það er líka
meginatriðið í vígorði siðbótarinnar:
Sola soriptura: Ritningin ein. Biblían
á að vera eini mælikvarði okkar í allri
kristilegri kenningu og breytni. Þegar
þessari reglu er beitt hljótum við að
lýsa yfir því að sérhver kenning sem
stríðir gegn Biblíunni sé röng og
fráleit.
Þetta er viðhorf Biblíunnar sjálfrar.
Hér nægir að vitna til hinna áhrifa-
miklu orða í Gal. 1,8: „En þótt
jafnvel vér eða engill frá himni færi að
boða yður annað fagnaðarerindi en
það sem vér (Páll og postularnir)
höfum boðað yður þá sé hann bölvað-
ur.“ Þannig þolir Biblían engin and-
mæli né leiðréttingu. Hún heldur því
fram að hún eigi guðdómlegt, algjört
úrskurðarvald. Hún segist vera hin
eina rétta, sanna guðsopinberun.
Áminningin í 1. Jóh. 4,1-3 er tengd
umfjöllun um falskenningar. Þar var
það kjarnaatriðið sem deilan snerist
um, hvort Guð hefði komið í holdi,
holdtekjan. Villukennendur, svo-
nefndir dóketar, neituðu því að Jesús
væri sannur maður, að Guð hefði
klæðst holdi í honum. Þeir pred-
ikuðu Krist en ekki í samræmi við
þann Krist sem postularnir boðuðu.
Biblían segir að hér sé á ferðinni
andkristileg hreyfing (1. Jóh. 4,3) því
að hér sé talað gegn vitnisburði Krists
sjálfs um sjálfan sig og vitnisburð
postulanna um hann (Lúk, 24,39 og
Jóh. 1,14).
Sumir velviljaðir kristnir menn nú
á dögum hefðu sennilega hugsað sem
svo: „Þeir nefna þó nafn Jesú og boða
Krist þrátt fyrir allt. Við verðum að
umbera þá þó að þeim sé í einhverju
áfátt og þola aðra sem eru á annarri
skoðun en við og kenna annað. Við
skulum fyrir alla muni forðast að tala
eða skrifa á móti þeim og valda
þannig úlfúð og deilum. Okkur ber að
sýna þeim kristilegan kærleika og
biðja þeim blessunar Guðs.“
Þannig verða kristileg sannindi af-
stæð en slíkt er í algjöru ósamræmi
við Biblíuna, já, stríðir gegn henni.
Sama máli gegnir um þann kristilega
kærleika sem fram kemur í slíkum
hugsunarhætti.
Kristnir menn, sem halda fast við
Biblíuna geta með engu móti umborið
og elskað það sem brýtur í bága við
Biblíuna og beðið því blessunar
Guðs. Það umburðarlyndi og sá kær-
Ieikur er að minnsta kosti ekki í
samræmi við Biblíuna heldur þvert á
móti óbiblíulegur og andstætt krist-
indómnum. Orð Guðs boðar að villu-
kennendum eigi að vísa á bug (Tít.
3,10).
Jóhannes postuli kærleikans viður-
kennir ekki alla sem nefna nafn Jesú.
Öðru nær, Krists-predikara þá sem
aðhyllast dóketisma segir hann að séu
falsspámenn sem fólk eigi ekki að
veita húsaskjól (2. Jóh. 7-11). Hann
ritar trúuðum mönnum og í raun og
veru sker hann upp herör. Af þessu
má ljóst vera að það er ekki mótsögn
að saman fari barátta og kærleikur.
Nei, sannleiksástin leiðir ætíð til bar-
áttu gegn lyginni.
Öll kenning sem stríðir gegn Biblí-
unni er af andkristilegum anda. Þess
vegna eigum við að reyna andana
með því að bera þá saman við Bibl-
íuna. Við getum verið þess fullviss, að
það sem kemur ekki heim og saman
við orð Guðs er ekki af anda Guðs,
því að andinn fylgir orðinu.
Þetta er aðferð sem allir kristnir,
trúaðir menn geta beitt þegar þeir
reyna andana. Já, Biblían gerir ráð
fyrir að þeir viðhafi að jafnaði þessa
„prófun“. „Spámenn tali tveir eða
þrír og hinir aðrir skulu dæma um“ (1 •
Kor. 14,29). „Hinir aðrir“ eru venju-
legir, kristnir menn í söfnuðinum.
Skilyrðið til þess að kunna þetta er að
menn þekki Biblíuna og lifi í henni.
Ef trúaðir menn eiga ekki rétta
þekkingu á orði Guðs og eru ekki
handgengnir því munu þeir láta hrífast
með af alls konar andlegum stefnum
nútímans. Þá er hætta á því að andi
andkrists hremmi þá en hann verkar
í kenningum sem fara á snið við
Biblíuna.
Hinum þar á móti sem er staðfastur
í orðinu og treystir því að það hafi
algjört og guðdómlegt úrskurðarvald
hættir miklu síður til að rata í villur.
Hann getur sagt með guðdómlegum
myndugleik: „Svo segir Drottinn!"
B. Gætum að ávöxtunum
Jesús hefur sjálfur bent okkur á
þessa aðferð til að fletta ofan al
falsspámönnum og villulærdómum.
„Gætið yðar fyrir falsspámönnum er
koma til yðar í sauðaklæðum en eru
16