Bjarmi - 01.10.1985, Qupperneq 19
Kristniboðið í Eþíópíu ber ávöxt:
Fleiri og fleiri trúa
Gífurlegur vöxtur á sér stað víða
innan lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu,
ekki síst í suðursýnódunni sem m.a.
kristnir menn í Avasa, Konsó og
Sollamó tilheyra. Kirkjan vinnur bæði
að útbreiðslu fagnaðarerindisins og
tekur þátt í þróunar- og hjálparstarfi.
Nefna má að á vegum suðursýn-
ódunnar sitja 6000 börn á skólabekk.
Nær 80 nemendur sækja þriggja ára
iðnskóla og 48.500 manns hafa fengið
fræðslu í iestrarskólum. Hátt á þriðja
hundrað þúsund manns naut hjúkrun-
ar á árinu sem leið. Þá er unnið að
verkefnum í landbúnaði og skógrækt.
Boðunarstarfið er að sjálfsögðu
mikilvægast. Nú eru um 220.000
manns skráðir í kristna söfnuði á
starfssvæði sýnódunnar og hefur orðið
mjög ör fjölgun á síðustu árum.
Safnaðarstarf er víða vel skipulagt.
Brýn þörf er á fræðslustarfsemi
innan safnaðanna. Sértrúarhreyfingar
hafa risið og sums staðar hefur heiðn-
um þáttum verið blandað saman við
kristna trú svo að jafnvel heilir
söfnuðir hafa leiðst afvega. Forstöðu-
menn sýnódunnar hafa mikinn hug á
að efla Biblíufræðslu meðal almenn-
ings í söfnuðunum, og hafa þeir bæði
í huga Biblíuskóla, námskeið ýmiss
konar, kristinfræðikennslu í barna-
skólunum o.s.frv.
Enn reynist sýnódunni erfitt að
standa sjálf undir starfinu fjárhags-
lega, enda nýtur hún stuðnings kristni-
boðsfélaganna. Hagur manna er
víða bágborinn og dýrtíð ríkir. Þó
vegur einnig mjög þungt að ýmsir
starfsmenn hafa hrugðist í hlutverki
sínu, verið hysknir og óheiðarlegir og
misnotað fé sem þeim var trúað fyrir.
Vegna laga sem núverandi yfirvöld í
landinu hafa sett er nær ómögulegt að
segja upp starfsmönnum, þótt þeir
séu ekki starfi sínu vaxnir eða vinni
jafnvel gegn húsbændum sínum og
því málefni sem þeir áttu að efla. Má
nærri geta hvílíkum erfiðleikum þetta
veldur kirkjunni.
Sýnódan nær yfir stórt svæði. Kom-
ið hafa fram hugmyndir um að skipta
því í tvennt og yrði fylkið Gamú Gofa
og starfssvæði þess þá sérstök sýnóda.
Þessar hugmyndir hafa fengið góðar
undirtektir og vinnur nú nefnd að því
að kanna þessi mál nánar.
Forseti lúthersku kirkjunnar í Eþí-
ópíu, Fransis Stefanos, hefur lýst
áhuga sínum á því að kirkjan stefni
markvisst að því að geta staðið á eigin
fótum.
Hann leggur einnig áherslu á að
kirkjan mennti presta og predikara
svo að hún geti annast boðun og
fræðslu í söfnuðunum, svo og að
kirkjan verði fær um að sjá ein um
skipulagsmál sín.
Fransis tekur þó fram að hann vilji
ekki að kristniboðarnir fari í burtu
heldur snúi þeir og kirkjumenn bök-
um saman við að útbreiða fagnaðarer-
indið meðal hinna mörgu þjóðflokka
í landinu.
Fyrir nokkru vék hann í ræðu að
hinu mikla neyðarástandi í Eþíópíu.
Hann sagði: „Hefur þetta dunið yfir
vegna þess að Guð fann ekki 60, 40
eða 10 réttláta? Eigum við sök á
þessu?“ Hann las Sak. 8,14-17 og
hvatti áheyrendur til að gjöra iðrun
og koma til Krists. Öll þjónusta okkar
er háð samfélaginu við Krist og hvern-
ig við breytum í daglegu lífi, sagði
Fransis.
Enn sem fyrr eru kirkjur sums
staðar lokaðar á starfssvæði lúthersku
kirkjunnar. Samt fjölgar þeim sem
játa trúna á Jesúm Krist.
Heimsókn frá Eþíópíu
Kristniboðsvinir ciga von á
góðri heimsókn frá lúthersku
kirkjunni í Eþíópíu í næsta mán-
uði. Alemú Sétta, forseti suðursý-
nódu lúthersku kirkjunnar þar
syðra, dvelst nú í Englandi við
nám í ensku. Hann hefur látið í
ljós ósk um að korna til íslands og
kynnast íslenskum kristniboðsvin-
um áður en hann snýr aftur heim.
Það hefur orðið að ráði að hann
verði hér á kristniboðsdaginn,
annan sunnudaginn í nóvember.
Gert er ráð fyrir að hann komi 7.
nóvember og dveljist hér til 12.
nóvember.
Alemú Sétta er ættaður úr fylk-
inu Sídamó í Eþíópíu. Hann var
kosinn forseti suðursynódu lúth-
ersku kirkjunnar á aðalfundi sýn-
ódunnar seint á árinu 1983. Alemú
þykir hafa góða forystuhæfileika
og hann nýtur traust meðal kristni-
boðanna.
Eþíópski gesturinn mun tala hér
á samkomum eftir því sem við
verður komið. Kristniboðsvinir
eru hvattir til að biðja fyrir heim-
sókn hans.
Alemú Sétta.
19