Bjarmi - 01.03.1987, Side 10
HVAÐ Á ÉG I SKÍRWINNI?
Kristín Sverrisdóttir:
Kristín Sverrísdóttir er kennari
við Heyrnleysingjaskóiann.
Hún er einnig formaður Hliðar-
meyja.
Hverjum kristnum einstaklingi er
hollt og gott að hugsa um þessa spurn-
ingu: Hvað á ég í skírninni? Önnur
spurning leitar einnig á hugann: Hvað
hefur Guð gefið mér í skírninni?
Ég er skírð sem barn og að sjálf-
sögðu man ég það ekki en Guð var
nálægur samkvæmt orði sínu. Jesús
bauð að skíra menn í nafni Guðs
föður, sonar og heilags anda og fræða,
kenna um allt hans ráð.
Skírnin er stórkostleg gjöf sem Guð
hefur gefið okkur. í henni sjáum við
hluta af leyndardómi Guðs, sem við
skiljum aldrei til fulls. Guð kemur til
okkar og tekur okkur að sér óverð-
skuldað. Það er mjög áþreifanlegt í
barnaskírninni.
í skírninni tók þríeinn Guð mig að
sér og gerði mig að guðsbarni, tók mig
inn í kirkju sína, gaf mér allt með sér
án þess að ég gerði mér nokkra grein
fyrir því. Frá unga aldri átti ég því láni
að fagna að heyra söguna um Jesú og
fá fræðslu. Orð trúarinnar urðu að
raunveruleika fyrir mér, þannig að
Guð tekur
mig að sér
smám saman fékk ég að sjá gjöfina,
sem veitt var og er í skírninni. Með
árunum hefur fagnaðarerindi skírnar-
innar orðið mér dýrmætara. Guð tek-
ur okkur að sér í skírninni og gerir að
sínum börnum, við verðum erfingjar
Jesú Krists fyrir trúna á hann. Guð
frelsar frá synd og dauða fyrir dauða
og upprisu sonar síns, Jesú Krists. í
skírninni var ég og þú helguð Jesú
með krossmerkinu. Við tilheyrum
honum.
Við skírnarlaugina hljóma þessi orð
úr 1. Pétursbréfi: „Lofaður sé Guð og
faðir Drottins vors Jesú Krists, sem
eftir mikilli miskunn sinni hefur
endurfætt oss til lifandi vonar fyrir
upprisu Jesú Krists frá dauðum.“
Þessi sömu orð eru einnig lesin þegar
rekunum er kastað. Þetta guðsorð
fylgir okkur frá skírn til grafar. Það
flytur sama boðskapinn á helgri skírn-
arstund og erfiðri kveðjustund dauð-
ans. Við erum lögð í hendur Guðs á
skírnarstund og þær halda okkur allt
til enda. Guð er trúfastur. Nýja testa-
mentið tekur sterkt til orða um skírn-
ina á mörgum stöðum t.d. Rómverja-
bréfið 6.4-5. „Vér erum því dánir og
greftraðir með honum í skírninni, til
þess að lifa nýju lífi, eins og Kristur
var upp vakinn frá dauðum fyrir dýrð
föðurins. Vér vitum, að vor gamli
maður var með honum krossfestur, til
þess að líkami syndarinnar skuli að
engu verða og vér ekki framar þjóna
syndinni." Daglega þarft þú og ég „að
deyða hinn gamla mann“ í okkur og
endurnýjast með Jesú Kristi. Þetta er
barátta sem aldrei tekur enda fyrr en á
himnum, en fyrirheit skírnarinnar
fylgja okkur.
Páll postuli skrifar í Galatabréfinu
3.27: „Allir þér, sem eruð skírðir til
samfélags við Krist, þér hafið íklæðst
Kristi.“ Það er gott að vita, að ég má
koma aftur og aftur til Krists, sem
íklæddi mig á skírnardegi og fá fyrir-
gefningu synda minna og fá að lifa í
náð skírnarinnar vegna föðurelsku
Guðs.
Gjöf skírnarinnar stendur öllum til
boða.
Skírnarsálmurinn „Full af gleði“
segir okkur mikið um gjöf skírnarinn-
ar.
Full afgleði yfir lífsins undri,
með eitt lítið barn í vorum höndum,
komum vér til þín sem gafst oss lífið.
Full af kvíða fyrir huldri framtíð
leggjum vér vort barn í þínar hendur.
Blessun skírnar einfœr veitt oss styrkinn.
Full af undrun erum vér þér nærri!
Þú, sem geymir dýptir allra heima,
bíður hinna smáu, — tekur mót oss.
Fyrir þig, afföðurelsku þinni,
fœðumst vér á ný til lífs í Kristi,
til hins sanna lífs í trú og trausti.
Og við takmörk tímans áfram lifa
fyrirheitin þín við skírnarfontinn,
skírnarljósið skín, þá lífið slokknar.
Meiri auð en orð vor ná að inna
öðlumst vér í skírnargáfu þinni.
Drottinn, lát ossfyllast trúargleði.
Sr. Sigurjón Guðjónsson þýddi.