Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.1987, Page 14

Bjarmi - 01.03.1987, Page 14
getum ekki annað en vitnað um hann sem er frelsari heimsins og viljum þjóna samferðarfólki okkar í kærleika Krists. Börnin sem kynnast okkur eiga þannig að kynnast kristniboði og kærleiksþjónustu. 2. Skírnarfræðsla. Nú skulum við skoða starf KFUM og K í ljósi af vitnisburði trúarinnar, eins og hann er dreginn upp hér að framan. Ég fullyrði að starf okkar líð- ur fyrir það að vera ekki nægilega meðvitað um í hvaða samhengi við erum. Spyrjum okkur á ærlegan hátt með skírnarskipunina í huga og þætti trúarinnar: Hvernig vitnisburður trú- arinnar erum við? Kennum við það sem börnin þurfa til trúar og sálu- hjálpar? Erum við hluti af samfélagi trúaðra, hinni heilögu, almennu kirkju, sem við viljum leiða börnin inn í? Eru heilindi okkar við Drottin Jesú Krist þannig að börnin laðist til að fylgja honum? Læra þau að iðka trúna sjálf og með öðrum? Lifa þau Guði til dýrðar og mönnum til blessunar? Þetta segi ég ekki til þess að draga úr starfsmönnum, síður en svo, heldur til þess að þeir prófi sig, og hinir sem standa að baki þeim sjái skyldur sínar. Ábyrgðin okkar er mikil. Hún verð- ur mér ljósari í hvert skipti sem ég er vottur að skírn í kirkjunni. Þar bætist við barn í hjörð Guðs, sem ég er skyldugur að taka þátt í að fræða, vegna þess að mér er trúað fyrir fagn- aðarerindinu. En það er ekki þung og því, þar til einstaklingurinn sjálfur getur tekið ábyrgð á því. Þannig er skírnin mér einnig áminn- ing um skyldur mínar við þá sem mér er falið að annast og skyldur mínar að lifa og viðhalda því lífi sem mér sjálf- um var gefið í skírninni, með þeim meðulum sem til þess eru ætluð. Þetta er líf í trú. í skýringum sínum á skírninni segir Lúther í „Fræðunum rneiri": „Trú mín gefur ekki skírninni gildi heldur þiggur hana.“ Og hann segir einnig: „Þess vegna ætti sérhver maður að líta á skírn sína sem daglegan klæðnað óbærileg skylda. Það er ok sem er indælt og byrði sem er létt, því að þeir sem ganga undir krossinn og fylgj a Kristi reyna það að hann ber þá á höndum sér. í því samhengi eigum við að starfa. Ef við gerum það ekki óttast ég að við missum móðinn, verkefnið verður svo yfirþyrmandi, vegna þess að við sjáum ekki þá sem eru að vinna með okkur. í öðru lagi óttast ég að starf okkar verði villandi, ef börnin sjá ekki að það sem þau læra í KFUM og K er það sama og þau eru skírð til í kirkj- unni. Við eigum að styðja þau upp að altarisborðinu, kenna þeim að tilbiðja Krist og þjóna honum í lífi og starfi. í mínum huga er KFUM og K félag þeirra sem vilja kenna börnum og unglingum fagnaðarerindið um Jesú Krist, Drottin okkar. Kirkjan hefur fjóra snertipunkta við börn og unglinga. Það er skírn, skírnarfræðsla, ferming og altaris- ganga. Rétt er að árétta það að skírn er ekki aðeins skírnarathöfnin, hún er lífsferlið frá skírn til grafar, og meir en það, hún er upprisa til eilífs lífs. Skírnarfræðsla er vitnisburður trúar- innar, þar sem kristnir menn bera skírt barn inn í arfleifð trúarinnar, lif- andi samfélag, af heilum huga, svo að barnið læri að biðja og lifa eftir orði Guðs. Það er verkefni KFUM og K. Svo og getum við stuðlað að því að fermingin, sem markar tímamót í lífi unglingsins, verði fyllt trúarlegri merkingu. Og að lokum hljótum við að vilja sjá börn Guðs finna sinn stað við borð Drottins, þar sem þau fá kraft til að lifa í Kristi. sem hann ætti aldrei að leggja frá sér, til þess að hann sé stöðugur í trúnni og ávöxtum hennar og til þess að halda hinum gamla manni í skefjum svo hinn nýi maður geti vaxið.“ Hve gott að eiga grundvöll þann, þá guðlaus vantrú hræðir, að sjálfur Drottinn verkið vann, sem veikan endurfæðir. Ég, allslaust harn, gat ekki neitt, en eilíft lífafnáð var veitt, mitt nafn í lífsbók letrað. (Bjarni Eyjólfsson). Á döfinni Kristniboðssambandið (SIK) er farið að undirbúa almennt mót, kristniboðsþing og Biblíu- og krist- niboðsnámskeið á sumri komanda. Almenna mótið verður haldið í Vatnaskógi dagana 26.-28. júní. Krístniboðsþing kemur saman annað hvert ár samkvæmt lögum SIK og hefur jafnan verið haldið strax að loknu almenna mótinu. Að þessu sinni verður það háð helgina 4.-6. september í Vatna- skógi. Þá gengst SÍK fyrir Biblíu- og krístniboðsnámskeiði í sumarbúð- unum í Ölver 21.-25. ágúst í sumar. Slíkt námskeið var haldið í fyrra og mæltist vel fyrir. Almennt mót verður að Löngu- mýri í Skagafirði 24.-26. júlí. Lesendur Bjarma eru hvattir til að muna eftir þessum dagsetning- um þegar þeir fara að skipuleggja sumarið. Og biðjið fyrir þeim sem annast undirbúning. Norræn útvarps- kristniboðs- ráðstefna í Finnlandi 25.-28. júní Norea radio í Noregi hefur boð- ið Kristniboðssambandinu að senda fulltrúa á þessa ráðstefnu. Ef þú hefur áhuga á að fara og greiða sjálf(ur) fyrir ferðina þá hafðu samband við Skúla Svavars- son á skrifstofu SÍK, Amtmanns- stíg 2b. í skírninni á ég lífið 14

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.