Bjarmi - 01.03.1987, Side 22
Hvað er L.M.E.?
Það eru kannski ekki margir sem
hafa séð þessa skammstöfun eða vita
hvað hún þýðir. Okkur hjónum langar
til þess að gera nokkra grein fyrir
þessu í stuttu máli þar sem við höfum
orðið vör við svolítinn misskilning
varðandi þennan félagsskap hjá ein-
staka fólki.
L.M.E. þýðir Lutheran marriage
encounter sem þýðir á íslensku: Lúth-
ersk hjónahelgi. Þessi félagsskapur er
upprunninn á Spáni en hann starfar nú
í dag víða um heim m.a. á íslandi.
Hingað til lands kom hann frá Banda-
ríkjunum og þá í gegnum hermenn
sem hafa starfað á Keflavíkurflugvelli
og hafa þau námsskeið sem þegar hafa
verið haldin hér á landi þess vegna
verið á ensku en næsta námskeið sem
verður haldið núna í mars verður
fyrsta íslenska námskeiðið hér á landi.
Nú þegar hafa verið haldin fjögur
námskeið hér á landi. Námskeiðs-
haldið fer fram á Hótel Loftleiðum og
fjöldi þátttakenda er takmarkaður við
þrjátíu hjón á hverju námskeiði og
eru alltaf ein prestshjón þar á meðal.
Námskeiðið er kynnt á fundum í
heimahúsum. Þar koma a.m.k. ein
hjón sem hafa farið áður á svona
námskeið og þar getur fólk látið skrá
sig.
Hvernig námskeið er Lúthersk
hjónahelgi? Þátttakendur mæta kl.
19.00 á föstudagskvöldi á Hótel
Loftleiðir, bóka sig inn á herbergi og
um klukkustund síðar byrjar nám-
skeiðið sem stendur til kl. 18.00 á
sunnudegi. Allur matur er innifalinn
en námskeiðið kostar aðeins kr. 1000
á hjón. Við ætlumekki að segjafráþví
hvernig námskeiðið er uppbyggt í
smáatriðum til þess að gera fólk for-
vitið, nema það að námskeiðið miðar
að því að sameina hjón þannig að þau
fái að þekkja hvort annað betur.
Námskeiðið brýtur niður múra sem
stundum myndast á milli hjóna, það
miðar einnig að því að gera gott
hjónaband betra og draga hjónin nær
Kristi.
Fyrir hverja eru þessi námskeið?
Þessi námskeið eru fyrir öll hjón, sem
vilja styrkja hjónaband sitt. Þetta er
ekki hjónabandsráðgjöf né lausnin
þegar hjónaband er að fara í vaskinn.
Þetta er til að styrkja góð kristin
hjónabönd og veitir ekki af á tímum
skilnaða. Á þessi námskeið kemur
fólk úr öllum stéttum og á öllum aldri.
Fyrir okkur hjónin var þetta
ómetanleg lífsreynsla og varð okkur
báðum til mikillar blessunar og færði
okkur nær hvort öðru og Guði okkar.
Annað, sem er stórkostlegt við þessi
námskeið, er hve sterkur vitnisburður
þau eru um Jesúm Krist, frelsara
okkar. Við höfum sjaldan eða aldrei
séð þvíumlíkt. Fólk úti í bæ sem aldrei
gefur gaum að fagnaðarerindinu, fer
að leggja við hlustir. Þessi greinarstúf-
ur er bara ritaður til umhugsunar. Ef
lesendur vilja fá frekari upplýsingar
þá hafið samband við undirrituð eða
Ragnheiði og Willy Pedersen sem sjá
um skráningar á þessi námskeið. Með
hjónakveðju! (Jóh. 15,12).
Hendrikka J. Alfreðsdóttir, i
Pétur Ásgeirsson.
FRÁ STARFin U
UD starf á Holtavegi
Helgina 13.-15. febrúarfór
UD KFUM og KFUK við
Holtaveg í Ölver. Petta var
mjög svo skemmtilegferð þar
sem fólk kynntist hvort öðru
og Jesú betur. A samveru-
stundum var lögð áhersla á að
kynnast Jesú. Pátttakendur
voru 26 með sveitastjórum og
var það allgott. Pað gleðilega
við UD starfið við Holtaveg
er hveþað hefur vaxið oghve
unglingarnir eru ánœgðir í
deildinni. Fyrir jól voru mest
um 12 á fundum en nú eftir
áramót koma yfir 20 ungling-
ar á fundi. Unglingarnir eru
mjög áhugasamir um starfið,
þeir þekkjast nú vel og finna
Unglingakvöld
Unglingakvöld KFUM og
KFUK voru haldin 16.-18.
febrúars.l. Fyrsta kvöldið var
haldið í Keflavík og var það
vel sótt enda blómlegt starf í
Keflavík. Annað kvöldið var
í Hafnarfirði og sáu þá Hafn-
firðingar um góða dagskrá.
Endað var svo að Amt-
mannsstíg 2b og komu þá
Keflvíkingar og Hafnfirðing-
ar í bæinn.
Á fundunum var farið í
leiki, leikrit sýnd og mikið
sungið. Rœðumaður var sr.
Ólafur Jóhannsson og talaði
hann um Guð, Jesú og trúna
út frá yfirskrift kvöldanna,
sem var: „llifi mínu“.
sig vel heima á Holtavegin-
um. Pað er því stórt þakkar-
efni hve vel gengur á Holt-
aveginum í UD KFUM og
KFUK.
Hressir krakkar úr ungllnga-
dcildinni á Holtavegi ■ Ölvcrs-
ferð.
22
'