Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1992, Síða 10

Bjarmi - 01.02.1992, Síða 10
KVEÐJUSAMKOMA MEÐ JOLABRAG J7n n I if KRISTNIBOÐARNIR ERU BESTA GJÖF OKKAR — Guð sendi okkurson sinn oggaf okkur það besta sem hann átti. Við viljum líka gefa það besta sem við eigum. Pess vegna fara kristniboðar héðan til að segja frá Jesú Kristi. Ekkert betra getum við sent heiðingj- unum, sagði Skúli Svavarsson formaður Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga á hátiðarsamkomu þegar kvaddir voru þrír kristniboðar sem nú eru farnir til Eþíópíu. Bætið nöfnum á bænalistann! „Á meðal heið- ingjanna eru margir sem ráfa í villu, margir sem hafa ekki heyrt um Jesúm Krist. Par eru stórir akrar en verkamenn vantar. “ Kristniboðssalurinn í Reykjavík var þétt- setinn og vel það sunnudaginn 29. desember. Stórt og skrautlegt jólatré blasti við samkom- ugestum og þegar kór KFUM og KFUK gekk inn í salinn voru flest ljós slökkt en söngfólkið kom syngjandi með logandi kerti í ltendi og síðan ómuðu jólalög. Allir kristniboðarnir, sem kvaddir voru, hjónin Guðlaugur Gíslason og Birna Gerður Jónsdóttir og Helgi Hróbjartsson, tóku til máls. Guðlaugur las í upphafi orð úr Sálm. 32. Hann lagði áherslu á gæsku og náð Guðs og kvaðst hafa fengið að koma til hans og þiggja fyrirgefningu syndanna eins og sálmurinn tal- ar um. Guðlaugur varaði við því að menn létu blindast af gæðurn þessa heims. Hann sagði frá köllun sinni tii kristniboðsstarfa og bað kristniboðsvini að skrifa nöfn fjölskyldu hans á bænalista sinn. „Orðin í niðurlagi Matt. 9 segja mikið um Jesúm sjálfan og um það hvernig hann lítur á fólkið sem er án Guðs,“ sagði Birna Gerðurer hún hafði lesið frásöguna um fólkið sem var eins og tvístruð hjörð án hirðis og hvatningu Jesú að biðja herra uppskerunnar að senda verkamenn til starfa. „Kristniboðssvæðunum má líkja við hvítan akur. Og Jesús bendir á leið bænarinnar. Hann gengur út frá því að við biðjum,“ sagði Birna og las fleiri ritningarorð því til staðfestingar. Hún vék einnig að kölluninni sem hefði óróað hana í mörg ár. „Á meðal heiðingjanna eru margir sem ráfa í villu. margir sem hafa ekki heyrt um Jesúm Krist. Þar eru stórir akrar en verkamenn vantar.“ Hún sagði að þau færu til starfa í trausti til hans sem hefði allt vald á himni og jörðu og hefði lofað að vera með þeim. Þegar hjónin höfðu lokið máli sínu var þeim beðið blessunar enda voru þau á förum til starfa á kristniboðsakrinum í fyrsta sinn. Stjórnarmenn Kristniboðssambandsins lásu ritningarorð, hjónin og dæturnar tvær, Guð- rún og Katrín, krupu á kné, stjórnin lagði hendur yfir þau og einn úr hópnum fór með bæn. Var þetta eftirminnileg og hátíðleg athöfn. Jesús er þar sem orð hans er Helgi Hróbjartsson flutti hugleiðingu og las frásöguna um Jesúm 12 ára í musterinu (Lúk. 2). Hann benti á að Jesús hefði strax á ungum aldri vitað hver hann væri, sonur föðurins á himnum. Honuin var því eðlilegt að koma í

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.