Bjarmi - 01.02.1992, Page 22
T~ylc\ starfiniA
s
I skóla og kirkjur
Staifsmenn SIK komu víða við á síð-
ustu vikum liðins árs. Þeir predikuðu
m.a. á ýmsum stöðum á kristniboðsdag-
inn 10. nóvember. Helgi Hróbjartsson
var liálfan mánuð á Akureyri og lattk
dvölinni nyrðra á kristniboðsdaginn en
þá endaði kristniboðsvika ífélagsheim-
ili KFUM og K í Sunniiltlíð. Auk Helga
voru rœðumenn Ragnar Gunnarsson,
Skúli Svavarsson og lieimamenn. Þeir
þremenningarnir töluðu einnig á sant-
komuviku ífélagshúsi KFUM og K á
Akranesi 17.-24. nóvember. Henni lauk
með guðsþjónustu í Akraneskirkju og
steig Ragnar í stólinn.
Helgi og Skúlifóru seint í nóvember
í vikuferð til Egilsstaða og fjarðanna
þar t grennd. Itéldu samkomur og vitj-
uðu margra skóla. Um svipað leyti
flaug Benedikt Arnkelsson til Akureyr-
ar. dvaldist þar tvœr vikttr og lieimsótti
m.a. barnaskólatta fimm í bœmtm. I lok
ársins var lögð áltersla á að selja jóla-
kort og almanak kristniboðsins og
mátti sjá staifsmenn SIK við söluborð í
Kringlunni í Reykjavík flesta dagana í
desember fram að jólum.
Komin heim
frá Englandi
Hjónin Ragnheiður Guðmundsdóttir
og Karl Jónas Gíslason dvöldust í
haust í Englandi við enskunám vegna
vœntanlegra kristniboðsstarfa í Afríku
en áður höjðu þau veriðfjögur ár í
Osló. Þau komu heim fyrirjól og tekur
Karl Jónas þátt í heimastarfi SlKfram
á mitt ár en þá er gert ráð fyrir að fjöl-
skyldan haldi til Eþíópíu.
Karl Jónas fór 20. janúar til Vest-
mannaeyja með Benedikt Arnkelssyni.
Þeir voru viku íferðinni, lieimsóttu
báða harnaskólana, héldu kristniboðs-
samkomu í safnaðarheimilinu svo og á
elliheimilinu og sjúkrahúsinu og litu
inn á samverustundir í barnastarfi
kirkjunnar.
Jólaskemmtun
Eins og undanfarin árhéldu KFUM og
KFUK í Reykjavík jólaskemmtun nú
um jólin, nánar tiltekið laugardaginn
28. desember sl. Um fjörutíu manns,
börn og fullorðnir, áttu saman góða
stund í Kristniboðssalnum við Háa-
leitisbraut þar sem jólaboðskapurinn
var útskýrður í máli og myndum fyrir
börnunum, sungnir voru jólasálmarog
jólalög, gengið í kringum jólatré og að
sjálfsögðu kom jólasveinninn í heim-
sókn.
Fjáröflun gekk vel
Fjáröflunarátak KFUM og KFUK í
Reykjavík nú fyrirjólin vegna bygging-
ar aðalstöðvanna við Holtaveg gekk
vel effrá er talin jólatréssala. Sala
jólatrjánna rétt dugðifyrir kostnaði, en
sala á jólakortum, flugeldum og
ýmsum öðrum varningi skilaði hins
vegar góðum tekjum. Þá höfðu borist
milli 600 og 700 þúsund í gjafir frá
fyrirtækjum semfengu bréf fráfélögun-
um fyrir jólin. Þá er greint frá því í
síðasta Fréttabréfi KFUM og KFUK
að maður, búsettur erlendis, hafi sent
félögunum tvœr milljónir króna að gjöf
sem þakklœtisvott fyrir góðar stundir á
Á jólahátíð KFUM og KFUK í Reykjavík.
vettvangi félaganna ót unglingsárunum.
Allt er þetta mikið þakkarefni og
hvatning til frekari dáða.
Nú er nýbyggingin á Holtavegi
fokheld. Þessa dagana er unnið að því
að ganga frá fatahengi og snyrtingu
fyrir nýja félagsheimilið í kjallara
gamla hússins. Þá verður gengið frá
tengibyggingu milli Itúsanna. Kostnað-
ur við þennan áfanga er áætlaður um
2,8 milljónir.
Inni ínýjum aðalstöðvum KFUM og KFUK
í Reykjavík.