Bjarmi - 01.12.1996, Síða 3
TILEFNI JOLAGLEÐINNAR
að fer varla framhjá neinum að jólin nálgast. Við erum rækilega minnt á það í fjölmiðlum
með endalausum auglýsingum og jólalðgum og með ýmiss konar uppátækjum og
skreytingum allt í kringum okkur. Líklega er útilokað að gleyma jólunum. En skyldi vera
hægt að gleyma tilefninu?
Rómantisk mpd af barni með geislabaug í jötu í fjárhúsi kemur e.t.v. fyrst upp í hugann þegar
hugsað er um innihald jólanna. Hefur sú mynd einhverja merkingu? „Barn er oss fætt, sonur er
oss gefinn" (Jes. 9:6), segir í gömlum texta sem við könnumst við. í jólaguðspjallinu er þráðurinn
tekinn upp: „Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu“ (Lúk. 2:7).
Er þetta ekki býsna hversdagslegt? Fæðing bams á sér stað á hverri mínútu úti um allan heim í
allt frá hátæknivæddum vestrænum sjúkrahúsum til hrörlegra moldarkofa. Barnsgráturinn
kunngjörir hvarvetna að ný manneskja er í heiminn borin. Hvað var þá svona merkilegt við það
þótt kona fæddi barn í fjárhúsi suður í Betlehem fyrir 2000 áram? Er allt umstangið okkar ekki á
misskilningi byggt?
Matteus guðspjallamaður gefur í skyn að eitthvað sérstakt sé um að vera: „Hún mun son ala, og
hann skaltu láta heitajesú, því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra“ (1:21). Nokkrir
hirðar fengu það staðfest af engli í náttmyrkrinu úti í haga við Betlehem: „Yður er í dag frelsari
fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs“ (Lúk. 2:11). Jóhannesarguðspjall botnar síðan og
segir: „Orðið varð hold, hann bjó með oss,
fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð
hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðum-
um“ (1:14). Það skyldi þó ekki vera hægt að
færa rök fyrir öllu umstanginu?
Um hvað er verið að tala? Guð fæðist sem
bam - rétt eins og hvert annað bam! Mörgum þykir hugsunin fráleit og í rauninni er hún það. En
Guð lætur sig hafa það til þess að frelsa mennina. Það var engin önnur leið. Mannkyn hafði
eyðilagt samband sitt við Guð. Annað hvort varð Guð að láta það lönd og leið eða koma sjálfur og
endurreisa sambandið. Merking jólanna er því sú að Guð gerðist maður í Jesú Kristi. Hann gekk
fullkomlega inn i okkar mannlegu kjör til að frelsa okkur úr fjötrum syndar og dauða. Á því
byggist möguleiki okkar til að lifa í samfélagi við hann. Við höfum því ástæðu til að gleðjast og
fagna á jólum. „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð“ (Lúk. 2:10).
Umstangið í kringum jólin virðist eiga sér ærið tilefni. En gæti það verið að við séum farin að
snúast um allt umstangið og höfum þannig misst sjónar á hinu raunverulega tilefni jólagleðinnar?
Gæti það verið að við séum svo upptekin af þvi að búa til jólagleði að gleðiefnið sjálft gleymist?
13jcir»nt
Kristilegt tímarit
Útgefendur: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Benedikt Arnkelsson,
Guðmundur Karl Brynjarsson, Henning
Emil Magnússon, Kjartan Jónsson og
Þórunn Elídóttir.
Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,
pósthólf 4060,124 Reykjavík,
sími 588 8899, bréfsími 588 8840.
Árgjald: Kr. 2.700,- innanlands,
kr. 3.200,- til útlanda. Gjalddagi 1. mars.
Verð í lausasölu kr. 500,-
Umbrot: SEM ER útgáfa.
Ljósmyndir: Lárus Páll Birgisson, Kristján
Einar Einarsson o.fl..
Prentun: Borgarprent.
Efni:
Staldrað við:
Tilefni jólagleðinnar.................. 3
Myndasaga:
Er líf eftir fæðingu?.................. 4
Sr. Ólafur Jóhannsson:
Barn er oss fætt....................... 6
Viðtal:
... og vaknaði morguninn
eftir, orðinn pabbi ................... 8
Kristbjörg Gísladóttir:
Barnið sköpun Guðs..................... 9
Viðtal:
Kóróna sköpunarverksins................10
Anna Hugadóttir:
Eru til kristilegar uppeldisaðferðir?.12
Bækurfyrir þig og þína.................13
Henning Emil Magnússon:
Misskilda María........................14
Innlitið:
Ég get ekki lengur þagað um Krist.....16
Benedikt Arnkelsson:
Konan með armhringina..................20
Viðtal:
Ég vil efla áhuga barna á Jesú.........24
GunnarJ. Gunnarsson:
Kristur á kvikmyndahátíð? .............26
Ertu komin í jólaskap?.................27
Árni Bergur Sigurbjornsson:
Þú finnur jólin við jötuna.............29
Ragnar Gunnarsson:
Að lesa meira og meira.................31
3