Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 29
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson
ORÐIÐ
Þú finnur jólin við jötuna
„Verið óhmddir, því sjá, ég boðayður mikinn Jögnuð,
sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dagfrelsari
jœddur, sem er Kristur, Drottínn í borg Davíðs. Og
hafið þetta til marks: Þér munuðfinna ungbam reifað og
lagt íjötu." Lk. 2,10-11.
Um sinn breytir heimurinn um svip. Flestir leitast þessa
dagana við að auðga umhverfi sitt birtu sem gæðir dimma
skammdegisdaga ljóma. Og víða óma söngvar og sálmar
sem gleði og hughrif jóla hafa vakið í barmi listamanna og
á jólanóttina taka velflestir undir þá tóna á einhvem hátt.
Heimurinn breytir um svip, alltént um stund þegar jólin
ganga í garð. Og mörgum færa þau djúpa gleði. Engan
þekki ég sem ekki þráir þann fögnuð sem jólin geta fært.
Engan þekki ég heldur sem vill fara varhluta af gleði
þeirra. En það hendir að hún veitist ekki og ljúfar
minningar um jól sem einu sinni veittust verða ljúfsárar og
þá er á stundum skrefið skammt til tregans. Hann lætur
vitaskuld að sér kveða þar sem sorg eða böl hefur kvatt
dyra. Þó á djúpur friður þeirra og helgi einatt greiðan
aðgang þar og engilboðin um frelsarann Jesú Krist sem í
jötu hvíldi og síðar bar sigur af öllu myrkri, sjálfum
dauðanum.
En hitt er einnig þekkt að þar sem bjartast var um kring
og miklu til kostað að hljóta jólagleði að hún veittist ekki
og enn síður friður heldur miklu fremur lúi eða leiði. Þá er
sárt til þess fundið að mikils er misst. Og margan grunar
að þetta gerist æ víðar og oftar, að jólin sjálf drukkni í asa
og ati sem auðkennir aðdraganda þeirra hjá mörgum. Það
er líka svo margt sem nærir þá útbreiddu skoðun að flest
megi ávinna sér eða fá keypt, einnig jólafögnuð og frið. En
jól, sönn glöð og helg jól og sá friður sem þau færa fæst
ekki við neinu gjaldi, þau verða aðeins þegin. Og að þiggja
jólin er að þiggja barnið sem jólin boða og vegsama.
Engillinn, sem boðaði hirðum Betlehemsvalla fæðingu
frelsarans, benti þeim að halda að jötu ungbarns. Þar væri
frelsarann að finna. Þeirri ábendingu skyldum við taka
þau jól sem nú koma. Og vart mun bregðast að sé lotið við
jötu frelsarans að eitthvað hlotnist af þeim fögnuði sem
engillinn boðaði. Því að í jötunni hvílir sá sem er mark
þess að Guð er nærri í skilyrðislausum, fyrirvaralausum,
fórnandi kærleika. Hann afsalar tign og vegsemd og dýrð
til að vera hjá oss þar sem myrkur af svo margvíslegum
toga getur reynst áleitið til þess að færa birtu, birtu sem
rýfur hvern skugga og gefur gleði og frið sem er sannur og
djúpur og heill.
Guð gefi þér að þiggja þá gjöf að finna jólin við jötu
Jesú, sem er Kristur Drottinn, og þakka þá gjöf og hljóta
fögnuð gleðilegra jóla.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson,
sóknarprestur í Áskirkju í Reykjavík.
29