Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 22

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 22
KRISTNIBOÐ Svo lágt er undir loft I húsum Dasenetsjmanna aö fólkið situr flötum beinum á moldargólfinu. Ógiftu stúlkurnar skreyta sig meö þykkum málm- hringjum á fótleggjun- um. Sú í miðiö heldur á hálfu graskeri með heitu kaffi. Sums staöar í Suður- Eþíópíu sefur fólk uppi á háum pöllum á nóttunni til aö forðast flugur og aöra óværu í hitanum. Takiö eftir krossinum á húsinu. Þarnavar kristið fólk. er hann hlustar á kristilega boðun. Þar kemur að hann lýsir yfir því að hann vilji vera kristinn. Kona hans, Loja, hefur átt í erfiðleikum. Hún hefur kvartað yfir einkennilegri tilfinningu og sársauka í líkamanum. Hún verður þunglynd og hyggur jafnvel á að farga sér. Loja dvelst um hálfsmánaðar skeið hjá Elsu hjúkrunar- konu og þiggur lyf og fyrirbænir og hlustar á orð Guðs - og róast nokkuð. Aftur sækir í sama horfið. Þá leitar hún til konu einnar sem hyggst sjúga sjúk- dóminn úr líkama hennar. Það tekst ekki. Töfralæknar eru heimsóttir, sauðkind slátrað, gras sótt á fjarlægan stað. Loja er smurð með blóðinu úr kindinni og geit er látin stanga hana í bak og fyrir. En allt kemur fyrir ekki. Þá átti Elsa erindi til Gídole og Arba Minch og verður úr að Girma og Loja fara með henni og leita aðstoðar lækna. Á sunnudegi í Arba Minch fær Girma konu sína til að koma með sér í guðsþjónustu í Arba Minch. Bæði þar og í Gídole er kirkjusókn mjög góð og eru haldnar tvær guðs- þjónustur á hverjum sunnudagsmorgni, kl. 8 og kl. 10. Sem þau sitja nú á bekknum í kirkjunni stendur maður upp og kveðst hafa fengið boðskap að flytja. Þessi maður er kristinn og biður stundum fyrir sjúkum. „Hér er kona sem komin er langt að,“ segir hann. „Hún hefur lengi þjáðst af sjúkdómi en það er ekki sjúkdómur. Hún hefur þrautir í maganum og annars staðar í líkamanum. Fyrir mörgum árum hljópst maður hennar á brott og fór til Kenýu og þá hélt hún til seiðmannsins. Hann lét tvö arm- bönd á konuna til þess að hafa þau áhrif á manninn að hann kæmi aftur frá Kenýu. Þú ert með þau á þér í dag. Réttu nú upp hægri höndina svo að við getum beðið fyrir þér!“ Þau Girma skildu hvorki upp né niður. Þeim var ljóst að verið var að tala um þau. En hér voru þau óþekkt. Hvernig gat staðið á þessu? Loja ætlaði að rétta upp hönd- ina en þá brá svo við að hún gat það ekki hvemig sem hún reyndi. Höndin skalf og var þung sem blý. Það var eins og einhver héldi í hana. Loks tókst henni þó að lyfta hendinni og starfsmenn í söfnuðinum komu til hennar. Að lokinni guðsþjónustunni vom hringirnir teknir af hand- legg Loju og beðið fyrir henni. Hún var ný manneskja þegar hún gekk út úr kirkjunni þennan dag. „Það er satt að til er almáttugur og góður Guð,“ sagði Loja við Elsu eftir þessa atburði. „Nú er ég frjáls." Mesta fagnaðarefnið Hálfu ári seinna var Loja enn heilbrigð. Það er ekki aðeins maðurinn hennar sem hefur breyst. Hún er farin að bera umhyggju fyrir fjölskyldu sinni. Eitt kvöldið kom systir hennar í heimsókn. Hún undraðist að Loja kraup á kné og talaði við einhvern sem hún sá ekki. „Geturðu ekki þagnað og farið að sofa?“ spurði hún. „Nei,“ svaraði Loja, „ekki fyrr en ég hef lagt manninn minn og börnin í hendur Jesú, hans sem læknaði mig.“ Frá myrkri til ljóss, frá Satans valdi til Guðs, sagði Jesús forðum við Pál þegar hann lýsti hlutverkinu sem hann fól honum, að ávinna menn meðal heiðingjanna. Þetta gerist enn í dag þegar hið lifandi orð Guðs hljómar og nær tökum á hjðrtum heiðingjanna. Það er mesta fagnaðarefnið í kristniboðsstarfinu. Að lohnni guðsþjónustunni voru hringirnir teknirafhandleggLoju ogbeðiðfyrirhenni. Húnvarný manneskja þegar hún gekk út úr kirkjunni þennan dag. 22

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.