Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 30

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 30
SJÓNARHORN Ragnar Gunnarsson Að lesa meira oq meira... Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK f Reykjavík. Nú nálgast jólin, sá tími ársins þegar margur íslendingurinn les hvað flestar blaðsíður af fús- um og frjálsum vilja en ekki í nauðung próf- lestursins. Kristin trú er trú bókarinnar, Biblíunnar. Hún er trú orðsins - hins skrifaða og talaða. Hún er trú Heilags anda sem kemur trúnni til leiðar í hjörtum manna, viðheldur henni og styrkir með því að gera orðið lifandi svo að Jesús Kristur verði okkur nálægur, raunveru- legur og lifandi veruleiki. Kristileg bókaútgáfa hefur gengið brösulega hér á landi vegna þess hve markaðurinn hefur verið lítill. Skilningur fólks á gildi þess að lesa kristi- legar bækur hefur verið takmarkaður. Hér á landi er trúlega lítil eða takmörkuð hefð fyrir lestri kristilegra bóka. Meðal margra þjóða heims er þessi hefð rík og hefur átt sinn þátt í að styrkja stöðu trúar og kristni þeirra á meðal. Kristilegar bækur geta verið okkur til mikils gagns og hjálpar í trúnni, trúarlífinu, þjónustunni í Guðs ríki og svo má lengi telja. Kostimir em i mínum huga og að fenginni reynslu þessir: 4) Aðrar bækur eru meira skrifaðar til hvatningar og uppbyggingar. í þjónustu Guðs þurfum við stöðugt á þvi að halda. Við eigum í baráttu. í mínum huga er ekki spurning, að lestur minn á kristilegu lesefni hefur oft haldið i mér baráttuviljanum, gefið mér þolgæði og orðið til hvatningar á margan hátt - bæði fyrir mitt eigið trúarlíf og fyrir starf mitt í ríki Guðs. Sumir eiga við ákveðin vandamál að stríða og geta fengið ómælda hjálp með því að lesa bækur sem skrifaðar eru sem hjálp við þeim vanda. 1) flegar ég les vel ég sjálfur hvað upptekur huga minn. Ég vel þá bók sem vekur áhuga minn eða fjallar um þær spurningar sem skipta mig máli. Ég reyni að finna þá bók sem er líkleg til að verða mér til hjálpar og hvatningar í aðstæðum mínum á hverjum tíma. 2) Boðun orðsins kemur trúnni til leiðar og það á einnig við um hið ritaða orð. Margur hefur lesið og komist til trúar. Á sama hátt getur lestur kristilegs lesefnis átt mikinn þátt í því að viðhalda okkur í trúnni. 5) Sumar kristilegar bækur eru vel til þess fallnar að gefa öðrum sem lítið hafa skipt sér af kristinni trú. Til eru bækur sem sérstaklega eru skrifaðar til þess. Til að þekkja þær, geta mælt með þeim og rætt um þær þurfum við einnig að lesa þær. Bækurnar geta verið tæki í okkar höndum til að benda á Jesú og laða fólk til hans. Ekki er nóg að eiga góðar kristilegar bækur ef þær eru ekki lesnar. Sá sem vill byrja eða bæta sig í lestrinum þarf e.t.v. að skoða í hvað hann notar tíma sinn. Gott er að taka frá ákveðinn tíma á dag eða viku, jafnvel þó svo lítið sé lesið í einu. Fimm blaðsiður á dag eru rúmlega 1800 síður á ári eða 8-12 bækur. Kostur bókarinnar er að hún er fyrirferða lítil og þarf ekki orkugjafa eins og ferðatölvur. Sumir geta vanið sig á að lesa í strætisvögnum, hópferða- bílum, flugvélum, um borð í skipum og ferjum og á bið- stofum. Sjálfur hef ég lesið tugi bóka við slíkar aðstæður. Á jólum er gott að taka sig til og hefja lestur á nýjan leik. Siðan er að sjá til þess að haldið sé áfram á nýju ári. 3) Kristilegar bækur eru margs konar og margar hverjar mjög fræðandi. Pær taka fyrir ákveðið efni á skipu- lagðan hátt og veita góða yfirsýn. Ekki er allt jafn- auðskilið á síðum Biblíunnar eða í kristinni kenningu. Par geta góðar bækur leitt okkur til dýpri þekkingar og skilnings. 30

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.