Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 13
BÓKAKYNNING Bækur fyrir þig og þína grunninn að þessu trausti í samskiptum sínum við barnið. Margir fræðimenn halda þvi fram að ungbamið upplifi sjálft sig sem hluta af móðurinni á fyrstu mánuðum lífsins og að vitund þess nái ekki út fyrir þennan litla heim. Smám saman fer það svo að skilja sig frá móðurinni og loks að upplifa sig sem sjálfstæðan einstakling. Á þessu tímabili er talið að gmnnurinn að traustinu á Guði sé lagður. Traustið sem barnið fær á foreldrum sínum við það að þau annast það og uppfylla allar þarfir þess yfirfærist síðar á Guð er barnið fær þroska til að trúa á hann. Umönnun ungra barna er oft lýjandi og reynir á þolinmæðina. Það getur fært okkur foreldrum meiri lífsfyllingu í þessum störfum, að hugsa til þess að með þvi að sinna þeim af alúð séum við að leggja grunninn að trausti barnanna okkar á Guði. Niðurstaða mín af spumingunni sem varpað var fram 1 upphafi verður því að það era ekki uppeldis- aðferðirnar sem slíkar sem eru kristilegar heldur innihald uppeldisins. Það skiptir máli að við sinnum börnunum okkar af alúð, gefum okkur tíma til að vera samvistum við þau og biðjum fyrir þeim og með þeim. hannig byggjum við upp traust sem við getum notað til að leiða þau áfram og vísa þeim veginn til trúar. Minnumst þess samt alltaf að börnin eru sjálfstæðir einstaklingar með frjálsan vilja. Við getum ekki þakkað okkur eða kennt okkur um, ef þau kjósa að fara aðra leið en þá sem við teljum rétta. Trúna getur Guð einn gefið. Bókaútgáfan Salt hefur gefið út tvær bækur fyrir þessi jól. Barnabókin „Ósýnilegi vinurinn11 eftir Kari Vinje er fallega myndskreytt af Vivian Zahl Olsen. Þórdís Ágústsdóttir og jSyða Karsdóttir þýddu bókina. Bókin segir frá Palla sem er nýfluttur til Snúrabakka. Hann kynnist stráknum í næsta húsi og þar með hefst ævintýri sem kemur honum í kynni við ósýnilega vininn. Þetta er mjög falleg, skemmtileg og spennandi bók. Hún er ætluð bömum 5 - 9 ára og er einföld, skýr og skemmtileg framsetning á grandvallaratriðum kristinnar trúar fyrir börn. Þótt þetta sé barnabók getur hún einnig snert við þeim sem eldri eru og haft áhrif á unga sem aldna. Bókin „Afríkudætur“ eftir Hrönn Sigurðardóttir hefur að geyma frásögur úr lífi Hrannar og nokkurra dætra Afríku sem hún kynntist er hún var kristniboði og hjúkrunarfræðingur í Pókot í Kenýu í tæp átta ár. Bókina prýða myndir frá Kenýu. Bók þessi er einlæg og inniheldur hrífandi frásagnir af ólíkum aðstæðum - ólíkum konum í heimi sem er okkur svo fjarri. Bók sem gefur nýja mynda af starfi kristniboða, mynd sem snertir við þeim sem les. Bók þessi er fyrir alla hvort sem þeir þekkja til kristniboðs eða ekki. Bók sem hefur áhrif. Ný bók eftir Jónas Gíslason vígslubiskup Bókin „Um tilurð böls og þjáningar í heiminum'1 er skrifuð eftir sjóflóðin á Súðavík og Flateyri 1995. Jónas Gíslason segir á kápu bókarinnar. „Mig langar aðeins að reyna að flytja syrgjendum fagnaðarerindið, er eitt megnar að hugga í neyð. Köllun kristinnar kirkju er að benda á frelsarann, Drottinn Jesúm Krist.“ Jónas hafði ekki síst í huga ungt fólk er hann samdi bókina. Bók sem á erindi til margra. Hrönn Sigurðardóttir / Frásögur af lífi og starfi við miðbaug Þá munu steinarnir hrópa Sigurbjöm Þorkelsson hefur gefið út bókina „Þá munu steinarnir hrópa.“ Bókin hefur að geyma 17 smásögur af áhrifum Biblíunnar á fólk. Sögunum fylgja orð úr Biblíunni, íslenskar bænir eða sálmar. Skálholtsútgáfan hefur sent frá sér bókina „í fótspor Jesú, lifandi mpdir úr lifi frelsarans.11 Bókina skrifar Henry Wansbrough. Bókina prýða litmyndir sem gera kunnustu sögur Jesú ljóslifandi i hugum lesenda. Einnig kom út bókin „Ljós i heimi“ eftir Einar Sigurbjömsson, * sem inniheldur trúfræði fyrir almenning. Jafnframt hefur Þórir Stephensen tekið saman ritverk um Dóm- kirkununa í Reykjavík. Saga húss og safnaðar. Tengsl við kristni og þjóðlif. 13

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.