Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 17

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 17
INNLITIÐ ísak Harðarson. Mig grunar að þjóðfélagsbreytingarnar á árunum eftir stríð hafi átt sinn þátt í því að þessi dýrmæti arfur þjóðar- innar glataðist. íslendingar höfðu það þá betra en nokkru sinni fyrr og mig grunar að aukin lífsþægindi geti gert það að verkum að fólk gleymi Guði.“ Ég fann aldrei klettinn sem ég leitaði óafvitandi að fyrr en kletturinn, Guð sjálfur, fann mig. há var ég 33 ára, sálarstríð unglingsáranna virtist að baki. Ég átti góða konu og tvær yndislegar dætur en lífið var samt eitthvað svo grátt og innihaldslaust. Enn vantaði mig eitthvað. Ég þekkti aðeins þrjú nöfn, þrjár uppsprettur lífs og hlýju og öryggis; þig, ömmu og afa. Það var áður en [...] Roy Rogers, John Lennon og Steínn Steinarr komu skeið- andi inn á sjónsvið mitt á glófaxa, gítar og gallpenna, löngu áður en ég heyrði að til vceru aðrir guðir með skrautlegn nöfn og afmarkaðri verksvið en þú.2 „Eftir því sem barnsskórnir slitnuðu og heimurinn stækkaði, þá dofnaði barnatrúin eins og allt of margir kannast við úr eigin lífi, því miður. Sífellt fleira kallaði og krafðist athygli, svo sem rokkið, poppið, ljóðskáldin, hipparnir, kommarnir og vísindahugsunin sem boðuð er í skólunum. Vísindin eru i sjálfu sér góð en gefa enga lífs- fyllingu. Það var hægt að hafa gaman af góðum ljóðum og kraftmikilli tónlist, en þaðan fékk ég hvorki fullnægju né svör við áleitnum spurningum lífsins. Mig vantaði eitthvað sem ég gerði mér ekki grein fyrir hvað var. Þó ég hafi verið trúaður þá voru Guð og Jesús svo fjarlægir. Mér leið illa, átti í vandræðum með sjálfan mig og það sótti á mig þunglyndi. Ég leitaði huggunar í áfengi og hugarórum en fann hana ekki þar. „Guð ER til! Jesús ER LIFANDI - og hann ... HANN ER HÉR! Ó, amma, nú skil ég: Menn geta aldrei fundið Guð almennilega, því Guð er Guð, en menn eru bara menn. En GUÐ GETUR AUÐVITAÐ FUNDÍÐ MENN, ef þeir vilja bara leyfa honum það - því HANN getur auðvitað ALLT! Ef maður kallar í einlcegni á Guð, þá kemur Guð til manns, því einmitt til þess skapaði Guð manninn..." ,Aumingja strákurinn," tautar amma bara. „Komdu núfram í eldhús ogfáðu þér kaffisopa."3 Þá var það að sjáfsævisögu bandarískrar konu, Sandy Brown, rak á fjörur mínar.4 Þessi bók, sem heitir: „Er ein- hver þarna sem getur hjálpað mér?“ lætur ekki mikið yfir sér, er ekki stórkostlegt bókmenntaverk, heldur einföld og Mig vantaði eitthvað sem ég gerði mér ehhi grein jyrir hvað var. Pó ég haji verið trúaður pá voru Guð ogjesús svojjarlœgir. 17

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.