Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.12.1996, Blaðsíða 24
VIÐTAL Barnabækur hennar eru þekktar víða um lönd. Alls staðar seljast þær í þúsundum eintaka. Við þekkjum best bókina Kamilla og þjófurinn og Við Guð erum vinir sem gefnar voru út á íslensku fyrir nokkrum árum. Nú er komin út á íslensku bókin Ósýnilegi vinurinn þar sem við kynnumst Palla Pimpen og vinum hans. Bækur Kari Vinje vekja áhuga ungra sem aldinna. Hún skrifar barnabækur sem skera sig úr öðrum bamabókum. Hennar bækur fjalla um böm sem trúa ájesú. - Börn þarfnast Jesú! segir Kari Vinje. - Ég vona að böm og fullorðnir fái löngun til að kynn- ast Jesú við lestur bóka minna. Það em spennandi bækur sem þessi smávaxni, lágmælti og brosmildi rithöfundur hefur gefið út, bækur sem nú lifa sínu eigin lífi víðsvegar um heiminn, bækur sem era lesnar aftur og aftur og dáðar af lesendum sínum. - Það að skrifa bamabók er köllun mín, segir Kari Vinje, - mín þjónusta sem mér er úthlutuð, já, náðargáfa mín, þori ég næstum að segja. - Á hvað leggur þú áherslu þegar þú fjallar um trúna í bókum þínum? - Ég legg mikla áherslu á friðþæginguna, segir Kari Vinje. - Ég ólst upp við að trú væri að vera hlýðinn. Ég reyndi eins og ég gat að vera nógu góð en var aldrei viss hvort það væri nóg. Ég vissi ekki hvað Jesús hafði gert fyrir mig og hvað það hefði að segja fyrir líf mitt. Mér var kennt að Guð væri ógurlegur og ég óttaðist hann, jafnvel þótt Guð sé sá sem veitir okkur ðryggi og kærleika. Við eigum ekki að hræða böm með Guði eða nota hann til að ala upp góð og stillt böm. Að trúa á hann snýst ekki um að vera þægur heldur að vera bam Guðs. Það er mikil- vægt að böm fái að vita hvað það þýðir. Það er þetta sem ég vil koma á framfæri i bókunum minum. Mér finnst einnig mikilvægt að segja börnum að Jesús lifir hér og nú, að hann er ekki einhver ímyndun i bókum. Við lifum á tímum þar sem margt hræðir börnin. Mörg börn missa alla öryggistilfiningu. Það skiptir því meira máli nú en nokkra sinni fyrr að böm læri að þekkja Jesú. Þau þurfa að kynnast ósýnilega vininum. Þau eru ekki ein - Jesús er nálægur! Böm þarfnast Jesú og við svíkjum þau ef þau fá ekki að heyra um Jesú. Hvað annað vilja foreldrar gefa þeim? Það að treysta á sjálfan sig er ekki nóg. Börn þarfnast einhvers sem er sterkari en þau því þau finna oft til van- máttar, era lítil og hrædd. Ég er fullorðin og ég finn líka fyrir örygginu sem fæst við að fylgja Jesú, segir Kari Vinje. Allt þetta og meira til birtist í bókinni Ósýnilegi vinurinn. - Ég var beðin um að semja nýja kirkjubók fyrir börn, segir hún. - Þegar tíminn leið vissi ég að ég vildi heldur skrifa Jesú-bók. Mig langaði að tengja barnið við Jesú! Mig langaði að miðla trúar- játningunni til barna, vildi segja frá Jesú þar sem hann er með i sköpuninni og alveg þar til hann kemur aftur. Mig langar að segja börnum hvers vegna hann kom og að hann er raunveralegur þótt hann sé ósýnilegur. Þetta verkefni virtist svo erfitt að lengi vel fannst mér það vonlaust verk að skrifa þessa bók. „Hvernig get ég haft þetta stutt og skiljanlegt fyrir börn án þess að sleppa einhverju mikilvægu?11 hugsaði ég og var að þvi komin að gefast upp. Á sama tíma hafði Guð gefið mér fullvissu um að ég ætti að semja þessa bók og dag einn byrjaði Palli Pimpen að verða til í hugskoti mínu. Hann kom til mín! Allt i einu var hann þarna og ég vissi strax hvemig hann var! segir hún brosandi. Þannig er hún orðin raunveruleg, sagan um ósýnilega vininn, og myndskreytt af Vivian Zahl Olsen, bók sem nær á ótrúlegan hátt að miðla allri hjálpræðissögunni á einfaldan, lifandi, skemmti- legan og ajvarlegan hátt, bók sem hefur áhrif á fólk. Hún fjallar um dreng sem þekkir ekki Jesú. - Hann eignast vin sem kemur frá kristnu heimili, segir Kari Vinje. - Hann sér mynd í stofunni af manni sem gengur á vatni. - Hvers vegna gerir hann þetta? spyr Palli, og frú Finkel- topp segir honum frá Jesú. Mig langar að kristin börn hrifist af bókinni, börn sem hafa heyrt sömu sögumar aftur og aftur. Ég reyni að segja sögumar á annan hátt en áður, reyni að útskýra samhengið og reyni líka að segja biblíusögur sem börnin þekkja kannski ekki eins vel, eins og frásöguna um fiskinn með pening i munninum og þegar Jesú setti eyrað aftur á sinn stað. Ég sný mér þó einkum að börnum sem þekkja ekki Jesú. Þau sem hafa ekki heyrt um hann áður fá oft mikinn áhuga að vita meira. Þetta sjáum við viða þar sem hefur verið bannað að boða kristna trú. Þetta er mjög spennandi efni sem við eigum að deila með öðram, það að við getum Eqvil efla áhuga barna á Jesó Viðfal við barnabóka- höfundinn Kari Vinje 24

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.