Bjarmi - 01.12.1996, Qupperneq 9
Svo breytist hann auðvitað og þroskast og
sjálfsagt gerir hann það þar til hann er orðinn
gamall.
H: Sálmur 139:13-16 öðlaðist nýja merkingu
fyrir mér eftir að ég eignaðist Matthías. Þegar ég
er ein heima á kvöldin og les í Biblíunni eftir að
hann er sofnaður hugsa ég oft um þessi vers,
sérstaklega síðari hlutann í 16. versi: „Ævidagar
voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður
en nokkur þeirra var til orðinn“.
En hvar kemur Guð inn í alla pessa atburðarás?
H: Ég trúi því að Guð sé skapari alls og að
hann hafi frá upphafi hugsað Matthlas handa
okkur.
Hvernig tengist barnið bœnumykkar?
H: Hann var í bænum okkar áður en hann
varð til. Á meðgöngunni fólum við hann Guði á
hverjum degi og báðum fyrir framtíð hans og að
hann myndi þroskast eðlilega. Guð gaf okkur
heilbrigt barn og fyrir það lofum við hann.
G: Við biðjum áfram fyrir honum og framtíð
hans, og á hveiju kvöldi biðjum við með honum
ákveðin bænavers og signum hann. Þannig
heyrir hann og upplifir bænina strax frá upphafi
og tekur svo þátt í henni þegar fram í sækir.
Þetta verður þá eðliegur hlutur fyrir svefninn.
H: Svo ef hann vill ekki sofna alveg strax fær
hann einn sálm eða tvo, t.d. kvöldsöng Vindás-
hlíðar.
Gætuð þið hugsaðykkur að eignastjleiri börn?
G: (Fljótur að svara). Já.
H: Já, fyrr en seinna, mig langar að eiga fjögur
böm ef efni og aðstæður leyfa. Ég var alltaf á því
að bíða svolítið en nú finnst mér þetta svo
gaman. Það er stórkostlegt að horfa á þroska og
framfarir Matthíasar. Þetta gefur manni líka
mikla lífsfyllingu. Það verður svo bara að koma í
ljós hvað framtíðin ber í skauti sér.
Að lokum vildi Matthías sem hafði setið
stilltur og rólegur í fangi pabba síns fá að segja
nokkur vel valin „orð“, en þau verða varla
skrifuð hér.
K.G.
Kristbjörg Gísladóttir
Barnið, sköpun Guðs
„Líkami mannsins er eitt hið veglegasta af
því, sem Guð hefir skapað, og gerður til að
vekja eptirtekt á hans dásemdarverkum.li
Þannig er sagt frá manninum sem sköpun Guðs í
„Lestrarbók handa alþýðu“ eftir Þórarin Böðvarsson frá
árinu 1874. Margt hefur breyst á þeim 122 árum sem
liðin eru frá því að ofangreind fullyrðing var færð í letur.
Engu að síður geta margir tekið undir þessi orð í dag. Þeir
eru ófáir sem verða agndofa þegar þeir sjá nýfætt barn og
finnst það vera staðfesting þess að Skaparinn sé enn að
störfum.
„Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig
s
í móðurlífi. Eg lofa þig fyrir það, að ég er
undursamlega skapaður, undursamleg eru
verkþín, það veit ég næsta vel“ (Sáim.i39:i3-i4).
9