Bjarmi - 01.12.1996, Side 10
BARN ER OSS FÆTT
Kóróna
sköpunarverksins
Viðtal við Huldu Jensdóttur, Ijósmóður
Hulda Jensdóttir, ljósmóðir og fyrrum forstöðukona Fæðingarheimilisins, er
flestum kunn og eru þau ófá börnin sem hún hefur tekið á móti. Bjarmi
mælti sér mót við Huldu í verslun hennar, Þumalínu, til að eiga við hana
spjall um ljósmóðurstarfið og barnið sem sköpun Guðs.
Hvenær byrjaðir þú að starfa sem Ijósmóðir?
Ég verð nú að hugsa mig um til að geta svarað þessu þvi
það er svo langt síðan. Það mun hafa verið 1949.
Hvað varð til þess að þúfórst í þetta nám?
í gamla daga var ekki úr svo miklu að velja fyrir fólk sem
ekki hafði möguleika á því að fara í langskólanám. Ég ætlaði
mér að fara i hjúkrun en var þá þegar orðin svo mikill
náttúrusinni að mér ofbauð lyfjanotkunin og fannst hún
fara út í ðfgar svo að ég venti mínu kvæði í kross, sótti um í
ljósmæðraskólanum og komst að. Á þessum árum var
ljósmæðranámið sjálfstætt nám en ekki eins og í dag þar
sem það er framhaldsnám eftir hjúkrun.
Hvað starfaðir þú lengí sem Ijósmóðir?
Mér finnst ég hafa unnið ljósmóðurstörf alla ævi ef undan
eru skilin síðustu fimm árin. Auk þess var ég eitt ár í
M érfinnst það vera kóróna sköpunamrksins þegar
bamfœðist. Petta er hámark lífsinsfyrír mér og
fullkomnastafyrirbœrið af öllufullkomnu. Að mínu
mati er bamið sköpun Guðs, stórkostleg og
fullkomin, svofullkomin að við gerum okkur í raun
ekki greinfyrir því nema að mjög litlu leyti.
framhaldsnámi og tvö ár við kennslu. Eftir að ég lauk námi
starfaði ég i eitt ár á Landsspítalanum áður en ég fór til
útlanda og var þar í rúm þrjú ár. Þegar ég kom heim aftur
varð ég umdæmisljósmóðir í Garðabæ og tók á móti
bömum í heimahúsum. Það var stórkostleg lífsreynsla og
þótt allt hafi verið skemmtilegt held ég að þetta hafi í raun
verið lærdómsríkasti og ánægjulegasti timinn.
Hefur þú tölu á þeim bömum sem þú hefur tekið á móti?
Sumar ljósmæður hafa skrifað niður hveija einustu konu
sem þær hafa aðstoðað, hvort sem þær voru að taka á móti
eða ekki, en það gerði ég aldrei. Ég hef ekki hugmynd um
hvað bömin eru mörg en það er mikill fjöldi. Á tímabilinu,
sem ég starfaði á fæðingarheimilinu, fæddust yfir tuttugu
þúsund böm og ég kom auðvitað nálægt þeim þó að ég hafi
ekki tekið á móti þeim öllum. Og af því að ég starfaði
erlendis þá á ég líka mörg böm víða annars staðar þannig að
þetta er stór hópur.
Hefur þú tekið á móti bami hjá konu sem þú tókst sjálf á móti
á sínum tíma?
Já, það hef ég gert þó nokkmm sinnum og það var alveg
stórskemmtilegt.
Upplifir þú sjálf eftirvæntinguna sem foreldramir upplifa við
fœðinguna?
Já, það finnst mér. Þetta er alltaf jafnlifandi og skemmti-
legt.
Fœðingin verður þá ekki hversdagsleg eftir ákveðinn tíma?
Nei, aldeilis ekki. Hver einasta fæðing er mikil lífsupp-
lifun fyrir mig líka.
Hvaðfinnst þérgera hverjafæðingu svo sérstaka?
Mér finnst það vera kóróna sköpunarverksins þegar bam
fæðist. Þetta er hámark lífsins fyrir mér og fullkomnasta
fyrirbærið af öllu fullkomnu. Að mínu mati er bamið sköp-
un Guðs, stórkostleg og fullkomin, svo fullkomin að við
10