Bjarmi - 01.12.1996, Síða 11
BARN ER OSS FÆTT
gerum okkur í raun ekki grein fyrir því nema að mjög litlu
leyti. Við hugsum okkur lítið hjarta, sem er farið að slá eftir
örfáar vikur, og heilabú sem einnig að vissu leyti er farið að
starfa á sama tíma. Heilinn er slíkt undur veraldar að menn
skilja ekki nema agnarlítið brot af honum enn þann dag i
dag, hvað sem síðan verður. Náttúran öll er undursamleg og
ég tel hana ekkert annað en sköpunarverk. En það full-
komnasta af þvi öllu er maðurinn.
Hvað er efst í huga þér þegar þú hejur tekið á móti bami úr
hlýju og öryggi móðurinnar?
Það er auðvitað óskin um að þessi sama hlýja, sem það
var umvafið, mæti þvi líka hér þó á annan veg sé. Ég held
að ef við gætum öll elskað bömin okkar og umvafið þau
með raunverulegum, sönnum kærleika, byggjum við í
fallegum og góðum heimi. Það er mikil vöntun á kærleika í
uppeldi barna og ég lít svo á að vandamálin í heiminum
stafi fyrst og fremst af kærleiksleysi. Það er svo margt sem
fylgir í kjölfar þess að alast upp í djúpstæðum kærleika og
þá er ég alls ekki að tala um dekur, þar er stór munur á.
Lítur þú þá á bamiðfyrst ogfremst sem sköpun Guðs en ekki
foreldranna?
Við erum sköpun Guðs og ég held að tilgangur Guðs sé
að maður og kona finni hvort annað og elski og ávöxtur
þess kærleika sé ný manneskja. Við komumst auðvitað ekki
hjá þvi að bam, sem fæðist, hafi eitthvað í sér frá foreldr-
unum þó að það sé einstaklingur út af fyrir sig. Bam er i
raun og vem gjöf sem ég held að okkur hafi verið falið að
koma á legg. Það er lika gjöf sem gerir okkur að betri
Hulda Jensdóttir rekur
verslunina Þumalínu.
manneskjum. Sem dæmi má nefna að það er sagt að börn
brosi eða hlæi minnst 500 sinnum á sólarhring en fullorðið
fólk brosir varla allan daginn. Ef maður er með litlu barni
framkallar það hið fegursta og besta hjá manni og þess
vegna er barn gjöf til lífsins. Það gerir lífið fegurra og betra
og þess vegna er barnið undursamleg Guðs gjöf.
Lítur þú á hvert bam sem kraftaverk?
Já, líka þau sem af einhveijum ástæðum hafa orðið til án
þess að beinlínis hafi verið reiknað með þeim, þó að við
óskum auðvitað eftir þvi að öll börn verði til samkvæmt
löngun, ósk og ást. Hvert einasta bam, sem verður til og
fæðist, er vissulega kraftaverk.
Kristbjörg Gísladóttir
Bam er í raun og veru gjöf sem ég held að okkur
haji veriðfalið að koma á Iegg. Pað er líka gj öf sem
g erir okkur að betri manneskjum. Sem dœmi má
nefna að það er sagí að böm brosi eða hloei minnst
500 sinnum á sólarhring enfullorðiðfólk
brosirvarla allandaginn.
11