Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 8
Þegar hann tók síðar að ferð-
ast um allt landið, vöktu pred-
ikanir hans hvarvetna mikla
athygli og má því segja, að
hann haíi átt stóran þátt í að
sannfæra alþýðu manna um
gildi spíritismans fyrir kristna
trú. Það voru líka þeir Haraldur
og Einar, sem lögðu línumar
að starfi Sálarrannsóknar-
félags íslands, þegar það var
stofnað árið 1918, en þeir
vildu gæta þess, að það yrði
fyrst og fremst upplýsinga- og
leiðbeiningaþjónusta, en ekki
sérstakt trúfélag. Haraldur
Níelsson hafði einnig mikil áhrif á
prestastéttina, enda varð hann prófessor
við guðfræðildeild Háskóla íslands við
stofnun hans árið 1911, en þeirri stöðu
gegndi hann allt til þess, þegar hann
lést árið 1928.4
Hvers vegna aðhylltust
svo margir spíritisma?
Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram,
hvers vegna Einari H. Kvaran og Har-
aldi Níelssyni tókst að vinna svo stóran
hluta þjóðarinnar til fylgis við spíritis-
mann, sem raun var á.
Kenning spíritismans um framhalds-
líf anda mannsins eftir líkamsdauð-
ann gat að mörgu leyti samiýmst þjóð-
trúnni eins og hún birtist í þjóðsögun-
um um drauga og huldufólk, en þær
nutu einmitt mikilla vinsælda meðal
þjóðarinnar um og eftir aldamót og lögðu
margir sig fram við að safna þeim. Lýs-
ingar spíritista á tilverunni eftir dauð-
ann hafa einnig þótt frekar alþýðlegar.
Dr. Pétur Pétursson, prófessor við guð-
fræðideild Háskóla íslands, hefur sett
fram þá tilgátu, að spíritisminn hafi
sem alþýðutrú hjálpað fólki til að við-
halda tengslum sínum við þær fornu
trúarhugmyndir, „sem ætíð lifðu sínu
lífi, ýmist bældar eða á einhvern hátt
samtvinnaðar hinum opinberu trúar-
brögðum kirkjunnar“, þegar íslenskt
þjóðfélag var í æ rikari mæli að taka á
sig mynd þéttbýlissamfélags í stað gamla
bændasamfélagsins. Þar sem spírit-
ismanum tókst að tengjast dultrú alþýð-
unnar, náði hann íljótlega því marki að
verða fjöldahreyling hér á landi.
□n
2Það fór ekki fram hjá alþýðunni, að
helstu valdamenn þjóðarinnar, ást-
sælustu skáld hennar og listamenn auk
fjölda menntamanna aðhylltust ýmist
spíritismann eða aðrar dultrúarkenning-
ar í upphafi aldarinnar og þótti það þvi
„fínt“ að ganga í Sálarrannsóknarfélagið
og Guðspekifélagið.
Fyrstu tvo áratugi aldarinnar ein-
kenndist íslenskt borgarasamfélag
af því, sem félagsfræðingar hafa kallað
„siðrof. Viðmið og siðferðisreglur bænda-
samfélagsins höfðu misst gildi sitt, en
verðmætamat og lífsviðhorf hins nýja og
fjölþættara þjóðfélags höfðu ekki enn
náð að festa sig í sessi. Borgara- og
millistéttimar urðu því að skapa sér til-
verurétt og sameinast alþýðunni um
einhver mikilvæg gildi, en þar sem dul-
trú á borð við spíritismann var ópólitísk
gat hún stuðlað að slíkri sameiningu.
Dultrúarhreyfingarnar hjálpuðu í raun
einstaklingnum við að skilgreina sig á
ný sem félagsveru, uppruna sinn og
tilgang.5
Afstaða þjóðkirkjunnar
Fram eftir tuttugustu öldinni var stór
hluti prestastéttarinnar annað hvort
yfirlýstir spíritistar eða umburðarlyndir í
Viðtal við Þórhall
Guðmundsson miðil
Sjónarmið spíritista
Kristur var
mesti miöillirm“
Hvernig túlkar þú dauðann?
„Ég hef alltaf sagt það, að dauðinn sé
ekki til. Þegar við hverfum af þessu
jarðvistarsvæði, þá emm við að fara
heim. Dauðinn er orð, sem hefur ver-
ið notað frá örófi alda. Maður getur
frekar sagt, að maður sé að fara
heim og hitta ættingja sína.“
tíma, sem hann og var. Hann lækn-
aði fólk. Ef spíritisminn er trúarlegt
atriði og maður fer að túlka Biblíuna
á þann hátt, þá sjáum við ýmislegt i
Bibliunni, sem við sjáum í sambandi
við spíritistana. Hann birtist og hjálp-
aði fólki til að risa upp frá dauðum.
Þetta eru lækningar og slíkir hlutir.
Spíritisminn hefur frá örófi alda verið með
manninum líkt og dulrænar gáfur.
Hvert er gildi spírítismans fyrir
krístna trú?
„Spíritisminn hefur frá örófi alda
verið með manninum líkt og
dulrænar gáfur. Ef við förum út í
trúna sem slíka, þá þurfum við ekki
að fara lengra en til Englands, en þar
er spíritisminn viðurkenndur sem
trú og þar trúa menn þvi, að Kristur
hafi verið mesti miðill og heilari allra
Ég er nú ekki að segja, að allir séu
að lækna frá dauðum. Fyrir mér er
ég kristinn maður þó að ég sé miðill."
Hvað áttu við með spírítismanum sem
trú?
„Ef maður er spíritisti, þá getur mað-
ur ekki verið í ensku biskupakirkj-
unni. Ef þú trúir á þetta og þú ert
spíritisti, þá er þetta bara þín trú.
8