Bjarmi - 01.03.1997, Síða 21
EYSTRASALTSLÖNDIN
Nýjar Biblíur
Nýjar biblíuþýðingar verða gefnar út í Eistlandi, Lett-
landi og Litháen á þessu ári samkvæmt upplýsingum
frá Sænska biblíufélaginu. Þær biblíuþýðingar sem
hafa verið í notkun eru annað hvort frá því íyrir valda-
töku kommúnista og þvi orðnar gamlar eða þær hafa
verið gerðar af mönnum sem hafa búið lengi í útlegð og
eru þvi ekki á nógu góðu máli.
í Litháen hefur verið gerð ný þýðing úr frummálunum
en í Eistlandi hefur þýðing sem gerð var í útlegð verið
endurskoðuð og lagfærð. í Lettlandi er nú unnið að nýrri
þýðingu en meðan beðið er eftir henni verður geíin út
lagfærð þýðing sem gerð var í útlegð.
EGYPTALAND
Kristilegur háskóli
í haust hefur íyrsti kristilegi háskólinn í Egyptalandi
starfsemi. Þeir sem standa að stofnun skólans eru um
60 auðugir menn í viðskiptalífinu og opinberu lífi sem
allir tilheyra koptísku kirkjunni. Kostnaður er áætl-
aður um tveir milljarðar króna. Tekin verða frá 600
pláss handa kristnum og islömskum stúdentum.
BÚRMA:
Kirkjur brenndar
Hermenn, er lúta yfirráðum herstjómarinnar (SLORK) í
Búrma í Asíu, hafa ruðst inn í þorp, sem eru þekkt íýrir
að íbúarnir eru kristnir, og brennt kirkjur, segir
kristilega mannréttindastofnunin Trumpet of Christ
Intemational í Tælandi.
Hermennimir vilja koma upp búddahofum í kristnu
þorpunum. Þeir pynda og drepa kristna menn sem
neita að tilbiðja skurðgoðin. Einnig taka þeir unga,
kristna drengi með valdi og fara með þá í búddahof til
að fá þá til að kasta trúnni.
í einu þorpinu hugðust ofsækjendurnir neyða leið-
toga búddamunkanna til að gefa þeim bensín svo að
þeir gætu brennt þorpskirkjuna. Munkurinn neitaði og
kvað búddatrúarmenn og kristna hafa búið ámm sam-
an í sátt og samlyndi. Hermennimir vildu samt kveikja
í kirkjunni en þá hótaði munkurinn að bera eld að
búddahofinu og skella skuldinni á hermennina. Héldu
þeir síðamefndu þá á brott við svo búið.
Ofangreind mannréttindastofnun óskar þess að
kristnir menn biðji fyrir trúsystkinum í Búrma.
/SlHEEHSETGOrrESLAMQ'LS t
yœRwmssmmcrrnsíisis ^
'\DNDEAY1CH r-'CH GIS.'CTHABEdOHd*^
WD WIE/WOSFS INDER WSTEN
nrrtSCKLANGL tWGHETHATALSOAÍVS
DES MENSCHEN SON AtH ERHŒKET
WERDLN AVTDÆALIf DŒ ANIN GLEV
BENNKH TYEHICMN WEFDEN SOSDERi
CWSEWIGELEŒN HABEN-lCHAN:m-
M , D ' L //// .
Veggteppi frá 16. öld sem sýnir
Martein Lúther í predikunarstóli.
Lútherskir
61 milljón
Árið 1996 fjölgaði þeim sem tilheyra lúthersk-
um kirkjum um 800 þúsund. Nú eru
lútherskir um 61 milljón í heiminum og
tilheyra flestir þeim 134 kirkjum sem eru í
Lútherska heimssambandinu, en þaðan eru
tölumar komnar.
Sænska klrkjan er stærsta lútherska kirkj-
an með 7,6 milljónir meðlima. Næst er
Evangelísk-lútherska kirkjan í Ameríku með
5,2 milljónir. Lútherska klrkjan í Finnlandi er
í þriðja sæti með 4,6 milljónir og norska
kirkjan í því fjórða. Flesta lútherska menn er
að finna í heimalandi Lúthers, eða Þýskalandi,
en meðlimir hinna ýmsu lúthersku kirkna þar
í landi eru samtals 14,2 milljónir. í Asíu,
fjölmennustu heimsálfunni, eru aðeins 4,9
milljónir lútherskra manna.
Mekane Yesus kirkjan í Eþíópíu er sú lúth-
erska kirkja sem hefur vaxið mest á árinu en
þar fjölgaði meðlimum um 400 þúsund. í
Afríku í heild fjölgaði lútherskum um 700 þús-
und. í Asíu, Evrópu og Mið-Ameríku fjölgaði
lútherskum einnig en í Norður-Ameríku fækk-
aði þeim. Sömu sögu er að segja um
Þýskaland en þar fækkaði lútherskum um 200
þúsund á sl. ári. Athygli vekur að í Rússlandi
fjölgaði lútherskum úr 50 þúsund árið 1995 í
250 þúsund árið 1996.