Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 22
Margrét Jóhannesdóttir
L' Æbri
Athyglisvert fræðslusetur
Upphaf L Abri
Edith og Francis Schaeffer komu frá
Bandarikjunum sem kristniboðar til
Sviss. Evrópa var enn þá í sárum eftir
seinni heimsstyrjöldina, ekki bara eftir
sprengingar sem ollu efnalegu og líkam-
legu tjóni, heldur líka vegna þeirrar
„sprengingar" sem hafði átt sér stað á
sviði trúar, gildismats og hugsunar-
L| Abri er franskt orð og þýðir skjól. Samtökin L'Abri Fellowship voru
■' stofnuð 1955 þegar hjónin Edith og Francis Schaeffer opnuðu heimili
I sitt sem andlegt og vitsmunalegt skjól fyrir fólki í leit að svörum við
spumingum lífsins. Þau áttu þá heima í litlu þorpi í svissnesku ölpunum. Inn á
heimili þeirra kom fólk alls staðar að úr Vestur-Evrópu og fékk hjálp bæði til
þess að þekkja og lifa biblíuleg, kristin sannindi. í dag, rúmum fjörutíu árum
síðar, eru sjö L'Abri miðstöðvar víðs vegar um heiminn með þetta sama
markmið, að kenna biblíuleg, kristin svör og lifa kristnu samfélagi sem vitnar um
tilvist Guðs.
true“, var eitt af sérkennum Schaeffers.
En eftir fimm ára starf í Evrópu kemst
Francis Schaeffer í trúarkreppu. Vanda-
mál hans var tvíþætt. í fyrsta lagi sér
hann hjá þeim mönnum, sem halda á
lofti rétttrúnaðcU'stefnu, svo lítið af þeim
veruleika sem Biblían talar um sem
ávöxt kristinnar trúar. í öðru lagi var
þessi veruleiki kristinnar trúar ekki
eins sýnilegur í hans eigin lífi eins og
fyrst þegar hann komst til trúar.
Kreppan knýr hann til að hugsa afstöðu
sína til kristinnar trúar upp á nýtt.
Hann er heiðarlegur og gerir eiginkonu
sinni það ljóst að útkoma pælinganna
mun koma til með að hafa aíleiðingar
fyrir líf hans og starf. Jafnvel gæti
niðurstaðan orðið að hann sneri aftur
til efasemdarhyggju sem hann aðhylltist
áður en hann tók kristna trú. Fyrir
Edith, konu hans, var þetta mjög erfið-
ur tími, þetta var timi fyrir bæn. Eftir
tveggja mánaða erfiða glímu sannfærð-
ist Schaeffer um að það séu góðar
ástæður og nægilegar til þess að vita um
tilvist hins alvalda persónulega Guðs
(infinite-personal God). Og hann sá
hvaða gildi friðþægingarverk Jesú hefur
íyrir lífið hér og nú, og þessi uppgötvun
olli straumhvörfum i lífl hans. Blóð Jesú
hefur ekki einungis gildi íyrir lífið eftir
dauðann, heldur er samfélag við Guð
raunveruleiki í sérhveiju andartaki lifs-
ins. Grundvöllur trúarlífsins er dauði og
upprisa Krists, hans kraftur og sigur
meðtekinn sérhverja stund í trú.
Margrét Jóhannesdóttir er
hjúkrunarfræðingur og veröandi djákni.
háttar. Schaeffer-hjónin ferðuðust um
Evrópu, og það var þeim mikilvægt að
halda fram hreinni, kristinni kenningu
og hreinni kirkju, án málamiðlunar við
hugsunarhátt samtimans. Sannfæringin
um að kristin trú sé sönn, „christianity is
Schaeffer sá að í stað þess að lifa í eigin
mætti getur hann í lífi sínu reiknað með
fyrirheitum Guðs. Þessi uppgötvun gaf
honum þakklæti, lofsöng og gleði á ný
yfir því að vera þjónn Krists.
Lif SchaefTer-hjónanna tók nýja stefnu.
Þau vildu lifa lífi sem gerði ráð fyrir
Guði og treysta fyrirheitum hans. Þau
ákváðu að þiggja ekki lengur laun frá
kristniboðsfélagi sínu, heldur biðja Guð
að sjá fyrir daglegum þörfum sínum. Á
þennan hátt fannst þeim Guð kalla þau
til að treysta umhyggju Guðs og vera
vitnisburður fyrir umheiminum um
raunverulega návist hins lifandi Guðs.
Þau vildu ekki skipuleggja framtíðar-
starf heldur biðja Guð um handleiðslu
til að fara inn í hans áætlun.
/
AL'Abrikemur fólk
sem hefur pörffyrir að
komast burtfrásínu
venjulegu umhverfi til
pess að gefa spurningum
sínum gaum og skoða
svörin.
Á þessum tima var dóttir þeirra við
háskólanám í Lausanne og byrjaði að
bjóða vinum með sér heim um helgar.
Stúdentamir spurðu marga mikilvægra
spuminga og umræðumar stóðu kvöld
eftir kvöld langt fram á nótt. Gestimir
upplifðu á þessu heimili umhyggju, hlýju
og tækifæri til þess að spyrja, hugsa og
finna svör. Schaeffer-hjónin trúðu því
að það væri hægt að ræða um sann-
leikann. Og þau trúðu þvi að Guð mundi
sjá fyrir húsiými og mat handa öllum