Bjarmi - 01.03.1997, Síða 23
þeim sem hann sendi inn á heimili
þeirra. Daglega urðu þau vitni að bæna-
svörum. Þannig hófst L'Abri og í hverri
viku komu fleiri og fleiri inn á heimili
þeirra til að gista og ræða um Guð, lífið
og tilveruna. Alls staðar að kom ungt
fólk. Flestir voru námsmenn frá háskól-
unum í Sviss og nágrannalöndunum;
Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bret-
landi. Þetta voru einstaklingar frá mörg-
um þjóðum, af mörgum trúarbrögðum
og „ismum". Fljótlega varð Schaeffer-
hjónunum það ljóst að hér var ekki
lengur um prívat fjölskyldulíf að ræða.
Þetta var erfitt líf, en Edith Schaeffer
segir í bókinni sinni um L'Abri að þau
hefðu ekki beðið um auðvelt líf, heldur
raunverulegt líf með Guði, um Guðs
samfélag sem sýnilegan veruleika.
Lífið á L'Abri
L'Abri miðstöðvar eru víðs vegar um
heiminn. Tvær eru í Bandaríkjunum,
auk Schaeffer-námsstofnunarinnar. í
Evrópu er L'Abri í Svíþjóð, Hollandi,
Sviss og Englandi. Nýlega hefur verið
stofnað L'Abri i Kóreu. Á L'Abri kemur
fólk sem hefur þörf iýrir að komast burt
frá sínu venjulegu umhverfi til þess að
gefa spumingum sínum gaum og skoða
svörin. Þetta eru einstaklingar frá öllum
heimshomum, fólk á öllum aldri. Sumir
gista fáeina daga og aðrir allt að þremur
mánuðum. Margir sem koma eru þrosk-
aðir, kristnir menn sem vilja læra meira.
Sumir em ekki kristnir og koma til að
leita að svömm við spumingum. Svo er
stór hópur sem kemur til þess að reyna
að leysa úr eigin persónulegum vanda-
málum hvort sem þau eru vitsmuna-
legs, andlegs, tilfinningalegs eða sið-
ferðislegs eðlis.
Hver og einn fær eigin leiðbeinanda í
sínu námi og til þess að ræða persónu-
leg málefni. Ekkert ákveðið námsefni er
lagt fyrir, heldur er öllum frjálst að
stúdera eigin áhugasvið. Nemendumir
hafa til umráða stórt safn af kasettu-
spólum með fyrirlestrum og safn af
L'Abri bókum. Á matmálstímum, sem
eru inni á heimili starfsfólksins, eru
umræður og tækifæri til spurninga.
Fjórir klukkutímar á dag eru ætlaðir
fyrir námið, og í fjóra klukkutíma er
vinnutími. Þá þarf að þrífa, gera við,
rækta garðinn, elda mat o.s.frv. Þó að
verkefnin séu mörg er þetta líka mikil-
vægur tími til að hugsa, ræða málin og
kynnast betur. Hér gefst tækifæri að lifa
það sem verið er að læra og þjóna hvert
öðm.
Grundvallarviðhorf
Á L'Abri er lögð mikil áhersla á kristna
trú sem sannleika. Þar er haldið fram
að það sem Biblían segir samræmist
veruleikanum eins og hann er. Kristin
trú er ekki bara lífstíll, ekki bara andleg
upplifun, ekki einn af mörgum trúar-
legum valmöguleikum, heldur er kristin
trú sannleikurinn um það sem er. Þessi
staðhæfing leiðir af sér tvær áherslur. í
fyrsta lagi að það verður að taka spum-
ingar alvarlega og ræða þær heiðarlega.
Ef kristin trú er sannleikurinn, stenst
hún vitsmunalega og er hægt að rök-
ræða. Áhersla er lögð á mikilvægi þess
að hugsa málin til botns og finna full-
nægjandi svör. í öðm lagi, ef kristin trú
er sannleikurinn, skiptir trúin máli íyrir
allt lífið og ekki bara fyrir takmarkað
andlegt svið. Þannig snertir kristin lífs-
skoðun viðskipti, stjómmál, vísindi, sál-
fræði, listir o.s.frv. Það er þýðingarmikið
að þróa kristna hugsun og biblíulegt
sjónarhom á öllum sviðum lífsins.
Á L Abri er mikil áhersla lögð á hugs-
un, en hið vitsmunalega er ekki eina
markmiðið. Frá upphafi hefur L'Abri
viljað bera vitni um tilvist hins persónu-
lega Guðs, ekki bara með rökræðum,
heldur gegnum raunvemleika i trúar-
lífinu, breytta einstaklinga og bæna-
svör. Hið yfirnáttúrulega er raunveru-
leiki. Guð er ekki heimspekileg hug-
mynd eða guðfræðilegt hugtak, heldur
lifandi Guð sem lætur sig heiminn
varða og stendur við loforð sín.