Bjarmi - 01.03.1997, Page 25
vitund og eiginleika einstaklingsins með
þvi að fjarlægja allar andlegar eða sál-
rænar hindranir. Þær eru íyrst og fremst
bældar tilfinningar eða minningar, m.a.
frá íyrri tilveruskeiðum, sem geymdar
eru í undirmeðvitundinni og leiða oft af
sér óskynsamleg viðbrögð og hegðun.
Þannig eru mótbyr og erfiðleikar í lífi
fólks gjarnan útskýrðir sem afleiðing
atvika á fyrri tilveruskeiðum þess. Með
því að fjarlægja eða hreinsa í burtu
minningar og tilfinningar sem byggja á
slíkri reynslu uppgötvar fólk sinn sanna
persónuleika og nær fullu valdi yfir efni,
orku, rúmi og tíma. Vísindatrúin býr
yfir tækninni til þess og kennir fólki
hvemig það á að fara að. Meðferðin fer
fram undir handleiðslu leiðbeinanda
sem spyr spurninga og hlustar. Jafn-
framt er notað mælitæki sem nemur
rafræn viðbrögð húðarinnar. Markmiðið
er að hreinsa hugann af sálrænum við-
brögðum og hindrunum sársaukafullra
tilfmninga og reynslu. Auk þess, sem að
framan greinir, hefur okkúltismi tengst
vísindatrúnni og hugmyndir um geim-
vemr, andleg „ferðalög" í tíma og rúmi
bæði milli alda, tilvemskeiða og stjömu-
kerfa.
Tákn vísindakirkjunnar er kross en
ekki í sama skilningi og í kristninni
heldur er litið á krossinn sem fornt
trúartákn þar sem Jrvertréð táknar efnið
og hið lóðrétta andann.
Stofnandinn L. Ron Hudbbard lést
árið 1986, 74 ára að aldri. Hann hafði
þá eytt síðustu tveim árum ævi sinnar á
afskekktum risabúgarði í Kaliforníu.
Heber C. Jentzch tók við sem leiðtogi
safnaðarins eftir hann.
Heimildir:
• The New Encyclopædia Britannica, 10.
bindi, 15. útg. 1989, Chicago.
• Larson, B. 1989. Larson's New Book of
Cults. Tyndale House Publishers, Inc.
Wheaton, lllinois.
• McGuire, M. B. 1992. Religion: The
Social Context. Wadswod Publishing
Company, Belmont, California.
• Moos, K. 1989. Scientology: Videnskab
eller svindel. Havmágen, Silkeborg.
• Time Magazine, no. 4, 27. janúar 1997.
• Morgunblaðið 24. desember 1995, 1.
október 1996, 23. október 1996 og 10.
janúar 1997.
BOKASKAPURINN
Titill: One to One - How to share your faith with a friend
Höfundur: Michael Green
Útgefandi: Moorings Publishers
Undir
fjögur
augu
w
Amm saman hafa kristniboðar frá Vesturlöndum ferðast til þriðja
heimsins til að boða trúna á Jesú Krist. Sú mynd sem íbúar
þessara landa fengu af Vesturlöndum var sú að þar bjó kristið fólk.
En nú er orðið svo að kristniboðar frá þriðja heiminum eru famir að
koma til okkar til að segja okkur frá Jesú. Það er áfall íyrir þetta fólk
að uppgötva og sjá hve þjóðfélag okkar er orðið afhelgað (secularised),
eins og það sé mögulegt að trúa alls ekki á neitt.
Bókin „One to One“ fjallar um það hvemig við getum leitt vini okkar
til trúar á Jesú Krist í þessu þjóðfélagi sem við lifum í. Við þurfum
ekki að bíða eftir einhverjum sérstökum kristilegum viðburði til að
geta vitnað um trú okkar, á hveijum degi fáum við tækifæri til þess.
Öll eigum við ættingja, vini, samstarfsmenn og samferðafólk sem ekki
þekkir Jesú. f bókinni em okkur gefnir ýmsir hagnýtir punktar um
það hvemig nálgast má þetta fólk með orð Guðs. Að brúa bilið á milli
kirkjunnar og umheimsins er veigamikill þáttur. í heiminum en ekki
af heiminum, eins og Jesús
sagði. Það er mikilvægt að
mæta fólki eins og það er og þar sem það er. Þegar þetta hefur tekist
er komið að þvi að brúa bilið á milli fólksins og Guðs. Þá mun reyna á
það hvort við treystum Guði og hans orði. Getur lif okkar og háttemi
borið vitni urn þann Guð sem við þekkjum?
Það er mjög mikilvægt íyrir okkur að þekkja fagnaðarerindið. Það er
til lítils að vekja áhuga einhvers á þvi ef við getum ekki útskýrt það
fyrir honum. Við þurfum ekki að vera útlærðir guðfræðingar til þess
að þekkja boðskap Jesú. Við þurfum að vera viss um það hvers vegna
við trúum á hann og af hveiju það er mikilvægt að fólk finni þann veg
sem liggur til hans. Við getum ekki búið til trú hjá neinum en Guð
hefur ákveðið að nota okkur til þess að hjálpa til. Við fáum að njóta
þeirra forréttinda að sjá fólk snúa sér til Guðs. Þegar það hefur gerst
þá er mikilvægt að við séum til staðar fyrir þann einstakling sem
hefur eignast nýtt líf í Jesú.
Vegna þess að við erum mannleg þá hættir okkur til að gera mistök
þegar við boðum orð Guðs. Höfundur tiltekur nokkur algeng mistök
sem við gætum lent í og fjallar einnig um það hvernig við getum
forðast þau.
Bókin er ætluð sem hjálp og uppörvun til handa þeim sem vilja
koma öðrum til trúar. Á við og dreif í henni eru dæmi frá höfundi og
útskýringar á þvi sem hann er að tala um. Bókin er þvi aðgengileg og
góð lesning.
„Fjöldatrúboð er ekki besta leiðin, en það virðist vera sú leið sem
Guð hejur gejið mér að Jara í trúboði, og ég verð að vera henni trúr.
Besta leiðin í trúboði er sú þegar tvær manneskjur tala saman og
önnur leiðir hina til Jesú. “ Billy Graham.