Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 7
Kirkjan ætti að efna til umræðu um pau mál sem eru í deiglunni og parfað ræða í pjóðfélaginu og hvetja pannig fólkið til að mynda sér skoðanir út frá kjarnaatriðum kristinnar trúar. hvetja þannlg fólkið til að mynda sér skoðanir út frá kjarnaatriðum krist- innar trúar. Kirkjan verður að hvetja fólk til þess að lifa trú sina. En til þess að við getunr lifað trú okkar verðum við að hafa skoðun á því hvað það er sem við ætlum að hafa sem leiðarljós í trú okkar. Allar manneskjur eru mikil- vægar. Skoðanir okkar allra eru mikil- vægar og við megum ekki gera mismun á þeim sem eiga að fá að segja og þeim sem ekki eiga að fá að segja. En auð- vitað er þetta miklu erfiðara verk heldur en að setja upp apparöt sem segja: „Þetta skal vera skoðun kirkjunnar." “ Hvert er hlutverk leikmanna og leikmannahreyjlnga að þínu mati? „Ég var sjálf í KFUK á ákaflega merki- legum tímum. Það er sumt sem ég er ekki sammála núna en það gerir ekkert til. Til dæmis þótti það ekki gott að við færum í bíó, en þetta er smáræði hjá öllu því góða sem okkur var kennt. Það var í KFUK sem ég heyrði þetta óendan- lega mikla fagnaðarerindi að Jesús er upprisan og lífið og það hef ég aldrei efast um, aldrei nokkurn tíma. Leik- mannahreyfingar innan kirkjunnar eru gullinu dýrmætari og ég tel að það væri gott íyrir kirkjuna og vonandi fyrir félög- in að þær tengdust meira og á beinni hátt starfi kirkjunnar. Það væri æskilegt ef starf KFUM og K væri tengt söfn- uðum, kirkjunni í viðkomandi hverfi. Við ættum að starfa saman sem eitt aíl eftir þvi sem okkur er unnt. En sé það ekki unnt, eins og til dæmis sýnir sig í þvi að sumar hreyfingar vilja fara úr Þjóðkirkjunni, þá finnst mér að þær eigi að fara í stað þess að reyna að semja sig að einhverju sem þær vilja ómögulega semja sig að. Þá geta þær fengið sitt frelsi og við skulum virða það frelsi. Hefur íslenska þjókirkjan einhverju hlutverki að gegna við boðun kristinnar trúar meðal annarra þjóða? „Ég hef svo afskaplega lítið umgengist fólk af öðrum trúarbrögðum og það litla sem ég hef gert það þá hef ég ekki verið að reyna að hafa nein áhrif á trú þess. En ég þekki marga kristniboða sem hafa farið til dæmis til Eþíópíu og þekkja þessa sýn. Þau vita hvemig á að mæta þessu fólki. Þau sjá og vita að heiðindómurinn fjötrar þetta fólk. Ég tek fullt mark á þvi sem kristniboðarnir segja um fjötra heiðninnar og treysti þeim til að vinna þetta verk.“ Hvemig þjóðkirkju vilt þú sjá við upphaf nýrrar aldar? „Ég vil sjá Þjóðkirkju sem hjálpar okkur til að nota trú okkar í daglegu lífi og ég tel að til þess þurfum við að opna kirkj- urnar og að greiða prestunum betri veg til hamingju í starfi sínu.“

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.