Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 28

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 28
Á DÖFINNI í SUMAR • Á DÖFINNI í SUMAR • Á DÖF Almenna mótió í Vatnaskógi 27. - 29. júrfeí Almenna, kristilega mótið í Vatnaskógi verður í lok júni eins og undanfarin ár. Ætlun- in er að gefa því andlitslyftingu. Þar mun ríkja mikill ferskleiki, sem þátttak- endur munu án efa kunna vel að meta. Tónlistarmaður frá Noregi Norski tónlistarmaðurinn Hans Inge Fagervik mun koma sérstaklega til íslands til að vera á mótinu. Hann er þekktur fyrir tónlist sína bæði í Noregi og víðar á Norðurlöndum. Hann leikur tónlist íyrir börn og fullorðna og hefur gefið út fjölda geisladiska. Hann mun halda tónleika á föstudagskvöldið 27. júní í Vatnaskógi og taka þátt i fjöl- skyldusamkomu á laugardeginum 28. og kvöldtónleikum sama dag, auk þess sem hann mun e.t.v. koma fram á öðr- um stundum mótsins. Til þess að íslendingar fái notið tón- listar hans sem best mun hann halda tónleika í húsi KFUM & K við Holtaveg á fimmtudagskvöld 26. júní og einnig á sunnudagskvöld 29. júní kl. 20:30. Aðgangsmiði mun kosta 500,- kr. Hans Inge hefur komið tvisvar áður til íslands og haldið tónleika. Tónlist Margs konar tónlistarkraftar munu koma fram á mótinu t.d. kór KFUM & K, bæði á samverustundunum og á kvöldtónleikunum á laugardagskvöldið. Tónleikunum mun ljúka með lofgjörðar- stund. Biblíufræðsla og útivist Boðið verður upp á góða biblíufræðslu og vandaða, íjölskylduvæna útidagskrá á laugardeginum sem allir aldurshópar geta notið. Börnin geta notað leiktæki Vatnaskógar allt mótið. Á sunnudeginum verður guðsþjón- usta og kristniboðsstund með þátttöku ungs fólks og mikilli tónlist. Óvenjumikið úrval verður á bókaborð- inu og verðið ótrúlega gott. Unaðsleg náttúra Vatnaskógar er til- valin til útiveru. Þar er hægt að njóta einveru í kyrrð skógarins til bænar og íhugunar. Kapellan verður opin og boðið verður upp á sálusorgun og fyrirbænar- þjónustu. Bænavakt verður allt mótið. Gerum almenna mótið að ógleyman- legri helgi þar sem allir fá að njóta sín án tillits til aldurs. Biðjum Guð um að blessa mótið og gefa gott veður. Hitt- umst í Vatnaskógi og njótum samfélags- ins. Löngumýrarmótið 18. - 20. Júlí Dagskrá verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Hægt er að dvelja á skól- anum og kaupa allan mat. Einnig er hægt að tjalda og sjá um matinn sjálfur eða kaupa einstakar máltíðir. Falleg náttúra Skagafjarðar er góð umgjörð um mótið. Sr. Helgi Hróbjartsson, kristniboði verður aðalræðumaður mótsins. Innritun fer fram hjá Margréti Jóns- dóttur á Löngumýri í síma 453 8116. ■Z8

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.