Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 12

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 12
Þaðan fór ég tll Hallgrímssafnaðar, árlð 1975.“ Hvers vegna gefurðu kost á þér til biskupsembættis? „Ég gekk til þjónustu við kirkjuna og ann henni og hef notið margs af hennar hálfu. Ég hef fundið i vaxandi mæli væntingar til þess að ég gefi kost á mér til þessa þjónustuhlutverks í kirkjunni og álít það skyldu mína að bregðast þeim ekki. Ég gef ekki kost á mér vegna þess að ég telji mig hafa einhverja yfir- burði. Ég tel reyndar ekki að það sé fyrst og fremst sterkur leiðtogi sem kirkjan þarf á að halda. Það eru ótal góðir hlutir að gerast innan kirkjunnar og við þurfum ekki að bíða eftir biskupi til að framkvæma þá. Biskupinn, eins og hver annar prestur, er kallaður til að boða orðið, veita sakramentin, annast sálgæslu, rannsaka ritningarnar og biðja fyrir söfnuðinum. Þessir þættir skipta meginmáli í þjónustunni." Þjónandi kirkja Hvaða málum vilt þú helst vinna brautargengi ef þú verður biskup og hvemig ætlar þú að koma þeimfram? „Ég tel að mikilvægasta þjónusta kirkj- unnar í samtímanum sé að vera biðj- andi, boðandi og þjónandi. Þjónandi kirkja leitast við að þjóna náunganum í kærleika, að láta trúna bera ávexti í verkum daglegs lífs í líknarþjónustu. Meginhlutverk hennar er ekki að við- halda sér sem stofnun, veija hagsmuni sína í kerfinu, heldur að þjóna þeim sem Kristur kom til að þjóna og gefa líf sitt í sölurnar fyrir. Kirkja, sem tekur ekki mark á skyldu sinni við að líkna þjáðum hér og annars staðar, man ekki eftir sínum minnsta bróður, bregst. Líknarþjónusta er hluti af eríndi kirkj- unnar. Hún er ekki alltaf Ijós í velferðar- kerfi okkar hér á landi. Lúthersk kirkja hefur lagt höfuðáherslu á samfélagslegar skyldur, samhjálp og velferð. Kirkjan verður að halda ríkisvaldinu við efnið í þessum efnum. Nú stöndum við frammi fyrir því að þrengt er að lítilmagnanum. Hér þarf kirkjan að áminna og brýna samfélagið og vera duglegri og djarfari að koma til aðstoðar og hjálpar þar sem vegið er að fólki. Sama er að segja um kristniboð og hjálparstarf meðal fátæk- ari þjóða. Hjálparstofnun kirkjunnar vinnur mjög merkt starf en er alltof veik. Þetta þarf að verða miklu öflugri þáttur í lífi kirkjunnar. Kirkjan þarf að læra að gefa, fórna. Við erum allt of bundin af því að miðla fé sem er ósýni- legt og kemur ekki frá okkur sjálfum. Raunveruleg kærleiksþjónusta á sér stað þegar maður finnur til. Við þurfum að horfast í augu við að við erum fólk á ferð. Við þurfum að ná niðurstöðum um ýmsa vandasama hluti. Ég vil stuðla að því að sú sam- ræða fari fram innan kirkjunnar og á milli kirkjunnar og samfélagsins sem hún er hluti af. Ég held að það sé far- sælt að leita sameiginlegra lausna og niðurstöðu. Ég vil stuðla að því að byggja brýr þar sem gjár eru á milli hópa manna og einstaklinga. Á tímum þegar æ fleiri missa sjónar á tilgangi lífsins hefur kirkjan mikið verk að vinna að ræða við samtíma sinn um það sem máli skiptir og miðla með veru sinni, orð- um og verki, trú á lífið og lífi í trúnni." Hver er kjami kristinnar trúar að þínum skilningi? „Það er Jesús Kristur, krossfestur og upprisinn.“ Hvert er kennivald Biblíunnar í trúar- og siðferðisefnum að þínu áliti? „Hún er Guðs heilög ritning, orð Guðs til mannanna. Hún flytur okkur lögmál og fagnaðarerindi. Hún er mælistikan í siðferðisefnum. Umfram allt er hún vitnisburður um Krist. Við lesum Biblí- una með honum, í anda hans.“ Jesús sagði að hann væri vegurinn sannleikurinn og lífið og að enginn kæmi tilföðurins nemafyrir hann. Emfleiri leiðir til hjálpræðis en trúin á hann? Hvað um önnur trúarbrögð? „Guð hefur lagt lögmálið í brjóst mann- anna. Hann er alls staðar að verki í mannlífinu. Orðin, „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið, enginn kemur til föðurins nema fyrir mig“, má upplifa sem lokandi orð en einnig opnandi sem ljúka upp vegna þess að við finnum lög- málið og lögmálsleiðina í öðrum trúar- brögðum sem ekki er fær. Kristur kem- ur með friðþægingu, sáttargjörð, fyrir- gefningu syndanna og lýkur upp dyrun- um til föðurins. Skylda okkar er að boða og vera náunganum Kristur. Okk- ur ber skylda til að boða hann um allan heim sem veg til lífsins. Kristur er veg- urinn, dyrnar. Hins vegar er það ekki okkar að dæma hverjir verða hólpnir og hverjir ekki. Skylda okkar er að boða.“ Hvert er gildi upprisu Jesú í kristinni trú? Hvemig getur kirkjan mætt syrgjendum og dauðvona með þann boðskap á tímum þegar dulhyggja, spíritismi og miðilsfundir virðast standa mörgum næst? „Sé Kristur ekki upprisinn, „þá er ónýt prédikun vor og ónýt líka trú yðar“, eins og Páll postuli segir. Kirkjan stendur og fellur með því. Allt atferli hennar og líf er meiningarlaust án upprisu Jesú Krists. Það er ekkert nýtt að kirkjan eigi undir högg að sækja með fagnaðar- erindið. Orð krossins hefur alltaf verið hneyksli og heimska. Boðun upprisunnar og fagnaðarerind- isins nær aldrei árangri ef orðið nær ekki tökum á manni. Ástæða þess að fólk laðast að spíritisma og þess háttar er sú að það vantar á leiðsögnina og fordæmi hins krístna manns. Menn eru allt of uppteknir af þvi að leita að tung- um manna og engla og trú sem færir fjöll úr stað. En það sem vantar er hin ágætari leið, að lifa kærleika Krists." Hver em helstu vandamál islensku þjóðkirkjunnar nú um stundir og hvaða úrlausnarerefni eru brýnust í því sambandi? „Kirkjan á við ótal vandamál að stríða. Við getum lesið bréfin til allra sjö safnað- anna í Opinberunarbókinni og fundið ýmislegt sem hittir beint í mark og á við kirkjuna á íslandi. Hún er örugglega allt of makráð og værukær og saltið í henni hefur dofnað. Hún tendrar ekki og eldur- inn í henni er kulnaður. En samt er margt gott að gerast þar. Það er t.d. mikill fjöldi fólks sem vill hlúa að henni. Ég tel að mikilvægasta pjónusta kirkjunnar í sam- tímanum sé að vera biðjandi, boðandi og pjónandi.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.