Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 8
„Eg vil sjá þróttmilcla þjóðlcirlcjn sem lifir í góðri sátt við þjóðina" Rætt viö sr. Gunnar Kristjánsson Gunnar Kristjánsson er prestur á Reynivöllum í Kjós og próf- astur í Kjalarnessprófasts- dæmi. Hann var fyrst beðinn að segja svolítið frá sjálfum sér. „Ég hef búið hér á Reynivöllum í tæp nítján ár ásamt konu minni Önnu M. Höskuldsdóttur, kennara, og Höskuldi stjúpsyni mínum, sem nú er reyndar farinn að búa annars staðar. Ég fæddist á Seyðisfirði 18. janúar 1945 þar sem foreldrar mínir bjuggu um skeið vegna starfs föður míns en hann var skipstjóri. Móðir mín heitir Emma Guðmundsdóttir en faðir minn hét Kristján Gunnarsson; hann lést vorið 1969, þá var ég langt kominn i guðfræðinámi við Háskóla íslands. Ég lauk guðfræðiprófi haustið 1970 og fór þá til framhaldsnáms við Boston háskóla i Bandarikjunum, þar lauk ég mastersprófi í trúfræði vorið 1971, var síðan um tíma óvígður aðstoðarprestur i lútherskum söfnuði í Minnesota. Ég vígðist til Vallanessprestakalls haustið 1971 og þjónaði þar í fjögur ár, auk þess hafði ég aukaþjónustu á Seyðisfirði í tvö ár. Því næst bjuggum við í Þýska- landi í þrjú ár þar sem ég skrifaði doktorsritgerð á sviði kennimannlegrar guðfræði um trúarleg viðhorf í Heims- ljósi Halldórs Laxness. Ég var einnig sóknarprestur í hálft ár í litlum bæ milli Lúbeck og Hamborgar. Við ferðuðumst mikið á þessum Þýskalandsárum, sótt- um margar ráðstefnur og námskeið og áttum þama verulega góð ár. Við kom- um að Reynivöllum haustið 1978 og þar höfum við verið síðan og kunnað vel við okkur." Alltaf verið trúhneigður Hvemig vaknaði trúaráhugi þinn? „Mér er sagt að ég hafi alltaf verið afar trúhneigður og ekki var uppeldið til að spilla fyrir. Svo bjó ég i bemsku nálægt KFUM-húsinu í Laugarneshverfinu í Reykjavík og fór að sækja þar fundi níu ára og sótti þá eins og aðrir strákar í hverfinu af miklum áhuga. Ég varð síðar sveitarstjóri í KFUM og starfs- maður í Vatnaskógi í þrjú heil sumur. Ég sótti fundi í KSS ámm saman og var þar í stjórn um tíma, einnig var ég formaður Kristilegs stúdentafélags. Þegar ég hóf nám í guðfræðideild haustið 1965 fjarlægðist ég þessi félög og yfirgaf þau alveg á fyrstu árum mínum í guðfræðideildinni. Ástæður vom sjálfsagt margar. Sá guðræknisstill sem þar var iðkaður féll mér ekki en það sem vó þó þyngst á metunum var persónulegs eðlis. Það var alvarlegur sjúkdómur yngri bróður míns sem vakti sífellt þyngri og þyngri spurningar um trú og tilgang í huga mínum. í ljósi þessarar reynslu virtist mér guðfræðin á Amtmannsstígnum heldur innhverf og fjarlæg hinum trúarlegu spurningum eins og þær koma fram í lífi fólks.“ Hvers virði er trú þín þér og hvemig rækirðu hana? „Trúin er svarið sem ég leitaði að við spurningunni um tilgang. Hún veitir mér hugrekki til að lifa og takast á við lífið og styður mig til þess að horfast í augu við hinar þungu spumingar lífsins sem prestar verða oft að glíma við í starfi sínu og í sínu eigin lífi eins og aðrir. Trúin er svarið sem ég leitaði að við spurningunni um tilgang, hún veitir mér hugrekki til að lifa og takast á við lífið.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.