Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Síða 13

Bjarmi - 01.06.1997, Síða 13
Á tímum þegar æ fleiri missa sjónar á tilgangi lífs- ins hefur kirkjan mikið verk að vinna að ræða við samtíma sinn um það sem máli skiptir. Þrátt fyrir alla hennar bresti og mein þá er Kristur að verki í kirkjunni í orði sínu og sakramentum. Kirkjan stendur sig vel þar sem hún mætir fólki á krossgötum ævinnar. Barnastarf kirkjunnar virðist vera víða nokkuð gott. Án efa er mikilvægasta starf kirkjunnar inni á heimilunum þar sem mæður og feður kenna börnum sínum að biðja. Ég held að kirkjan sinni öldruðum dável víða í söfnuðum. En hún vanrækir það hlutverk sitt að styrkja og efla trú hins fulltíða manns. Fólk, sem vill vaxa og þroskast í trú sinni, leitar ekki endilega til kirkjunnar vegna þess að því finnst ekkert þangað að sækja; boðun hennar sé barnahjal og veiti ekki leiðsögn við að þroska og dýpka trúarlífið. Við þurfum að gera miklu betur. Ég tel að einn þáttur í þvi sé að styrkja og efla menntun, hand- leiðslu og símenntun presta og hlúa að trúarlífi þeirra til þess að þeir séu hæf- ari til að fræða, sem sálusorgarar og leiðbeinendur í trúarefnum." Nær kirkjan til samtíðarinnar eða er hún í Jjötrum hejða? „Það er vafalaust raunveruleg upplifun sumra að kirkjan höfði ekki til fólks. Hins vegar er það nauðsynlegt fyrir kirkjuna að halda sínum hefðum. Henni hefur mistekist að tengja hið nýja og gamla, að gera hefðina lifandi. Það vant- ar brú á milli æskulýðsstarfsins og guðsþjónustunnar. Ein ástæða er sú að kirkjan hefur um of látið börn leiða börn og unglinga unglinga. Þetta starf hefur ekki verið nógu ofarlega á for- gangslistanum. Kirkjan þarf auðvitað að vera í takt við hina svo kölluðu unglinga- menningu. En hún þarf að gefa ungling- unum meira; betri fótfestu en þá er felst í poppinu.“ Kirkjan á að leiða til Krists Er opin og víðsýn þjóðkirkja í þeirri hættu að taka ekki ajstöðu til mála og bjóða heim sífelldum málamiðlunum? „Ég tel að þjóðkirkjan verði að vera opin og viðsýn í þeirri merkingu að hún setji ekki þröng skilyrði og hafi ekki háa þröskulda. En hún á að vita fyrir hvað hún stendur. Boðun hennar á að vera skýr en í þjónustu sinni á hún að hafa opnar dyr og lága þröskulda. Þjóðkirkj- an er ekki trúfélag hinna hreinu. Á akri hennar er illgresi og hveiti innan um hvað annað. Hún á að sjá það sem sitt hlutverk og köllun að vera í þjóðinni, sjá þjóðina alla sem akur sinn en ekki vera sem lokaður klúbbur. Þjóðkirkjan þarf að hafa rúm fyrir andstæðar skoðanir án þess að slá af fagnaðarerindinu. Hún á fyrst og fremst að vera kirkja Jesú Krists í fylgd hans. Ef hún gerir það er henni óhætt. Kirkj- an á að leiða til Krists. Hún hefur upp- eldishlutverk og á ekki bara að boða Krist í orði heldur líka í verki. Leið for- dæmisins er alltaf árangursríkari en yfirlýsingar. Leið þeirrar trúar sem starfar í kærleika er mikilvægust og virkust.“ Hvert er hlutverk leikmanna og leikmannahreyjinga í kirkjunni að þínu mati? „Leikmannahreyfingar eru afar dýr- mætar. Þar tala ég af eigin reynslu sem alinn að sumu leyti upp í KFUM sem strákur. Ég held að leikmannahreyfingar í kirkjunni gegni ómetanlegu hlutverki í að ala fólk upp í trú. Kirkjan verður að hafa rúm fyrir þær. Hinar mismunandi leikmannahreyflngar verða að eiga þar framtíð. Að vissum skilningi eru allir í kirkjunni leikmenn. Orðið er dregið af grisku orði sem merkir þjóð, þjóð Guðs. Kirkjan okkar byggir á hinum lútherska arfi þar sem meginatriðið er hinn al- menni prestsdómur. í þeim skilningi eru allir leikmenn líka prestar. Kirkjan er ekki bara stofnun prestanna og starf hennar er ekki bara það sem prestarnir eru að bauka eða einhveijir starfsmenn í sóknunum. Leikmenn eru burðarás kirkjunnar. Öll nytsöm iðja fólks úti í þjóðfélaginu er þjónusta við Guð í sköp- un hans. Þetta skulum við leggja höfuð- áherslu á vegna þess að það er tilhneig- ing til að líta á lífið í básum þar sem hið trúarlega er skilgreint sem tómstunda- iðkun á jaðrinum og sköpun Guðs er afneitað í verki. Ef við tökum trú okkar á Guð, skaparann, alvarlega þá sjáum við trú og daglegt líf sem heild, þar sem fólk gengur með Drottni að verkefnum dagsins í trú sem starfar í kærleika. Það er brýnt að efla leikmenn til þjónustu og ábyrgðar og aukins m)mdugleika innan kirkjunnar." Eru leikmenn nógu sýnilegir í starji sajhaðanna? „Þeir eru mjög virkir og sýnilegir. Án þeirra væri ekkert starf í söfnuðunum. En kirkjan verður að hlúa betur að leik- mönnum innan safnaðanna og efla þá til ábyrgðar vegna þess að þeir sem vilja leggja kirkjunni lið eru dýrmætasta auðlind hennar. Það þarf að efla fræðslu og andlega uppbyggingu leikmanna." Hefur íslenska þjóðkirlgan einhveiju hlutverki að gegna við boðun kristinnar trúar meðal annarra þjóða? „Kirkjan verður að taka kristniboðsköll- un sína miklu fastari tökum og gera hana að miklu virkara aíli í lííi safnað- anna eins og maður sér víða erlendis þar sem kristniboðsvinir eru í hveijum söfnuði, þvi að kristniboð virkar alltaf í báðar áttir. Ef kristniboðið færðist meira inn í söfnuðina yrði það því til mikils styrks sem frjálst leikmannastarf af þvi að það þarf að byggja upp þátt gjafanna, sem blómstrar þegar verið er að byggja kirkju en rénar þegar hún er komin undir þak. Kirkjan er kristniboð, sendiför. Það kemur fram í orðinu messa sem er möndullinn sem starf kirkjunnar snýst um. Orðið er af sömu rót og mission og merkir útsending. Kirkjan kemur saman til að vera send út. Hún kemur ekki saman til að safnast saman eða sem hópur sem dregur sig í hlé. Hún kemur saman til þess að fá kraft og endurnýjaða köllun til að fara út. Kirkjan er alþjóðleg, ein, almenn, heilög kirkja og á sér engin landamæri."

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.