Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.1997, Qupperneq 15

Bjarmi - 01.06.1997, Qupperneq 15
Við stöndum frammi fyrir vaxandi afhelgun og eitt af mikilvægustu viðfangsefnum kirkjunnar erfræðsla. biskupsdæminu upp eða ekki. Biskup íslands þarf á því að halda, hver sem hann er, að hafa ráðuneyti af hinum biskupunum. Við búum í einangraðri kirkju og ef einn biskup hefur of mikil völd, þá er hætta á þvi að hann verði einskonar páfi fyrr en varir. Það er eng- um manni greiði gerður með þvi að stilla honum einum upp á tind, varnarlaus- um. Ýmis vandi biskupsþjónustunnar undanfarið hefði ekki verið svona mikill ef að honum hefðu komið þrir biskupar að jafnaði, frekar en að stundum væri það bara einn. Þjónusta biskupanna í Skálholti og að Hólum verður að vera virkari og þar að auki samvirkari við þjónustu biskups íslands. Að þessum og ýmsum öðrum skipulagsmálum myndi ég gjarna vilja vinna í framtíð- inni, hvar sem ég verð.“ Verðum að hafa skýrar línur Hver er kjami krístinnar trúar að þínum skilningi? „Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Ég get ekki búið til neinn annan kjama en þennan.“ Hvert er kennivald. Biblíunnar í trúar- og siðjerðisejnum að þínu áliti? „Kennivald Biblíunnar er ótvirætt í trú- ar- og siðferðisefnum. Við verðum samt að gæta okkar á þvi hvemig við viljum láta hana virka sem kennivald. Við verðum að taka ákveðna afstöðu til Biblíunnar sjálfrar, bæði siðfræðilega og kirkjuréttarlega, og svo til umhverfisins eins og það er í raun og vem. Við eigum að vinna í siðfræði og að kirkjunnar lög- um af alvöru og trúmennsku við Ritn- inguna. Ef við ekki mótum okkur ein- hveijar siðferðilegar og kirkjuréttarlegar reglur þá getur svo farið að kennivald Ritningarinnar verði ekki neitt þegar upp er staðið. Ef hver og einn les Biblí- una og túlkar hana út frá sjálfum sér þá er kennivaldið ekkert orðið. Þá þarf heldur enga biskupa, presta eða guð- fræðinga. Hver og einn getur bara séð um sig. Við getum ekki stungið Biblí- unni ofan í skúffu andspænis ýmsum alvarlegum spurningum sem mæta okkur." Eru tilJleirí leiðir til hjálpræðis enjyrír trú á Jesú Krist? „Ég tel ekki vera um aðra leið að ræða og get ekki bent á hana, hvað þá boðið neinum aðra leið til hjálpræðis. Það er hins vegar ekki á mínu valdi að dæma menn til eilífðar og verð að taka orð Páls postula alvarlega þar sem hann segir að til séu réttlátir menn undir lögmáli." Kirkja noti „netið" til að boða fagnaðarerindið Hvert er gildi upprisu Jesú í krístinni trú? Hvemig getur kirkjan mætt syrgjendum og dauðvona með þann boðskap á tímum þegar dulhyggja, spírítismi og miðilsjundir virðast standa mörgum næst? „Upprisa Krists er möndulás kristinnar trúar. Spurningin um það hvort upp- risan var raunveruleg eða ekki felur í raun í sér hvort við emm að segja satt eða að ljúga. Varðandi dultrúarfyrirbærin, spírit- ismann og nýaldarhyggjuna þá vil ég segja að allt saman getur þetta leitt fólk á villigötur en margt af þessu kemur og fer. Fólk föndrar við þessi fyrirbæri á vissum tímabilum ævi sinnar án þess að verða fyrir varanlegum, slæmum áhrif- um. Kirkjan hefur þurft að búa við það alla tíð að fólk grípi til hjátrúar. Það sem ég tel einna hættulegast nú um stundir eru gamlar trúarhugmyndir úr framandi hugmyndakerfum og trúar- brögðum sem hér hafa haslað sér völl en samiýmast ekki kristindómi. Þá á ég til dæmis við hugmyndir um endur- holdgun. Mjög margir gleypa við slíkum hugmyndum enda eru þær kynntar hér á Vesturlöndum sem eins konar bónus á lífið. í kynningunni gleymist að segja frá því að trúarbrögð, sem snúast um endurholdgun, eru kerfi um það hvemig losna megi undan fjötrum jarðlífsins og út úr hringrás endurholdgananna. Ég tel þessar hugmyndir vera það alvar- legasta sem við erum að fást við núna og kirkjan verður að mæta þeim af fullri einurð. Opinni og víðri þjóðkirkju er viss hætta búin. Við megum ekki gera það að reglu eða koma þvi svo fyrir að aldrei verði árekstur um neitt þvi þá era synd- in og fagnaðarerindið hætt að takast á. Þegar við erum í slíkum átökum þá berum við ábyrgð gagnvart fagnaðar- erindinu annars vegar og syndaranum hins vegar. Með þetta í huga eigum við að ganga fram til þjónustunnar af yfir- vegun og festu. Ekki til þess að búa til hávaða heldur tiyggja það að hið rétta erindi fagnaðarerindisins komi í ljós og sé ekki dulið fólki.“ Hver em helstu vandamál íslensku þjóðkirkjunnar nú um stundir og hvaða úrlausnarejni eru brýnust í því sambandi? „Við stöndum frammi fyrir vaxandi af- helgun og eitt af mikilvægustu viðfangs- efnum kirkjunnar er fræðsla. Ég tel að við þurfum að miða einkum á tvo hópa í því sambandi. Það eru annars vegar litlu bömin á forskólaaldrinum, að þau fái meiri fræðslu í kristinni trú, og hins vegar fullorðið fólk sem farið er að ryðga í fermingarlærdómnum og spyr sjálft sig annarra spurninga en þá var spurt. Margt fólk veit svo skelfing lítið um trúna og um kirkjuna og er jafnvel ekki læst á algengustu tákn hennar. Nú er að komast til manns kynslóð sem trúir því öðruvísi sem hún sér á skjá heldur en þvi sem stendur á blaði. Ég held að raunveruleikaskynið sé svo- lítið að breytast í fólki og gildi þess sem sést á skjánum er sívaxandi. Við verð- Við megum ekki gera pað að reglu eða koma pví svo fyrir að aldrei verði árekstur um neitt pví pá eru syndin og fagnaðarerindið hætt að takast á.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.