Bjarmi - 01.06.1997, Page 16
um að gera meira af þvi að senda fólki
fræðsluefni og nýta til þess sjónvarpið
og ekki síður þessa nýju miðlunar-
tækni, netið. Þama erum við, þvi miður,
mjög veik eins og er.“
Er kirkjan í jjötrum hefða?
„Vissulega geta hefðirnar orðið kirkj-
unni ijötrar. Góður guðfræðingur sagði
eitt sinn að við ættum að taka „trad-
isjónina“ alvarlega vegna þess að hún er
lifandi trú dauðs fólks, en „tradisjónal-
ismi" er dauð trú lifandi fólks."
Er íslenska þjóðkirkjan salt í þjóðlífmu
eða hejur það dojnað?
„Kirkjan er salt í þjóðlífinu en það er
ekki einfalt mál fýrir mig að meta hvort
og þá hvemig það hefur dofnað. Sá vem-
leiki sem er að gerast í söfnuðunum er
nú ekkert ómerkilegur. Margir þættir
safnaðarlifsins em viða i miklum blóma.“
Hvert er hlutverk leikmanna og
leikmannahregfinga í kirkjunni að þínu
mati?
„Við höfum hefð fýrir leikmannahreyf-
ingum, sem gegnt hafa mikilvægu hlut-
verki og ég vildi óska þess að þau héldu
því áfram. Ber þar hæst KFUM og K og
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Enginn hefur náð lengra í að nálgast
fólk á „fráfallsaldrinum" en þessi félög
og ég vona að þau haldi því áfram.
Kristniboðsfélögin hafa mikilvægu hlut-
verki að gegna. Við sem kirkja erum
kölluð til þess að boða kristna trú meðal
annarra þjóða, að gera allar þjóðir að
lærisveinum. Ég tel að söfnuðirnir í
kirkjunni okkar séu i þörf fyrir þetta.
Söfnuður sem ekki er að einhveiju leyti
með hugann við boðun trúarinnar út á
við er ekki fullkomlega heilbrigður. Að
undanförnu hafa verið gerðar tilraunir
með að stofna kristniboðshópa innan
safnaðanna sem ég tel vera mjög gott og
mætti vera gert mikið meira af. Það er
hollt kirkjunni að kristniboðsfélögin séu
sjálfstæðar einingar, en ekki á jaðri
kirkjulífsins."
Hvers konar þjóðkirkju vilt þú sjá við
upphaj nýrrar aldar?
„Ég vil sjá þjóðkirkju sem er kirkja mik-
ils meirihluta þjóðarinnar og er ekki
sundruð í neinum verulegum efnum og
nær til allra landsmanna með þjónustu
sinni. Kirkjan verður, í ríkari mæli en
verið hefur, að leggja áherslu á þörf lítil-
magnans og hins þjáða."
Fæturnir eru grunnur að vellíðan okkar!
araV Fítness
Ekta korkblanda
(einangrar)
heilsuskór stuðla að heilbrigðu og óþreyttu baki
Laut fyrir hæl
sem veitir stuðning
Loftbólstraður sóli
frá tábergi að hæl
Tágrip sem
örvar bloðrásina
Stamur
innsóli
llstuðningur
sem hvílir
I
Microcellu sóli, sem dregur úr
þreytu og virkar dempandi.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA & KRINGLUNNI
5% staðgreiðsluafsláttur • Póstsendum samdœgurs!
Steinar Waage, Domus medica, sími 551 8519
Steinar Waage, Kringlunni, sími 568 9212
Toppskórinn, vlð Ingólfstorg, síml 552 1212
YÓ