Bjarmi - 01.06.1997, Page 18
Einar Sigurbergur Arason
Alfa-námskeiðin taka fyrir
grundvallaratriðin í krist-
inni trú og hafa verið
haldin í Biblíuskólanum
við Holtaveg síðan í byrjun ársins
1996. Þau eru sniðin eftir erlendri
fyrirmynd sem varð til fyrir tveimur
áratugum í kirkju í Lundúnum. Alls
hafa verið haldin þrjú námskeið hér,
þar af eru tvö sem voru haldin núna í
vetur.
Hvað merkirAlfa?
Alfa er fyrsti stafurinn í gríska staf-
rófinu. Þess vegna er orðið Alfa gjaman
notað til að tákna upphaf. En þeir sem
standa fyrir Alfa-námskeiðunum hugsa
þetta líka sem skammstöfun. Dæmi um
íslensku útfærsluna:
Allir, sem vilja kynna sér bet-
ur um hvað kristin trú
snýst, em hvattir til að koma á
Alfa-námskeið.
Lifið er ánægjulegt þegar við
getum lært með öðmm og
átt samfélag saman.
Fyrirspumum er tekið með
gleði og sérstakur tími fyrir
spumingar og svör.
Aldur skiptir ekki máli. Alfa-
námskeið eru fyrir alla.
Hvemig er Alfa-námskeið uppbyggt?
Þátttakendur hittast einu sinni í viku í
um það bil tvo mánuði og eiga saman
kvöldstund. Hún hefst á kvöldmat, svo
kemur fyrirlestur og eftir það er gefinn
kostur á fyrirspurnum og umræðum.
Endað er á því að biðja saman.
Auk þessa er sérstök Alfa-helgi eða
Alfa-dagur. Á fyrsta námskeið-
inu var farið upp i Vatna-
skóg og gist yfir nótt. Á
þeim seinni tveimur var
laugardagur í Reykja-
vík látinn nægja.
Þetta gefur þátttak-
endunum tækifæri
til að kynnast betur.
Kennslan á námskeið-
unum snýst um spurn-
ingar eins og: Hver er
Jesús? Hvers vegna dó
hann? Til hvers að lesa
Biblíuna og biðja?
Hvernig get ég verið
viss í trú minni? Hver
er Guð skaparinn? Hver er heilagur
andi og hvemig starfar hann?
Mikil áhersla er lögð á að þátttak-
endur hafi fullt frelsi til að spyija hvers
kyns spurninga sem
liggja þeim á hjarta.
Engin spuming er
álitin óviðeig-
andi. Þannig fá
þeir tækifæri til
að opna sig og leita
svara við spurningum
sínum.
Eru Alfa-námskeiðin kennd
víða'?
Já, þau hafa orðið býsna útbreidd
á síðustu árum. í fyrra voru haldin
um það bil 5000 námskeið með um
250.000 þátttakendum alls. Þar
af voru 1200 námskeið
haldin utan Bretlands.
Hver átti hugmyndina?
Alfa-námskeiðin hafa verið kennd í 20
ár við sóknarkirkju í Lundúnum sem
heitir Holy Trinity Brompton (HTB). Það
var presturinn Charles Marnham sem