Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.2000, Page 11

Bjarmi - 01.03.2000, Page 11
til þess. Meóal annars er líkaminn ertur kyn- ferðislega en haldió aftur af fullnægingunni. Hún er þá hugsuð sem einskonar innri full- næging sem þrýstir kundalini áfram. Þannig er t.d. Shiva, guð jóga hjá Indverjum, gjarn- an málaóur í eilífum samförum við Shakti, hinn kvenlega mótleikara sinn. Næsta orku- stöó á vegferð kundalini er manipurach- akra. Þar er eldurinn beislaóar eóa tilfinn- ingarnar. Þaó er gert meó „mudras", æfmg- um og ástundun helgisiða. Gjarnan er lík- aminn pyntaóur um leió og jóginn leiðir kvalirnar hjá sér. I anahatachakra er loftió beislaó. Þaó er gert með öndunaræfingum „prana-yama“. Æfingin felst í aó halda and- anum í lengstu lög og er mjög hættuleg, geturjafnvel valdió köfnun. Þegar jóginn stjórnar loftinu getur hann flogió, hann er þá óháóur náttúrulögmálunum. Styttist nú í endalok vegferóarinnar. Þegar kundalini rennur upp í vishuddichakra er >,rýmið“ sjálft beislaó. Það er gert með því að hugleiða hjartslátt alheimsins, með því aó fara meó möntru hans, „AIM“, „AM“, „AUM" eða „OHM“. AUM er samkvæmt fornri speki Indverja þaó hljóó sem heyr- ist þegar alheimurinn dregur and- ann. Um leió og mantran, þ.e. galdraoró alheimsins, er sungió lokast á öll skilningarvitin. Hugleióslan leitast vió að úti- loka alla skynjun, kæfa alla hugsun og þá fyrst kemst kundalini upp í sjöttu orkustöðina. Meðan mantran er flutt flyst sjálfið milli „rýma“/„plana“. Lokastöó líkamans er ajnachakra. Þegar þangaó er komið hefur jóginn öólast fullt vald á öllu þessa heims, líkama, anda og sál. Hann er oróin óháóur öllum frumefn- um alheims og manns. En hann er enn bundinn við samsara. Samsara er óreiða lífsins, þaó sem veldur því að allt breytist og getur ekki staðió í stað. „Allt streymir," sögðu Grikkir til forna og er þaó sama hugun. Það er því ekki nóg aó ná valdi á öllum alheiminum. Enn getur þú glatað öllum ávinningnum í samsara. Þú þarft því að sleppa undan samsara og flytja kundal- ini upp í sjöunda chakra, lotuschakra, sem er staósett utan líkamans, rétt ofan vió hvirfilinn. (Sumir myndu efalaust kalla þessa orkustöó uppsprettu árunnar. En þaó er annaó mál). Gúrúinn og hlutverk hans Til að ná upp í sjöunda chakra, þar sem frelsið bíður, þarf hjálp gúrúsins - kennar- ans. An hans er þaó ekki hægt! Gúrúinn opnar þriója auga líkamans og hleypir orku alheimsins inn til kundalini þar sem þaó stendur á barmi frelsisins. Þannig og aó- eins þannig losnar jóginn úr hringrás samsara. Vald gúrús- ins er algert. Hann er ómissandi. Gúrúinn er miklu meira en kennari eóa leióbeinandi um lendur jóga. Hann er „endurlausnarinn“ og stundum til- beðinn sem slíkur hjá Indverjum. Tökum sem dæmi brot úr hinu indverska helgikvæói „Gúrúgitan“ - lofsöng til gúrús- ins: „Miskunn guós kemur og fer, þaó skipt- ir ekki öllu. En án miskunnar Satgúrús erum við glötuð. Eg get svikið guó minn, en eigi mun ég yfirgefa gúrúinn minn að eilífu.“ Sjöunda orkustöðin er utan líkama og heims. Hún er „rnoksha", frelsunin. Sá er þangað nær þarf ekki lengur aó endurfæð- ast, er laus unan endurfæóingunni. Atman sameinast Brahmann, guóaneisti manns og heims veróur eitt. Leitinni lýkur og leit- andinn hverfur inn í nirvana. Jóga-Sutra Jóga-Sutra er helgirit sem hefur löngum verið talin ein helsta kennslubók hindúism- ans í jóga. Jóga-Sutra greinir á milli tvenns- konar notkunar á jóga. Annarsvegar er jóga ætlaó til þess aó drepa nióur alla and- lega starfsemi og alla skynjun. Aðeins þannig getur maóurinn hreinsað sig af samsara og losnaó undan karma og hjóli endurfæóingarinnar. Hinsvegar bendir Jóga-Sutra á þá leió sem tantrajóga byggist á og hér hefur verið geró aó umfjöllunarefni. Er það hinn átt- faldi vegur er aó lokum leióir til frelsunar, moksha. Samandregið Vegferó tantrajóga lítur þá svona út: 1. líkamlegt aóhald, 2. innri andleg hreins- un, 3. réttar hugleióslustellingar, 4. að stjórna öndun, 5. aó stjórna skilningarvit- unum, 6. andlegur samruni vió alheiminn meó hugleióslu. Þetta er líka þaó prógramm sem stendur til boóa hjá mörgum jóga-klúbbum í dag. Þar er kennt líkamlegt aóhald, slökun, hug- leiðsla, stjórnun á skilningarvitum og orku- öndun. En þó sjaldan sé frá því sagt, þá er allt þetta ekki markmió jóga, hvorki slök- un, líkamsrækt, hugleiósla né annaó því tengt. Allt er þetta aóeins leióin aó mark- miðinu, einskonar helgiganga þar sem hver leitar eigin frelsunar, lausn frá endurdauða (þ.e. er aó þurfa að endurfæóast og þar meó endurdeyja í þaó óendanlega). Og sú frelsun er, þegar allt kemur til alls, hinn endanlegi tilgangur jóga-iókunarinnar. 11

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.