Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.2000, Side 19

Bjarmi - 01.03.2000, Side 19
af daglega lífinu hjá unglingum að fara í kirkju og þær messur voru nú ekki mjög skemmtilegar eða hressandi; það var hátíð ef sunginn var einn sálmur. Gunnar: Þarf bara ekki að uppfræða fólk betur, t.d þegar það kemur og lætur skíra börnin sín, hvað skírn sé? Ekki bara nafn- gift heldur er verió aó skrá barnið inn í kirkjuna og þar meó eru foreldrarnir að taka að sér ákveðið hlutverk, aó ala barnið upp í kristni. Þarf presturinn ekki líka að benda fólki á hvernig á aó ala bam upp í trú, gefa bænabók og vera þeim innan handar og fylgja þeim aóeins eftir? Fullnœgir kirkjan ykkar samféiags- og trúarþörf? Gunnar: Laugarneskirkja gerir það, já. Guórún: Hallgrímskirkja gerir það, já. Guólaug: Nei, ekki fullkomlega. Ég myndi vilja fá fjölbreyttari messugeróir eins og ég hef áður minnst á. Núna eruð þið öll í einhverrí þjónustu íkirkjunni. Teljið þið að allir geti fundið eitthvert hlutverk í sinni kirkju eða er hœgt að vera bara áhorfandi og er það nóg? Guórún: Ég held að það sé nóg. Sumir vilja bara taka þátt sem áhorfendur og huglægir þátttakendur. Þaö er líka mjög margt í boði, bæði guóþjónustur og tón- leikar. Kórastarf er auðvitað kirkjustarf, þetta er boðun og þarna er verið að syngja Guði dýrð. Auðvitað veróur fólk fyrir áhrif- um, t.d. eins á jólatónleikunum okkar. Þetta er hluti af kirkjunni. Tónleikar, fræðsluerindi, mömmumorgnar, kyrróar- stundir, fyrirbænaguðþjónustur, föstu- messur og guðþjónusturnar, það að vera þátttakandi í einhverju af þessu hlýtur aó vera nóg fýrir suma, það getur ekki annað verið. Hvað eigum við að gera fyrir þá sem fara ekki í messu þvíþeim leiðist sálmasöngur? Gunnar: Það er fleira í boði, t.d. jazzmess- ur, poppmessur, Tómasarmessur og allskyns messur, þaó er ekki bara þessi hefðbundna sunnudagsmessa. Allir hljóta að geta fundið messuform við sitt hæfi ef þeir bera sig eftir því. Guólaug: Fólk á ekki að þurfa að leita út fyrir sína sókn, hver kirkja á aó bjóða upp á það fjölbreytta dagskrá að sem flestir geti fundið eitthvaó við sitt hæfi. Guórún: Nú hefur þjóðkirkjan þetta ákveðna messuform sem hún fer eftir, eig- um við að halda því þó aó það komi fáir í messu eða eigum við að brjóta þaó upp? Geta þeir sem ekki finna sig í þessu formi leitað annað? Guólaug: Það má brydda upp á allskonar öðruvísi messum af og til. Mér finnst aö ég eigi aó hafa kost á því að fara í öðruvísi messu í minni hverfiskirkju. Mér líður nefnilega best þegar ég fer í kirkju inni í mínu hverfi þar sem ég kannast við andlit á fólki, sérstaklega eftir að ég fór að skipta mér eitthvað af því sem var að gerast í kirkjunni, þá líður mér alltaf betur og betur inni í sjálfri kirkjunni. Mér finnst ég vera komin heim. En mörgum líður ekkert vel í kirkju, þeir þekkja engan og eru kannski einir og finnst þeir ekki eiga samleió með því sem er aó gerast. Mér fór að líða miklu betur eftir aó ég fór aó taka einhvern þátt. Finnst ykkur ágcetis jafnvcegi milli þjónustu prestsins og leikmanna eða fnnstykkur að leik- menn cettu að vera meira áberandi í kirkjustarf- inu og meira mótandi? Gunnar: Ég held að þetta sé misjafnt eftir kirkjum. I sumum kirkjum eru þaó leik- menn sem sjá algjörlega um barna- og unglingastarf en í öðrum kirkjum er það presturinn sem sér um allt starfið eins og í sumum sveitakirkjum. Guólaug: Það eru fullt af leikmönnum, allt fólkió í kórunum, þeir sem lesa ritningar- lestrana og gestaprédikarar. Guórún: Mér finnst mjög gott jafnvægi milli leikmanna og presta eins og ég hef kynnst því í kirkjunni. Gunnar: Ég held samt að presturinn þurfi að vera sýnilegur í þessu öllu, t.d. eins og í sunnudagaskóla, presturinn þarf að koma annað slagið til þess hreinlega að börnin þekki prestinn. Guólaug: Mér finnst, svo dæmi sé tekið, aó presturinn eigi að vera í meiri samvinnu við kennarana í skólunum. Af því að ég kenni kristin fræði þá dettur mér í hug aó hann gæti leióbeint við þá kennslu. Þetta er grein sem alltaf er ýtt út í horn og fólk veigrar sér við aó kenna hana og veit ekki hvernig það á að nálgast greinina. Kennar- inn hefur kennslufræóina en presturinn hefur guðfræðina á sinni könnu og á aó geta leiðbeint kennurum meira. Kennarar þurfa þá aó sækja eftir því líka. Mér finnst bara svo mikil siófræói í kristinfræóinni sem presturinn getur líka hjálpaó meó. Við erum alltaf með einelti, sorg og alls- konar heimilisvandamál. Presturinn á kannski aó geta hjálpað okkur hvernig vió eigum að tala við krakkana, hvernig við eigum að umgangast þá miklu meira, ekki bara þegar einhver deyr. Gunnar: Vió lifum í samfélagi þar sem meginþorri fólksins er kristinn eóa lítur á sig sem kristinn og öll menning okkar er mótuö af kristni, þannig aó ég held að það sé mjög mikilvægt aó börn læri kristni til að vera læs á menninguna. Guórún: Ég nefndi áóan þessi kvenfélög og safnaðarfélög sem eru á Reykjavíkursvæð- inu. Sum eru e.t.v. ekki mjög virk en sums staðar eru kven- og safnaðarfélög það afl sem fer hvaó minnst fyrir og er li'tió sjáan- legt en lyftir samt grettistaki. Margar af þessum kirkjum væru enn þá bara grunnur ef ekki væru fyrir kvenfélög og safnaðarfé- lög. Það viðhorf er ríkjandi að í kirkjunni sé bara eldra fólk, en þaó er ekki rétt. Gunnar: Kirkjan, þaó erum við, fólkið. Guórún: Þió segió að kirkjan hafi ekkert upp á aó bjóóa fyrir fólk 18-25 ára en af hverju þarf þetta alltaf að vera svo ofboðs- legt popp? Guólaug: Þetta þarf ekki að vera ofboós- legt popp en þaó þarf eitthvaó meira til að vekja áhuga ungs fólks. Þaó þarf ekki endi- lega að vera í messunum en bara aó fá þetta fólk á eitthvað spennandi sem er að gerast í sjálfri kirkjunni. Gunnar: Þaó þarf að skapa þetta and- rúmsloft aó á sunnudögum förum við í kirkju. Kirkjan er svo sannartega að gera margt gott bceði fýrir ungu kynslóðina og þá eldri, en alltaf má gera betur. Hafa verður þó í huga að kirkjan er ekki vettvangur til að eltast við tískusveiflur enda trúarlíf sá hluti lífs okkar sem á að vera stöðugur og í kirkjunni eigum við að geta fúndið ró í hversdagsamstrinu. 19

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.