Bjarmi - 01.12.2000, Side 5
Soli Deo Gloría
Lífsferill Johanns Sebastians Bachs, tónskálds og trúmanns
Halldór Hauksson
egar kantor Tómasarskólans í Sax-
nesku kaupstefnuborginni-Leipzig
lést þann 28. júlí árið 1750 var nokkru
fargi létt af borgaryfirvöldum. Þau höfðu
þegar valió sér eftirmann í stöðuna og
vonuðu vafalaust að hann yrði meðfæri-
legri en fyrirrennari hans. Enginn hinna
heiðvirðu og háttvirtu borgarráðsmanna
gat gert sér í hugarlund aó stormasöm
tíð Johanns Sebastians Bachs í kantors-
stöóunni yrði álitin merkasta tímabil í
sögu þýskrar kirkjutónlistar tveimur og
hálfri öld síðar. Þeim hefur örugglega
ekki heldur dottið í hug að tengsl gamla
kantorsins við borgina yrði eitt helsta
aðdráttarafl hennar í framtíðinni og til-
efni mikilla tónlistarhátíóa. Það benti
Iíka fátt til þess. Menn drógu að vísu
aldrei í efa yfirburðahæfileika gamla
mannsins á sviði orgelleiks. Sagt var að
hann gæti leikið hraóar með fótunum en
venjulegur organisti gæti afrekað með
fngrunum. Hinsvegar þóttu tónsmíóar
hans með öllu úr sér gengnar og stíll
þeirra yfirmáta gamaldags. Sól upplýs-
ingaraldarinnar skein yfir Þýskalandi og
sagði fyrir um einfalda og skýra tónlist.
Kontrapunktur, kanonar og fúgur voru
góss gamla tímans.
Sú augljósa og alkunna staðreynd að
tónlist Bachs er vinsælli og útbreiddari
nú 250 árum eftir andlát hans en nokkru
sinni fyrr nægir til að afsanna þá kenn-
'ngu fyrri aldar manna að þróun listanna
se í formi beinnar línu og að listaverk
hverrar kynslóðar taki verkum hinna fyrri
fram. Við skulum því ekki kippa okkur
upp við skeytingarleysið sem mætti tón-
list Bachs eftir að hann skildi við, heldur
líta rétt sem snöggvast yfir æviferil hans.
Bach fæddist þann 21. mars árið 1685
í Eisenach íThuringen, eða Þýringalandi,
eins og þetta fallega héraó Þýskalands er
stundum nefnt á íslensku. Hinn frægi
kastali Wartburg, þar sem Marteinn Lút-
er fór huldu höfði í tvö ár og þar sem
hann hóf þýðingu Biblíunnar á þýsku,
gnæfir yfir þessum litla bæ. A sama hátt
sveif minning og arfleifð Lúters yfir vötn-
um í héraðinu og hafði djúp og varanleg
áhrif á hinn ungajohann Sebastian. For-
feður hans voru allir Lúterssinnar. Ætt-
faðirinn, Veit Bach, sem hafði sest að í
Ungverjalandi, varð aó flýja aftur til
Thuringen vegna stuðnings síns við mál-
staó mótmælenda. Hann var bakari að
ión, en hafði yndi af því að leika á zítar,
að því er Bach skýrir sjálfur frá í ættartali
sínu. Kannski getur nútímaerfðafræði
skýrt þann ótrúlega fjölda tónlistar-
manna sem ættin gat af sér um aldir.
Vitað er um yfir sjötíu Bacha sem höfðu
atvinnu af tónlistariðkun. Margir þeirra
skildu eftir sig ágæta tónlist.
Á árunum 1693-95 varjohann Sebast-
ian nemandi í Latínuskólanum í
Eisenach, sem Lúter hafði sótt tveimur
öldum áður. Níu ára gamall missti hann
móður sína og ári síðar lést faðir hans.
Elsti bróðir hansjohann Christoph, org-
anisti og skólastjóri í Ohrdruf, skammt
frá Eisenach, tók hann að sér og leiddi
hann inn á tónlistarbrautina. Hinum
unga Bach hefur örugglega aldrei komið
annað í hug en að feta sömu braut og
svo margir forfeóur hans höfðu gert.
Fimmtán ára gamall fluttist hann aó
heiman og hóf nám í menntaskóla
klausturs heilags Mikjáls í Luneburg.
Söngrödd hans þótti einkar falleg og
hann vann fyrir sér með messusöng þar
til hann fór í mútur (sem gerðist seinna
á þessum tíma en nú á dögum). Þá gerð-
ist hann fióluleikari í hljómsveit skólans
á meðan hann lauk námi sínu.
I Lúneburg komst Bach í kynni við
mörg af mikilvægustu verkum þýskra
kirkjutónbókmennta, en hann heyrði
einnig ítalska og franska tónlist. Þegar
hann kom því við fór hann fótgangandi
til Hamborgar til að hlusta á hinn aldna
orgelmeistara, Johann Adam Reincken,
sem hafði verið nemandi mesta meistara
hollenska orgelskólans, Sweelincks. Þótt
Bach hafi alió allan sinn aldur á tiltölu-
lega litlu svæói og aldrei farið í náms-
feróir út fýrir þýsku landamærin, eins og
t.d. Schútz og Hándel, kynntist hann
með þessu móti mikilvægustu straumum
evrópskrar tónlistar strax á unglingsár-
um.
í mars árið 1703 var hinn átján ára
gamli Bach ráðinn „þjónn og fiðlari" í
hirð Johanns Ernsts, yngri bróður her-
togans af Saxe-Weimar. Hann staldraði
þó stutt við í Weimar þaó skiptið. í
ágúst sama ár tók hann við stöðu org-
5