Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2000, Side 10

Bjarmi - 01.12.2000, Side 10
Ég hef oft hugsaö um þaó aö þaö skiptir ekki hö föuómáli hvort við erum hcef heldur hvort við erum viljug. Það er Guð sem vinn- ur verkið. Enginn skal geta miklast af því. tali við mann sem hafði komið á eftir mér út á bílastæói vegna þess að honum fannst Guð segja honum að tala við mig. Síðar bað Vörður fýrir mér og talaói ná- kvæmlega sömu orðin til mín. Þarna var ég búinn að vera að horfa ájoyce Meyer og reyndar fleiri, en hún sagði aó maður yrði að leyfa Guði að leiða sig inn í þann söfnuð þar sem maður ætti aó vera, því hann vissi það miklu betur en maður sjálfur. Ég ákvað aó panta mér tíma hjá Verði til að spjalla við hann. Ég mætti hjá honum á föstudegi og það endaði meó því að ég tók skírn á sunnudegi. Ég var það „heitur“ aó það þurfti ekki annað en að bjóóa mér þaó og hann skynjaói þaó. Ég held alveg örugglega að ég sé sá fyrsti sem tók skírn hér árið 2000. Þarna geng ég sem sagt í söfnuðinn. Síóan líður fram í mars og þá var mót sem „Menn með markmið“ stóðu fyrir og ég var beð- inn að koma í lofgjörðarsveitina þar, sem ég svaraði játandi. Þar voru aóallega menn úr Veginum. Þegar ég mætti á æf- ingu fannst mér áherslan vera meira á eitthvað annað en aó æfa. Ég ákvað aó hætta vió því mér fannst þetta vera fyrir neðan mína virðingu. Án þess aó ég gerði mér grein fyrir því þá var Guð þarna að vinna í mér. Allan mánudaginn var ég síóan aó berjast við þetta, reiður og svekktur og rosalega stoltur. Ég kveikti þrisvar sinnum á Lindinni þennan dag og í öll skiptin var verið að flytja þáttinn hennar Sheilu, „Tíu dropar". í þættinum var hún að tala um stolt. í þriðja skiptið sagói ég vió sjálfan mig: Guð er greini- lega að reyna að segja mér eitthvaó. Hann var auðvitaó að segja mér aó ég var að springa úr stolti. Þarna gerði Guð mér grein fyrir því hvað ég var í rauninni ennþá hrokafullur og stoltur. Ég ákvað því að kyngja þessu og gera eins og Naaman þegar hann fór og þvoði sér upp úr ánni Jórdan til að læknast. Hann sagói fyrst: Á ég að fara og baða mig upp úr þessu grútskítuga vatni, er ekki nóg af ám heima hjá mér? En hann hlýddi og læknaðist. Ég ákvaó að gera það sama og hringdi og bað um að fá að vera meó í lofgjörðinni á mótinu og fékk það. Þetta mót varð mér síðan til mjög mikillar blessunar og ég upplifði nærveru Guðs mjög sterkt. Þarna var líka talaður spá- dómur inn í líf mitt um aó ég ætti að nota trommurnar sem tæki til að nálgast Guó og biója í gegnum trommurnar. Ég upplifði líka mikla andlega blessun á þessu móti og helgun sem margir geta vitnað um þegar vió tökum þannig frá tíma fyrir Guð. Á sunnudeginum spiluðu strákarnir úr Veginum hér á samkomu með mér og ég fór síðan með þeim upp í Veg um kvöld- ið. Þessa helgi var hér lofgjörðarsveit frá Bandaríkjunum sem heitir World Wide Worship Band. Hún var að spila í Is- lensku Kristskirkjunni þegar trommuleik- arinn varó bráðkvaddur þar, 39 ára gam- all. Þegar beióni barst upp í Veg um að biðja fyrir honum var ég beðinn um að koma upp og biðja fyrir honum í gegnum trommurnar. Ég spilaði í þó nokkurn tíma þar til mér fannst ég vera búinn og ekki geta meira. Samt fann ég fyrir algjör- um friði og mér fannst ég vera í friðar- hjúp. Þarna var mikið beðið fyrir honum en samt dó hann. Þá fékk ég algjört bakslag. Á leióinni heim í bílnum brotn- aði ég algjörlega saman og fór að gráta. Ég varó að stoppa bílinn. Ég sagði við Guð: Hvað meinar þú með þessu? Ertu til? og fleira í þeim dúr. Þá fannst mér Guð tala inn í hjarta mitt: Haf þú frið fyr- ir þessu því þú breytir ekki vilja mínum. Þú getur bara stigið fram og verið í vilja mínum en ég ræó. Ég frétti síðan seinna að þessi maður var búinn að fara í marg- ar hjartaaógerðir og læknar höfðu aldrei búist við að hann lifði þetta lengi. Hann hafði lýst því yfir að hann óskaði þess helst að fá að deyja vió trommurnar lof- andi Guð. Ferðu síðan að taka meiri þátt í lof- gjörðinni hér eftir þetta? — Já, þegar tónleikarnir með Glen Kaiser voru haldnir hér var talaður spá- dómur til mín og eftir það bað Vörður mig að vera með í lofgjörðinni hér, sem ég og gerði. Á mótinu sem „Menn meó Markmið" voru meó kenndi ég lag sem heitir: Gef mérjesú, þar sem ég spilaói á gítar og eftir það var mér boðið að spila á gítar í Marita-lofgjörðarsveitinni. Guð hafði áður talað til mín þegar ég var hér úti í sal á samkomu að ég ætti eftir að stjórna lofgjörð. Ég hugsaói ekkert meira um það þá en eftir að Erdna og Óli buóu mér í Marita-hópinn, stjórnaði ég lofgjörðinni fjóra mánudaga í röð af því aó Erdna hafði eignast barn. Svo hef ég ekkert velt því fyrir mér hvort mér tókst vel eóa illa upp, þaó skiptir ekki öllu máli. Ég hef oft hugsað um það aó það skiptir ekki höfóuómáli hvort við erum hæf heldur hvort við erum viljug. Það er Guð sem vinnur verkið. Enginn skal geta miklast af því. Þú ert þá sem sagt virkur í lofgjörðinni hérna í dag? — Já, ég spila hér aðra hvora helgi. Hina helgina er pabbahelgi hjá mér en ég á tvær dætur, 10 og 6 ára. Það er mér mjög mikið kappsmál að þær læri aó kynnast Orði Guðs og að biðja og aó þær eigi Jesú í lífi sínu sem ég átti ekki. Ég trúi því líka að Orð Guðs snúi ekki aftur við svo búið fyrren það hefur unnió sittverk. lO Á

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.