Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2000, Page 26

Bjarmi - 01.12.2000, Page 26
U2: All That You Can 't Leave Behind Kristin trúarstef á nvrn plötu U2 GunnarJ. Gunnarsson Q /"V I . sl. kom úc ný JU. OKt • plata meó írsku rokksveitinni U2 og ber hún heitið All That You Can 't Leave Behind. Ný plata með hljómsveitinni telst alltaf til nokk- urra tíðinda í poppheiminum og aðdá- endur hennar bíða gjarnan með mikilli eftirvæntingu eftir nýrri plötu. í nóvem- berblaði Bjarma árið 1997 var ítarleg umfjöllun um U2 þar sem einkum var fjallað um textana við lög sveitarinnar og þá sérstaklega kristin trúaráhrif í þeim. í Ijós kom að slík áhrif eru mjög víða í textum söngvarans Bono. Nýja platan er þar engin undantekning. Þótt tónlistin sé töluvert ólík því sem gerist á síðustu plötum U2 eru víóa svipaðar áherslur í textunum. Astandið í veröldinni, ófriður og ranglæti eru kunn hugleiðingarefni U2 og þráin eftir friði, frelsun og sátt. f textum All That You Can 't Leave Behind er einnig að finna kristin trúarstef og vísan- ir til Biblíunnar og kristinnar trúarhugs- unar. Platan hefst á grípandi lagi sem ber heitið Beautiful Day. Þar er meðal annars vísað til sögunnar um Nóa-flóðið. Bono hvetur þá sem eru fastir í hringióu og streitu borgarlífsins, þar sem ekkert rúm er fýrir hjartað til að blómstra, og vita ekki hvert skal stefna, aó staldra við og horfa á feguró lífsins. I því samhengi nefnir hann m.a. fuglinn með laufblaðið í gogginum og alla litina sem komu í Ijós eftir syndaflóðið: See the bird with a leafin her mouth After the flood all the colours came out It was a beatiful day Beautiful day Don’t let itget away Textinn er því jákvæð hvatnig um að láta ekki fegurð lífsins framhjá sér fara. Sem slíkur felur hann I sér bjartsýni og von. Hins vegar eru ekki allir textar plöt- unnar á jafnjákvæðum nótum. Glíma ef- ans í heimi styrjalda og þjáningar er á- leitió yrkisefni á þessari plötu U2 eins og oft áður. Hugsanirnar í lokalagi Pop, Wake Up Dead Man, enduróma hér, eink- um þó í laginu Peace On Earth. Hér er eig- inlega á feró „jólalag", þ.e.a.s. í textan- um er vísað til jólaguóspjallsins og orða englanna á Betlehemsvöllum um frið á jörð. Bono er greinilega orðinn langeyg- ur eftir friði: Heaven on Earth We need it now I 'm sick ofall ofthis Hanging around Sick ofsorrow Sick ofpain Sick ofhearin again and again That there 's gonna be Peace on Earth I ráðaleysinu andspænis endalausri bió eftir friði biður Bono Jesú um að gefa sér tíma til að grípa inn í og kasta björgunarhring til drukknandi manns: Jesus couldyou take the time To throw a drowning man a line Peace on Earth To tell the ones who hear no sound Whose sons are living in the ground Peace on Earth Nokkurs biturleika og vonleysis gætir í Ijóðinu. Bono játar að orðin sem hann heyrir á hverjum jólum sitji föst í hálsin- um. Vonin og sagan rími alls ekki sam- an. Loks spyr hann hvers virói friðurinn sé. I beinu framhaldi af þessum hugleið- ingum er texti næsta lags, When I look at the world, áhugaveróur. Þar virðast þeir 26

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.